Fréttablaðið - 16.04.2016, Qupperneq 59
| AtvinnA | LAUGARDAGUR 16. apríl 2016 19
Leikskólakennarar óskast
Leikskólakennara og deildarstjóra vantar í leikskólann
Krakkaborg í Flóahreppi. Krakkaborg er þriggja deilda og
að jafnaði dvelja þar um 40-45 börn frá 9 mánaða aldri.
Húsnæði leikskólans er nýlegt og aðstaða og aðbúnaður
góður.
Við leitum að einstaklingi sem er jákvæður, skapandi og vill
vera virkur hluti liðsheildar. Krakkaborg er í fimm mínútna
akstri frá Selfossi.
Hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun
• Góð færni í mannlegum samskiptum
• Áhugi og metnaður fyrir faglegu leikskólastarfi
• Skipulagshæfni
• Frumkvæði
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
Allar umsóknir verða teknar til skoðunar og þeim svarað.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Kennarasambands
Íslands.
Umsóknarfrestur er til og með 4. maí.
Við óskum einnig eftir skólaliða í Krakka-
borg, í 87% stöðuhlutfall.
Umsóknarfrestur er til og með 4. maí.
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Hólm Þorkelsdóttir
leikskóla stjóri í síma 480-0151. Umsóknir ásamt ferilskrá
sendist á netfangið guggaholm@floahreppur.is
SPENNANDI STÖRF Í HÁTÆKNIFYRIRTÆKI
Marel er alþjóðlegt hátæknifyrirtæki með hátt í 4600 starfsmenn, þar af 500 á
Íslandi. Fyrirtækið er brautryðjandi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja
og hugbúnaðar fyrir matvælaiðnað. Við leggjum ríka áherslu á nýsköpun
og framþróun í öllu okkar starfi. Þess vegna viljum við ráða til okkur
öflugar konur og karla sem hafa áhuga á að mæta nýjum og spennandi
áskorunum á hverjum degi. Starfsumhverfið er fjölskylduvænt, vinnutíminn
er sveigjanlegur, félagslífið gott, lögð er áhersla á heilsueflingu starfsfólks
m.a. með góðu mötuneyti og framúrskarandi íþróttaaðstöðu.
VÖRUSTJÓRI HUGBÚNAÐAR
Um er að ræða vörustjórnun (product management) fyrir hugbúnað sem snýr sérstaklega
að MES lausnum (Manufacturing Execution System). Vörustjóri er ábyrgur fyrir vörunni, frá
upphafi og út líftíma hennar. Starfið felur í sér samstarf við vöruþróun, þjónustu og sölunet
Marel auk samskipta við viðskiptavini og samstarfsaðila á Íslandi og erlendis.
Hæfniskröfur eru menntun í viðskiptafræði, verkfræði eða sambærilegu. Reynsla af
stefnumótun, þekking á alþjóðamörkuðum og reynsla af vörustjórnun er mikill kostur.
VERKEFNASTJÓRI HUGBÚNAÐARVERKEFNA
Starfið felst í verkefnastjórnun söluverkefna og þá sérstaklega hugbúnaðarhluta slíkra
verkefna. Verkefnastjóri skipuleggur samstarf viðskiptavina, hugbúnaðarráðgjafa,
vöruþróunar og annarra hagsmunaaðila á sviði hönnunar, uppsetningar, prófana, þjálfunar
og innleiðingar á Innova hugbúnaði.
Hæfniskröfur eru menntun á sviði verkfræði, tæknifræði, tölvunarfræði eða
verkefnastjórnunar. Reynsla af verkefnastjórnun hugbúnaðarverkefna og samskiptum við
viðskiptavini er mikill kostur.
HUGBÚNAÐARRÁÐGJAFI
Starfið felst í ráðgjöf, uppsetningu og innleiðingu á hugbúnarkerfum og verkferlum hjá
viðskiptavinum Marel.
Hæfniskröfur eru menntun á sviði rekstrarfræði, iðnaðarverkfræði, kerfisfræði
eða sambærilegu. Reynsla af hugbúnaðarráðgjöf, innleiðingu og uppsetningu á
hugbúnaðarkerfum er mikill kostur.
