Fréttablaðið - 16.04.2016, Qupperneq 100
Hvernig kom það til, Úlfhildur,
að þú tókst þátt í Upptaktinum?
Frænka mín var með í hittifyrra,
ég fór á tónleikana þá og ákvað
að vera með á næsta ári og senda
inn lag. Ég var því með lag bæði í
fyrra og núna. Ingibjörg Ýr Skarp-
héðinsdóttir tónskáld er að hjálpa
mér að fullvinna lagið áður en það
verður flutt í Hörpu á barnamenn-
ingarhátíðinni, það fylgdi með í
pakkanum.
Hvað heitir lagið og hvernig
mundir þú lýsa því? Það heitir
Víkingr og lýsir stemningunni
þegar ungir menn sigldu í víking
til annarra landa, fullir af ævin-
týraþrá.
Fyrir hvaða hljóðfæri er það? Það
er útsett fyrir strengi, fiðlu, lágfiðlu,
selló og kontrabassa.
Veistu hver flytur lagið á tón-
leikunum í Hörpu? Nei, eigi veit
eg hverjir flytja munu lag mitt!
– en tónleikarnir verða 19. apríl
klukkan fimm.
Hefur þú prófað að semja lög
áður? Já, já, oft og mörgum
sinnum.
Á hvaða hljóðfæri spilar þú? Ég
spila á trompet, byrjaði að læra á
hann þegar ég var ára.
Spilar þú oft opinberlega? Já, af
og til. Ég spila til dæmis í Stórsveit
skólahljómsveita Reykjavíkur,
með Skólahljómsveit Mið- og
Vesturbæjar, hef spilað í leiksýn-
ingu í skólanum og við ýmis önnur
tækifæri.
En hvernig tónlist hlustar þú
mest á? Alls konar tónlist nema
mér leiðist tískupopp nútímans.
Hvað gerir þú helst í frístundum?
Ég syng í kór og er í sirkusskóla.
Svo er ég að æfa mig á bæði gítar og
píanó sjálf.
Ertu búin að plana hvað þú gerir
skemmtilegt í sumar? Ég er að
fara til Belgíu á kóramót með
kórnum mínum.
Eigi veit eg hverjir
flytja munu lag mitt
Úlfhildur Valgeirsdóttir, tólf ára, heitir ekki bara nafni sem mundi
hæfa hvaða fornsögu sem er. Hún samdi líka lagið Víkingr og sendi
það inn í Upptaktinn, tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna.
Lagið lýsir stemningunni þegar ungir menn sigldu í víking.
Fyrir utan að læra á kontrabassa í tónlistarskóla æfir Úlfhildur sig sjálf í að spila á píanó og gítar. Fréttablaðið/Ernir
Hann Unnar Örn Magnússon á Selfossi sendi okkur þessa mynd. Eins og sést er hún af honum sjálfum og pabba hans
saman.
Listaverkin
Siggi lenti í slag og var laminn ansi
illa. Hann sat á lögreglustöðinni að
gefa skýrslu þegar lögreglumaður-
inn spurði: Geturðu lýst manninum
sem réðst á þig?
Já, ég var nú einmitt að lýsa honum
þegar hann réðst á mig.
af hverju fluttu grísirnir þrír að
heiman?
Af því mamma þeirra var algert svín.
Gísli: Má ég gista hjá þér í nótt? Það
er svo vont veður að ég kemst bara
ekki heim.
Maggi: Já, allt í lagi. Komdu inn.
Gísli: Takk. Ég ætla bara fyrst að
skreppa heim og ná í náttfötin.
Einn af skátunum mætti á fund með
glóðarauga.
Hvernig fékkstu þetta glóðarauga?
spurði flokksforinginn.
Ég hjálpaði gamalli konu yfir götuna.
Og fékkstu glóðarauga af því?
Já, hún vildi ekki fara yfir.
Brandarar
Bragi Halldórsson
„Þetta er nú meiri ruglings teningasúpan,“ sagði Róbert og
það hnussaði í honum. „Það er ekki hægt að sjá neitt út úr
þessu. „Jú,“ sagði Konráð. „Hér eru teningar sem búið er að
raða í form. Formunum hefur verið snúið allavega svo erfitt
getur verið að sjá hvaða form eru eins. Þrjú formin eru eins,
þótt þau snúi mismunandi, en það fjórða er öðruvísi.“
Getur þú séð hvaða form er öðruvísi en hin þrjú?
A B
D E
SVAR: D
195
ALLAR HELGAR
365.is Sími 1817
Afinn sem allir elska og fjörugu vinkonurnar Skoppa
og Skrítla skemmta börnum og foreldrum á laugardags-
og sunnudagsmorgnum á Stöð 2.
HELGARFJÖR FYRIR FLOTTASTA FÓLKIÐ
1 6 . a p r í l 2 0 1 6 l a U G a r D a G U r48 h e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
1
6
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:0
8
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
1
9
-D
C
B
4
1
9
1
9
-D
B
7
8
1
9
1
9
-D
A
3
C
1
9
1
9
-D
9
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
2
0
s
_
1
5
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K