Fréttablaðið - 16.04.2016, Page 117

Fréttablaðið - 16.04.2016, Page 117
Breski leiklistarskól- inn Drama stuDio lonDon mun halDa inntöku- próf í reykjavík laugar- Daginn 21. maí. Ratchet and Clank Ævintýraleikur PS4 ★★★★★ Hinir geysivinsælu Ratchet og Clank hafa snúið aftur. Þeir félagar þurfa að koma sólkerfinu aftur til bjargar í skemmtilegum ævin- týraleik. Nýjasti leikurinn um þá var gefinn út á dögunum en um er að ræða endurgerð á hinum upp- runalega Ratchet and Clank frá 2002. Seinna í mánuðinum verður svo gefin út kvikmynd, sem byggir á sama söguþræði og leikurinn. Það er ekki oft sem eldri leikir eru endurgerðir á þennan hátt, en ekki bara uppfærðir og óhætt er að segja að það komi ágætlega út. Ratchet er vélvirki sem dreymir um að ganga til liðs við varðmenn sólkerfisins og ferðast um geiminn. Clank er gallað stríðsvélmenni sem brotlendir á plánetu Ratchet. Saman þurfa þeir svo að koma heiminum til bjargar. Í gegnum ferðalag þeirra félaga safna Rathcet og Clank byssum og græjum sem gera þeim betur kleift að berjast við óvini sína. Vopn leiksins er hægt að betrumbæta og þróa. Það er þó alltaf hægt að grípa til gamla og góða skiptilykilsins til að lumbra á vondu körlunum. Leikurinn er mjög fjölskyldu- vænn og býður upp á mjög fjöl- breytta spilun. Allt frá því að fljúga geimskipi, leysa þrautir, berjast við óvini eða keppa á svifbretti. Hann lítur mjög vel út, talsetning er skemmtileg og samtöl karaktera eru full af bröndurum fyrir bæði börn og fullorðna. Þá geta spilarar safnað ýmsum hlutum eins og sérstökum boltum úr gulli og spilum. Þannig er fólk hvatt til að snúa aftur til pláneta sem búið er að fara yfir til að leysa þrautir sem ekki var hægt að fara í gegnum áður. Allt í allt er um að ræða um 15 klukkustundir af spilun. Nýi Ratchet and Clank leikurinn ætti ekki að valda gömlum aðdá- endum vonbrigðum auk þess að afla fjölda nýrra. Leikurinn er eins og áður segir byggður á uppruna- lega leiknum, en hann er gerður upp á nýtt frá grunni. Það kemur vel út og lífgar hressilega upp á einn af helstu tölvuleikjakarakterum síðasta áratugar. Samúel Karl Ólason ratchet og Clank betrumbættir Ratchet og Clank mæta óvinum sínum á nokkrum plánetum. Mynd/InSoMnIaCGaMeS Háskólinn á Akureyri Hlökkum til að sjá þig Í HÁSKÓLABÆNUM AKUREYRI HeilbrigðisvísindasviðHug- og félagsvísindasvið Viðskipta- og raunvísindasvið ■ Hjúkrunarfræði ■ Iðjuþjálfunarfræði ■ Félagsvísindi ■ Fjölmiðlafræði ■ Nútímafræði ■ Sálfræði ■ Kennarafræði ( leikskóla-, grunnskóla- og íþróttakjörsvið NÝTT) ■ Lögfræði ■ Viðskiptafræði ■ Líftækni ■ Sjávarútvegsfræði www.unak.is Allt nám er einnig hægt að stunda í fjarnámi. Mikið framboð af skiptinámi. býður upp á einstaklingsmiðað og fjölbreytilegt nám í frábæru umhverfi. Framhaldsnám Framhaldsnám Framhaldsnám Heilbrigðisvísindi MS/Diplóma Félagsvísindi MA Lögfræði ML Menntunarfræði MEd Menntavísindi MA Fjölmiðla- og boðskiptafræði MA/Diplóma Heimskautaréttur LLM/MA/Diplóma Auðlindafræði MS Viðskiptafræði MS Umsóknarfrestur er til og með 5. júní Breski leiklistarskólinn Drama Studio London mun halda inn- tökupróf í Reykjavík laugardaginn 21. maí. Meðal leikara sem hafa stundað nám við skólann eru þau Emily Watson, Adrian Lukis, Rune Temte og íslenski leikarinn Theo- dór Júlíusson. Ekki er óalgengt að leiklistarskólar haldi inntökupróf í fleiri borgum en sinni heimaborg, en þetta er í fyrst sinn sem Drama Studio kemur til Íslands. „Það var alveg dásamlegt að vera í þessum skóla, mjög fjölbreytt nám og frábærir kennarar. Ég kem til með að kynna starf skólans í upp- hafi prufudagsins. Skólinn er til húsa í fallegu gömlu húsi í vestur- hluta London og er þekktur fyrir hlýlegt og persónulegt andrúmsloft. Margir leiklistarskólar í London eru orðnir hluti af stærri háskólum, en Drama Studio London er eingöngu leiklistarskóli. Ýmsir „farandkenn- arar“ tala um að skólinn búi enn yfir töfrandi andrúmslofti gömlu leik- listarskólanna, þar sem nemendur og kennarar eru eins og ein stór fjölskylda. Æft er í öllum krókum og kimum þessa fallega húss,“ segir Margrét Kristín Sigurðardóttir en hún útskrifaðist úr skólanum í fyrrahaust. Undirbúa þarf tvo mónólóga fyrir inntökuprófið, en nánari upplýs- ingar um það er að finna á heima- síðu skólans. Skólinn býður upp á þrjár námsbrautir, allt frá einu ári til þriggja ára BA-náms í leiklist. „Prufurnar fara fram á Dansverk- svæðinu Skúlagötu 30. Fólk sækir um í gegn um heimasíðu skólans og hvet ég alla áhugasama til að sækja um í inntökuprófið,“ segir Margrét. gudrunjona@frettabladid.is Dásamlegur leiklistarskóli Margrét Kristín Sigurðardóttir, út- skrifaðist úr skólanum haustið 2015. L í f i ð ∙ f R É T T A B L A ð i ð 65L A U G A R D A G U R 1 6 . A P R í L 2 0 1 6 1 6 -0 4 -2 0 1 6 0 4 :0 8 F B 1 2 0 s _ P 1 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 1 9 -C 4 0 4 1 9 1 9 -C 2 C 8 1 9 1 9 -C 1 8 C 1 9 1 9 -C 0 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 2 0 s _ 1 5 _ 4 _ 2 0 1 6 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.