Morgunblaðið - 04.07.2015, Side 1
Ungir fá
kki laun
Í
Börn
hafa
gott
SUNNUDAGUR
ÍSLENDINGAR HANNASJÁLFBÆR EININGAHÚS
SUMARBRÚÐKAUPIN
VEISLAÍ FLATEY
ARKITEKTÚR 22
TÍSKA 36
MATARBOÐ 28
LJÓÐ SÉU EINSAÐGENGILEGOG KAFFIBOLLI
5. JÚLÍ 2015
RN EGILSSON HEFURSEM TÖKUMAÐUR OGÓRI ÞEKKTRA BANDARÍSKRA
SJÓNVARPSÞÁTTA OG AUGLÝSINGA
Í 25 ÁR. HANN RÆÐIR UM FERIL
SINN Í HOLLYWOOD, ÁSTRÍÐUNA FYRIR
ÞVÍ AÐ SEGJA SÖGUR OG LÖNGUNINA
TIL AÐ VINNA Á ÍSLANDI 40
LEIKSTJ
*
MEÐ AUGUM ARNARINS
e
6ÁFANGASTAÐIRFYRIRFJÖLSKYLDUNA
L A U G A R D A G U R 4. J Ú L Í 2 0 1 5
Stofnað 1913 155. tölublað 103. árgangur
ORKUBOLTINN
IGGY POP FÓR
MIKINN Á SVIÐI
GEFA ÚT
BARNA-
GÆLUR
BÓK OG DISKUR 10LISTAPISTILL AF ATP 47
Morgunblaðið/Júlíus
Hólmsheiði Byggingin er langt komin, en
ekki mun vera hægt að stækka hana.
Páll Winkel fangelsismálastjóri
segir að ekki hafi verið gert ráð
fyrir því að hægt yrði að stækka
fangelsið á Hólmsheiði, þegar ráð-
ist var í byggingu þess. Gert er ráð
fyrir 36 nýjum plássum á Hólms-
heiði en þess í stað verður Kvenna-
fangelsinu í Kópavogi og Hegning-
arhúsinu við Skólavörðustíg lokað
en þau rúma samtals 20 fanga.
„Það var ekki pólitískur áhugi
fyrir því að stækka fangelsið eða
gera ráð fyrir stækkunarmöguleik-
anum,“ segir Páll og bætir því við
að Fangelsismálastofnun hafi gert
grein fyrir möguleika á stækkun
fangelsisins í undirbúningi fram-
kvæmdanna. Eftirspurn eftir fang-
elsisplássi hefur aukist á und-
anförnum árum vegna þyngri
refsinga og fleiri dóma. »17
Ekki gert ráð fyrir
stækkun Hólms-
heiðarfangelsis
Margrét Kr. Sigurðardóttir
margret@mbl.is
Kínverska stórfyrirtækið Zhejiang
Geely Holding Group (Geely Group),
ætlar að fjárfesta í Carbon Recycling
International
(CRI) fyrir 45,5
milljónir dollara
eða um 6 milljarða
króna næstu þrjú
árin.
Í viðtali Morg-
unblaðsins við
stjórnarformann
og stofnanda fyr-
irtækisins, Li
Shufu, kemur
fram að fjárfestingin sé liður í sam-
félagsábyrgð fyrirtækisins sem miði
að því að draga úr útblæstri bíla og
minnka mengun. Hann metur það svo
að sú tækni sem CRI hafi yfir að ráða
sé góð framtíðarlausn til að ná því
markmiði.
„Við stöndum frammi fyrir því að
annars vegar erum við með takmörk-
un á orkugjöfum og hins vegar verð-
um við að hafa hreinna loft. Lofts-
lagsbreytingarnar eru mikil áskorun
og því þarf að huga vel að því að í
framtíðinni verði ökutæki knúin með
endurnýjanlegri orku. Þess vegna er
fjárfestingin í CRI mikilvæg fyrir
okkur, þar sem fyrirtækið er komið
með lausn sem við viljum halda
áfram að prófa.“
Framleiðir leigubílana í London
Fyrirtækið er einn stærsti bíla-
framleiðandi Kína og selur bíla víða
um heim undir vörumerkinu Geely,
auk þess sem fyrirtækið á Volvo bíla-
framleiðandann og svörtu leigubíl-
ana sem notaðir eru í London.
Li segir CRI hafa náð miklum ár-
angri í þeirri tækni sem þróuð hefur
verið og hann vilji styðja fyrirtækið í
að koma lausninni víðar. Hann segir
heiminn þurfa aðra valkosti en þá
hefðbundnu til að knýja ökutæki og
telur að metanól sé góður orkugjafi
fyrir bifreiðar, þar sem það sé ein-
staklega hreint auk þess sem auðvelt
sé að flytja það og geyma.
Hann telur mikil tækifæri vera
fyrir CRI til að vaxa og koma sér fyr-
ir á fleiri stöðum í heiminum. Lausnir
fyrirtækisins eigi erindi víða, í Kína
og annars staðar.
