Morgunblaðið - 04.07.2015, Síða 4

Morgunblaðið - 04.07.2015, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2015 „Þetta er mun eðlilegri staðsetning fyrir styttuna. Hún er loks komin úr skugganum við Miklubraut og á stað þar sem fleiri munu vonandi njóta,“ segir Júlíus Vífill Ingvars- son, borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins, sem lagði til í borgarráði árið 2014 að styttu Ásmundar Sveinssonar af Einari Benedikts- syni yrði fundinn nýr staður í borg- inni. Styttan var flutt að Höfða í vikunni en stóð áður á Klambratúni, þar sem fáir tóku eftir henni þar sem hún stóð falin bak við hávaxin tré. Einar reisti Höfða árið 1909 og bjó þar með fjölskyldu sinni frá 1914 til 1917. Er Höfði þó aðeins eitt fjölmargra húsa í Reykjavík sem skáldið tengist á einhvern hátt. Þann 31. október í fyrra voru 150 ár frá fæðingu Einars Benedikts- sonar. Sama dag var hálf öld frá því að styttan var afhjúpuð. Styttan snýr í áttina að Borgartúni þannig að þegar ekið er niður Félagstún blasir hún við. Ekki var hægt að finna styttunni stað nær húsinu vegna fornleifa. Kostnaðaráætlun við viðgerð, flutning og frágang við styttuna á nýjum stað var 15 milljónir króna. Reykjavíkurborg leggur til helming kostnaðar á móti fjármagni sem áhugahópur um styttuna safnaði. Ekki hefur verið ákveðið hvað eigi að koma í stað Einars á Klambratúni en hverfisráði Mið- borgar og Hlíða hefur verið falið að koma með tillögu í samráði við íbúa að framtíðarlausn. benedikt@mbl.is Kominn úr skugganum Morgunblaðið/Styrmir Kári Heima Einar Ben reisti Höfða árið 1909 og bjó í þrjú ár í húsinu. Hann mun standa við hlið hússins um ókomna tíð. Kostnaður var áætlaður 15 milljónir.  Einar Ben kom- inn heim að Höfða Borið hefur á lélegri sjónvarps- og nettengingu í Kolbeinsstaðahreppi í Borgarbyggð. Íbúi í hreppnum sagði við Morgunblaðið að sending ljós- mynda með tölvupósti tæki stundum klukkustundir og að sjónvarpsmynd- ir brengluðust mikið. Netsamband háð markaðnum Fjarskiptafyrirtækið Míla ehf. út- vegar nettengingu á svæðinu, en samkvæmt alþjónustukvöð Póst- og fjarskiptastofnunar, sem sett var ár- ið 2014, ber fyrirtækinu að sjá dreif- býlum svæðum landsins fyrir lág- marksnettengingu. „Okkur er gert að veita ákveðið lágmarkssamband. Oft er ekki hægt að bjóða háhraða- samband í dreifbýlinu,“ segir Sigur- rós Jónsdóttir, samskipta- og markaðsstjóri Mílu. „Míla er einka- fyrirtæki sem starfar á markaðsleg- um forsendum. Sveitarfélög hafa víða ákveðið að leggja ljósleiðara sjálf og þá höfum við veitt grunn- þjónustu í tengslum við hann. Míla er boðin og búin að taka þátt í slíku samstarfi,“ segir Sigurrós. Lögboðin sjónvarpsútsending Fyrr á árinu slökkti Ríkisútvarpið á síðustu hliðrænum sjónvarpssend- um sínum en í staðinn var tekið upp nýtt stafrænt útsendingakerfi í sam- starfi við Vodafone. Fyrirtækið býður upp á tvær leið- ir fyrir notendur ríkisútvarpsins. Annars vegar er gagnvirkt sjónvarp gegnum internettengingu, en slík tenging er möguleg í helstu þétt- býliskjörnum landsins. Hins vegar er boðið upp á loftnetstengingu, sem sögð er á heimasíðu fyrirtækisins ná til 99,9% landsmanna. Ríkisútvarpið er bundið af lögum til að senda dagskrá sína út um land allt, en einstaklingar og lögaðilar sem bera skattskyldu greiða rekstrarkostnað þess með útvarps- gjaldi, sem kunnugt er. jbe@mbl.is Bág tenging  Nettenging háð markaðsskilyrðum  Nýtt stafrænt útsendingarkerfi Grunnkort/Loftmyndir ehf. Kolbeinsstaðahreppur Kolbeinsstaðahreppur „Þetta gengur hægt og sígandi. Við erum nú búin að afgreiða skjöl frá 24. apríl,“ segir Bergþóra Sigmunds- dóttir, sviðsstjóri þinglýsinga- og leyfasviðs hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu, en starfsmenn þar á bæ vinna nú hörðum höndum að því að afgreiða þau skjöl sem söfnuðust upp á meðan verkfall Bandalags háskólamanna stóð yfir. Er vinna við afgreiðslu húsaleigu- samninga lengra á veg komin, eða til 11. júní, að sögn Bergþóru. „Þetta eru aðeins auðveldari skjöl og erum við með laganema í þeirri vinnu,“ segir hún, en stefnt er að því að ljúka afgreiðslu þeirra mála fyrir 16. júlí. Átta vikna biðtími? Ingibjörg Þórðardóttir, formaður Félags fasteignasala, segir afar brýnt að flýta afgreiðslu þeirra mála sem nú liggja á borði sýslumanns enda bætast dag hvern við sífellt fleiri erindi. „Okkur er sagt að af- greiðsla skjala geti tekið allt að sex til átta vikur eins og staðan er núna,“ segir Ingibjörg og heldur áfram: „Það er í raun uppi algert ófremdar- ástand í þessum málum sem hefur ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir fjölda fólks.