Morgunblaðið - 04.07.2015, Side 10

Morgunblaðið - 04.07.2015, Side 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2015 Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is V ið skulum þreyja, þorr- ann og hana góu og fram á miðjan einmán- uð; þá ber hún Grána.“ Þessi rammíslenski kveðskapur er barnagæla sem nán- ast hvert mannsbarn á Íslandi kann niðurlagið á: Bí, bí og blaka, álft- irnar kvaka, ég læt sem ég sofi, en samt mun ég vaka. Textinn er meðal þrjátíu vísna- og þulutexta í bókinni Vísnagull – Vísur og þulur fyrir börn í fangi. Á geisladiski sem fylgir með mynd- skreyttri bókinni syngur dr. Helga Rut Guðmundsdóttir tónlistarfræð- ingur lagið, sem er eftir Jórunni Viðar. Raunar syngur Helga flest lög- in á disknum og fer jafnframt með þulurnar, en nýtur líka aðstoðar sjö ára systurdóttur sinnar, dóttur Pét- urs Ben tónskálds, en hann stendur með mágkonu sinni að útgáfunni. „Markmið okkar er að tryggja yngstu kynslóðinni vandað aðgengi að þjóðararfinum, allt frá íslensku baðstofunni og fram á okkar daga,“ útskýrir Helga Rut. Sjálf hafði hún ekki heyrt áðurnefnt vísubrot um þorrann og góuna þegar hún var lít- il. Og var þó mikið sungið á hennar æskuheimili. „Sérstaklega fyrir börnin. Ég man eftir að hafa sungið fyrir yngri systur mínar þegar ég passaði þær. Síðar söng ég auðvitað allt sem ég kunni fyrir dætur mínar. En ég hefði viljað hafa svona bók eins og Vísnagull innan seilingar þegar þær voru litlar. Það er svo mikilvægt að stuðla að því að sungið sé með börn- Þjóðararfurinn í barnagælum Ljúft er að raula Kalt er litlu lummunum, Klappa saman lófunum, Krummi krunkar úti, Vindum, vindum, vefjum band og fleiri gamlar vísur með barn í fangi. Doktor í tónlistarfræðum, tónskáld og myndlistarkona leituðu fanga í þjóð- legum arfi skráðra og munnlegra heimilda og gefa út bókina og geisladiskinn Vísnagull – Vísur og þulur fyrir börn í fangi. Litríkur ævintýraheimur Bókin er prýdd tuttugu og sex splunkunýjum og litríkum málverkum eftir myndlistarkonuna Maríu Sif Daníelsdóttur. Þríþrautarnefnd ÍSÍ heldur utan um vefsíðuna www.triathlon.is. Þar er hægt að nálgast ýmsar upplýsingar um íþróttina og dagskrá yfir allar keppnir. Þríþrautardeild Sundfélags Hafnarfjarðar stendur fyrir næsta móti, sem er Íslandsmót í hálfum járnmanni. Mótið er haldið sunnu- daginn 5. júlí næstkomandi. Hálfur járnmaður er þríþraut sem þar sem keppendur synda 1.900 m, hjóla 90 km og hlaupa 21,1 km. Keppnin á sér stóran sess í áætl- unum þeirra sem eru að búa sig undir heilan járnkarl. Nú í ár verður að auki boðið upp á sprettþraut; 400 m sund, 16 km hjólreiðar og 2,5 km hlaup. Sprett- þrautin fer fram á sama tíma og keppni í hálfum járnmanni og því er búist við miklu fjöri á keppnisdag. Lokað hefur verið fyrir skráningu en aðstandendur þátttakenda og annað áhugafólk um þríþraut er eindregið hvatt til að koma á staðinn og hvetja sitt fólk og aðra keppendur til dáða. Vefsíðan www.triathlon.is Morgunblaðið/Golli Fataskipti Þríþrautarfólk fer úr sundgallanum og yfir í hjólagallann. Hálfur járnmaður í Hafnarfirði Um liðna helgi lagði tólf manna hópur upp í hlaupa- ferð um hringveginn til að safna peningum í átaks- verkefni undir heitinu Út- með’a, sem er vitundar- vakning gagnvart sjálfsvígum ungra ís- lenskra karla. Auk hlaupa- hópsins standa Geðhjálp og Hjálparsími Rauða krossins að verkefninu. Hlaupahópurinn kemur í mark á morgun, sunnudag, og stefnir á að vera mætt- ur við Húsgagnahöllina kl. 11. Fólk er hvatt til að hlaupa með síðasta spölinn og enda hlaupið í grillmat í Efstaleitinu kl. 12, en einnig er því velkomið að mæta beint í Efstaleitið. Endilega … … hlaupið með Útmeð’a Í mark á morgun Nokkrir hlauparanna í átakinu. Félagsmenn Forn- bílaklúbbs Íslands sýna gestum Árbæjarsafns bíla sína kl. 13-17 á morg- un á hinni árvissu og vin- sælu fornbílasýningu klúbbsins. Klúbbfélagar eru hafsjór fróðleiks um bílana, sem eiga sér margir hverjir merkilega sögu, og þeim þykir ekki leiðinlegt að skrafa og skeggræða um þessa glæsilegu gripi. Fornbílasýningin fellur vel að hugmyndum gest- gjafanna um að gefa gestum safnsins kost á að upplifa ferðalag aftur í tímann. Fornbílarnir eru reyndar ekki eins fornir og búningarnir sem starfsfólkið klæðist, sem eru eins og tíðkaðist á 19. öld. Fornbílaklúbbur Íslands var stofnaður árið 1997. Eitt af markmiðum félags- ins er að auka áhuga almennings á gömlum bílum og glæða skilning á varð- veislu þeirra og minjagildi. Klúbburinn leitast enn fremur við að stuðla að per- sónulegum kynnum milli eigenda fornbíla og hvetur félagsmenn til samvinnu og að miðla hver öðrum af reynslu sinni og kunnáttu í meðferð og varðveislu gamalla bíla. Húsfreyjan í Árbæ býður sérstöku fornbílaáhugafólki sem og öðrum gestum safnsins upp á nýbakaðar lummur og á baðstofuloftinu situr kona við tóskap. Mjaltir í Árbæjarsafni eru kl. 16. Fornbíladagurinn í Árbæjarsafni Bílar sem eiga merkilega sögu R5531 af stöðinni Glæsilegur leigubíll frá Hreyfli. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245 Veitum fría ráðgjöf fyrir tjónþola Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is skadi.is Þ. Skorri Steingrímsson, Héraðsdóms-lögmaður Steingrímur Þormóðsson, Hæstaréttar-lögmaður Sérfræðingar í líkamstjónarétti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.