Kínverskt fyrir-
tæki heillað af
tæknilausn CRI
Framleiðandi Volvo fjárfestir í Car-
bon Recycling fyrir 6 milljarða króna
MMetanól góð framtíðarlausn »19
Li Shufu
Morgunblaðið/RAX
Eftirsóttur Egill Örn Egilsson er
með mörg járn í eldinum.
Egill Örn Egilsson, sem starfað hef-
ur sem tökumaður og leikstjóri
þekktra bandarískra sjónvarpsþátta
og auglýsinga í aldarfjórðung, mun
innan skamms starfa á Íslandi í
fyrsta sinn á ferlinum.
Um er að ræða tvö verkefni. „Ann-
að verður alfarið unnið hér heima og
ég geri fastlega ráð fyrir að það
muni vekja athygli þjóðarinnar. Hitt
kem ég með frá Bandaríkjunum. Það
er of snemmt að greina efnislega frá
þessum verkefnum en það kemur að
því,“ segir Egill Örn sem kallar sig
Eagle Egilsson vestra.
Hann er líklega þekktastur fyrir
aðkomu sína að CSI-seríunum, þar
sem hann hefur starfað sem töku-
maður, leikstjóri og framleiðandi.
Nýjasta verkefnið er CSI: Cyber, en
sú sería var frumsýnd fyrr á þessu
ári. Patricia Arquette fer með aðal-
hlutverkið. Af öðrum nýlegum verk-
efnum Egils Arnar má nefna Hawaii
Five-O, Nikita og TURN.
Egill Örn er eini Íslendingurinn
sem á aðild að hinu virta félagi kvik-
myndatökumanna í Bandaríkjunum,
ASC. Nánar er rætt við hann í
Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.
Vinnur í fyrsta sinn á Íslandi
Egill Örn Egilsson hefur unnið lengi í bandarísku sjónvarpi
Mávarnir við Reykjavíkurtjörn eru frekir til matarins og einn þeirra greip
beinlínis á lofti brauðmola sem þessi unga dama hafði kastað út í tjörnina.
Skiljanlega brá henni dálítið og horfði undrandi á þetta háttalag. Dæmi
eru um að börn hafi orðið frá að hverfa vegna ásækni fuglanna.
Bitinn gripinn á lofti
Ljósmynd/Guðmundur Stefánsson
Barist um brauðið við Tjörnina
„Ég vil fá til
mín meindýra-
eyði til þess að
leggja á ráðin
um hvað hægt sé
að gera,“ segir
Þórsteinn Ragn-
arsson, forstjóri
Kirkjugarðanna,
en ófremdar-
ástand ríkir í
duftgarðinum í
Sóllandi austan við Öskjuhlíð. Hef-
ur stór hópur gæsa haldið þar til að
undanförnu með tilheyrandi sóða-
skap. Þá eru gæsirnar einnig sagð-
ar afar herskáar. »2
Herskáar gæsir
halda til í duftgarði
Á verði Ein gæs-
anna í garðinum.
Steingrímur J. Sigfússon, þingmað-
ur Vinstri grænna, er ræðukóngur
Alþingis annað árið í röð. Á 144.
löggjafarþingi Alþingis, sem lauk í
gær, talaði Steingrímur í
samtals 2.419 mínútur, eða
rúmlega einn og hálfan
sólarhring. Hann flutti
293 ræður á þinginu
og gerði 496 at-
hugasemdir.
Bjarni Bene-
diktsson, for-
maður Sjálfstæð-
isflokksins, er
eini stjórnarliðinn
sem var á meðal
þeirra tíu alþing-
ismanna sem
lengst töluðu á þinginu sem leið.
Skemmst talaði Elín Hirst, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins. At-
hugasemdum úr ræðustól fjölgaði
mikið miðað við fyrri þing, eða um
49,4 prósent frá þinginu á undan,
og voru alls gerðar 9.727 athuga-
semdir á þingfundum. Össur
Skarphéðinsson, Samfylkingu,
gerði flestar athugasemdir eða
543 talsins. Alþingi samþykkti
fyrir þingslit í
gær hafta-
frum-
vörpin
svoköll-
uðu. »6
og 12
Steingrímur ræðukóngur annað árið í röð
CRI var stofnað árið 2006 með
það að markmiði að framleiða um-
hverfisvænt eldsneyti. Fyrirtækið
rekur verksmiðju í Svartsengi á
Reykjanesi sem er sú fyrsta sinnar
tegundar í heiminum þar sem
koltvísýringsútblæstri frá jarð-
varmavirkjun er breytt í endurnýj-
anlegt metanól sem blandað er
bensíni til notkunar sem eldsneyti
í bifreiðum. Verksmiðjan var
stækkuð í apríl síðastliðnum og
hefur framleiðslugetu fyrir 4.000
tonn af endurnýjanlegu metanóli á
ári. CRI selur eldsneytið á inn-
lendum og erlendum markaði.
Framleiðir metanól í Svartsengi
UMHVERFISVÆNT ELDSNEYTI FRÁ CRI