“ Aðspurð segir Ingibjörg talsvert mikla hreyfingu vera á fasteigna- markaði hér á landi. „Það er bæði mikið framboð og eftirspurn á mark- aði. Og er ég bjartsýn á að það eigi eftir að aukast enn frekar á næstu mánuðum.“ Hjalti Andrason, fræðslustjóri Matvælastofnunar, segir uppsöfnun verkefna vegna verkfallsaðgerða hafa verið mesta á inn- og útflutn- ingsskrifstofu. „Þar biðu um 300 sendingar afgreiðslu og það er nú búið að afgreiða þær allar.“ Enn glímt við áhrif verkfalla  Löng bið er eftir afgreiðslu skjala Tæplega 40% Íslendinga á aldrin- um 20-29 ára búa heima hjá for- eldrum sínum samkvæmt tölum frá Hagstofu. Það kann að hljóma eins og mikið en í fjölmörgum löndum Evrópu búa 60-80% þessa aldurs- hóps enn heima, svo sem á Ítalíu, Spáni og Póllandi. Til samanburðar búa þó aðeins um 10% Dana enn heima á aldrinum 20-29 ára. „Þetta hefur verið að aukast nokkuð hægt en örugglega. Þetta virðist samt vera langtímaþróun frekar en afleiðing kreppunnar. Mér sýnist þetta vera stöðugur stígandi,“ segir Kolbeinn Stefáns- son, sérfræðingur í lífskjararann- sóknum hjá Hagstofunni, um stöð- una á Íslandi. Hann varpar fram þeirri tilgátu að þróunin tengist aukinni aðsókn í háskólanám. Skýr- ist það af því að það er erfiðara fyr- ir nemendur að flytja að heiman en fólk í fullri vinnu. Þá komum við að hækkandi leigu- og húsnæðisverði. „Í lang- tímaþróun getur það verið annað sem drífur áfram þróun eftir hrun en fyrir hrun. Ef maður setur sig í spor ungs fólks mætti halda að ekki væri lengur eins fýsilegt að flytja að heiman, meðal annars vegna þess að leiguverð er of hátt,“ segir Kolbeinn. Hvað varðar önnur lönd segir Kolbeinn menningarmun vera hluta af skýringunni. Þar sé sums staðar hefð fyrir því að fólk búi lengur heima; meiri stórfjölskyldustemn- ing. Í öðrum löndum gæti verið öðruvísi húsnæðisstefna eða betri aðgangur að námsmannahúsnæði. „Svona þættir geta skipt máli,“ seg- ir Kolbeinn. isb@mbl.is Tæplega 40% fólks á þrí- tugsaldri búa enn heima Morgunblaðið/Ómar Þróun Kolbeinn hjá Hagstofu segir að um langtímaþróun sé að ræða.  Danir flytja að heiman mun fyrr Um 200 sjálfboðaliðar munu í sumar starfa í fimm hóp- um að Fjallabaki, norðan Vatnajökuls og á Sprengisandi, og sinna hálendisvakt fyrir hönd Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Hóparnir tóku til starfa í gær og verður hver hópur í um vikutíma á hálendinu til að sinna tilfall- andi verkefnum. Að sögn Jónasar Guðmundssonar hjá Landsbjörg sinnti hálendisvaktin um 2.000 verkefnum síðasta sumar. Verkefnið stendur yfir í átta vikur, til loka ágústmánaðar. Hann segir að varla líði dagur án þess að sinna þurfi útkalli. „Í fyrra náði einn hópurinn aldrei að setjast niður til að fá sér að borða án þess að vera truflaður. Auðvitað var þetta undartekning, alveg eins og að það er undantekn- ing þegar ekkert er að gera,“ segir Jónas. vidar@mbl.is Morgunblaðið/Styrmir Kári Einn hópur fékk enga hvíld í sólarhring Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is Heilsu Qigong 5helstu ástæður þess að iðka qigong Qigong (borið fram “tsí-gong”) er yfir 5.000 ára gamalt æfingakerfi í heilsurækt þarsem saman fer qi, semmerkir “lífskraftur”, og gong, semmerkir “nákvæmar æfingar”. Skráning 5538282 í síma Tilboð í júlí 2 fyrir 1 mánaðarkort 1. Aukin vellíðan og lífsþróttur Minnkar blóðþrýsting, bætir hjarts- og æðastarfsemi, jafnar hjartsláttartíðni og minnkar kólesteról. 2. Dregur úr þrálátum sársauka Með hjálp sjónar og stjórn hugar og líkama getur þú dregið úr þrálátum sársauka frá liðagigt. 3. Betra blóðstreymi Með sérstökum öndunaræfingum getur þú aukið súrefnisflæði í líkamanum. 4. Dregur úr spennu Með því að minnka viðbrögð við spennuvekjandi álagi. Hjálpar gegn þráhyggu- og áráttuhegðun, þunglyndi og kvíða og persónuleikaeinkennum af A-gerð. 5. Byggir upp sjálfsvirðingu Með því að leyfa þér að líða vel og þægilega.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.