„Að sjá hugmynd verða að veruleika
er ótrúlega gefandi. Hjá Marel fæ ég
að nýta öll verkfærin í kistunni til þess
að að búa til hugbúnað sem notaður
er út um allan heim.“
Ólafur Hlynsson,
hugbúnaðar-
verkfræðingur,
kerfisforritari og
áhugamaður
um flug
Marel leitar að snjöllu, skipulögðu og úrræðagóðu fólki í þrjár spennandi stöður
í INNOVA hugbúnaðarteymi fyrirtækisins. Um er að ræða alþjóðleg verkefni sem
krefjast ferðalaga erlendis.
INNOVA er framleiðsluhugbúnaður fyrir matvælaiðnað sem styður við vinnsluferli,
allt frá móttöku hráefnis til vöruafhendingar. Um 130 manns starfa við þróun, sölu og
þjónustu á Innova. Hugbúnaðurinn er notaður af öllum helstu matvælafyrirtækjum
heims. Innova er ört vaxandi þáttur í starfsemi Marel og skapar fyrirtækinu sérstöðu í
þróun hátæknilausna fyrir matvælaiðnaðinn.
Allar nánari upplýsingar um störfin og umsóknarform er að finna á marel.is/störf
Umsóknarfrestur er til og með 24. apríl.
ORGANISTI
KÓRSTJÓRNANDI
LISTRÆNN STJÓRNANDI
ORGANISTI – KÓRSTJÓRNANDI
– LISTRÆNN STJÓRNANDI
Langholtssókn í Reykjavík auglýsir laust til umsóknar
starf organista. Um er að ræða 100% stöðu.
HÆFNISKRÖFUR
Gerð er krafa um að umsækjandi hafi kantorspróf
frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar eða sambærilega
menntun og hafi reynslu og þekkingu af kórstjórn.
Við leitum að metnaðarfullri manneskju sem:
- Býr yfir mikilli hæfni í mannlegum samskiptum.
- Leggur áherslu á tónlistarflutning í helgihaldi.
- Vill starfa með teymi starfsfólks og sjálfboðaliða í
syngjandi kirkju að kórastarfi og tónlistaruppeldi.
Við mat á hæfni umsækjenda er að öðru leiti vísað til
starfslýsingar/erindisbréfs sem finna má á heimasíðu:
Langholtssóknar www.langholtskirkja.is.
Launagreiðslur miða við launataxta kjarasamnings
- Launanefndar Þjóðkirkjunnar og FÍO/organistadeildar
FÍH.
SKIL UMSÓKNA
Umsóknarfrestur er til 14. maí 2016
en ráðið verður í starfið frá 1. ágúst 2016.
Umsækjendum ber að fylla út eyðublað þar sem
sóknarnefnd er heimilaður aðgangur að sakaskrá
viðkomandi umsækjenda. Skal undirrituð heimild þar
um fylgja umsókninni. Eyðublaðið er á vef kirkjunnar,
https://innri.kirkjan.is/pdf/samthykki-fyrir-oflun-
upplysinga-ur-sakaskra.pdf
Ráðningarferli verður með þeim hætti að valnefnd sem
skipuð hefur verið af sóknarnefnd fer yfir umsóknir
og boðar til viðtala í samráði við faglegan ráðgjafa.
Sóknarnefnd tekur endanlega ákvörðun um ráðningu.
Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um.
Frekari upplýsingar um starfið veita:
Björg Dan Róbertsdóttir formaður sóknarnefndar
og sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknarprestur.
Starfslýsingu má finna á vef Langholtssóknar
www.langholtskirkja.is
Umsóknum ásamt afritum af prófskírteinum og
ferilskrá skal skilað rafrænt á neðangreint netfang:
bjorgdr@gmail.com.
Langholtskirkja
ORGANISTI
KÓRS JÓRNANDI
LISTRÆNN STJÓRNANDI
Ertu að leita að talent?
Við finnum starfsmanninn fyrir þig
lind@talent.is bryndis@talent.is
www.talent.is | talent@talent.is
1
6
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:0
9
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
1
A
-1
C
E
4
1
9
1
A
-1
B
A
8
1
9
1
A
-1
A
6
C
1
9
1
A
-1
9
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
2
0
s
_
1
5
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K