Morgunblaðið - 04.07.2015, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 04.07.2015, Blaðsíða 18
18 VIÐSKIPTIViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2015 Skipholt 50c • 105 Reykjavík • 582 6000 • www.computer.is Síðan 1986 • Tengist þráðlaust með Bluetooth • Virkar við iPhone og Android síma • Notið símann löglega í ferðalaginu Eigum einnig bílhleðslutæki, festingar og kapla fyrir snjallsíma og spjaldtölvur Sendum hvert á land sem er Tölvur og fylgihlutir Genius 120BT handfrjáls búnaður 4.990 kr.                                     !  ! "# # !! $   %  %# $! &'()* (+(    ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5  %  #!  !! "## ## !#$ $ !  $ %!  $##" $     !$# "% ### !#%" $ #$   %!# $  !$"# Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● MP Straumur og rekstrarfélagið Stefnir hafa lokið skuldabréfaútgáfu með veði í lánasafni sjóðsins Ármúli Lánasafn, sem er í rekstri hjá Stefni. Ármúli Lánasafn er útgefandi skuld- bréfanna en tilgangur sjóðsins er að kaupa skuldaskjöl frá MP Straumi sem uppfylla fjárfestingastefnu sjóðsins um gæði lána. Gefnir voru út tveir flokkar skuldabréfa til þriggja ára, annars vegar forgangsskuldabréf að nafnvirði liðlega 1 milljarður króna til fjárfesta og hins vegar víkjandi skuldabréf að nafnvirði um 115 milljónir króna til MP Straums. Tæplega 40% umframeftirspurn var eftir forgangsskuldabréfunum. Skuldabréf gefin út á lánasafn MP Straums ● Gistinætur á hótelum hér á landi voru alls 2.463.500 á tólf mánaða tíma- bili frá júní 2014 til maí 2015, sam- kvæmt tölum Hagstofunnar. Þetta er fjölgun um 14% miðað við tólf mánaða tímabil þar á undan. Gistinætur á hótel- um í maí voru 216.500 sem er 20% fjölgun miðað við maí 2014. Gistinætur erlendra gesta voru 85% af heildar- fjölda gistinátta í mánuðinum og fjölg- aði um 28% frá sama tíma í fyrra. Gisti- nóttum Íslendinga fækkaði hins vegar um 12%. Nýting herbergja á höfuð- borgarsvæðinu var 77% í maí. Gistinætur tæplega 2,5 milljónir síðasta árið STUTTAR FRÉTTIR ... BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Samkvæmt bréfi sem Steinþór Páls- son, bankastjóri Landsbankans, sendi Vestmannaeyjabæ og Morgun- blaðið hefur undir höndum, telur bankinn sér ekki skylt að bæta stofn- fjáreigendum Sparisjóðs Vestmanna- eyja 22 milljóna vanmat á skatteign sjóðsins sem fluttist yfir til Lands- bankans við sameiningu stofnananna fyrr á árinu. Skatteignin byggist á því að við sameiningu stofnananna gat Landsbankinn flutt tap af rekstri sparisjóðsins til frádráttar á skatt- stofni sínum. Í upphaflegu samkomu- lagi sem samruninn byggðist á, var talið að yfirfæranlegt tap næmi 1.304 milljónum króna. Úttekt endurskoð- unarfyrirtækisins KPMG, sem kallað var eftir til að meta allar eignir og skuldbindingar sparisjóðsins, leiddi hins vegar í ljós að yfirfæranlegt tap nemur 1.414 milljónum króna og mis- munurinn á þeirri upphæð og upp- runalega matinu felur í sér aukna skatteign sem nemur 22 milljónum króna. Fyrrnefnt bréf fól í sér viðbragð við öðru bréfi sem sveitarfélagið hafði sent bankanum 22. maí. Í því bréfi hafði bærinn óskað eftir því að Lands- bankinn léti framkvæma yfirmat á mati KPMG og einnig var óskað svara við því með hvaða hætti Lands- bankinn hygðist bæta stofnfjáreig- endum fyrrnefnt vanmat á skatteign sjóðsins. Stofnfjáreigendur leita til FME Meðal þeirra röksemda sem Landsbankinn færir gegn því að verða við kröfum stofnfjáreigendanna er sú að hendur hans séu bundnar af ákvörðun FME um samruna stofnan- anna og því sé honum ekki heimilt að láta fara fram yfirmat á eignum og skuldum sjóðsins. Í kjölfar þess hefur Vestmannaeyjabær, ásamt Vinnslu- stöðinni, sem einnig var meðal stofn- fjáreigenda, ritað FME bréf þar sem óskað er eftir því að stofnunin veiti Landsbankanum sérstaka heimild til að láta framkvæma yfirmat. Þar seg- ir: „Með vísan til framangreinds er óskað eftir því að Fjármálaeftirlitið heimili Landsbankanum hf. – eftir at- vikum með endurupptöku ákvörðun- ar – að koma til móts við óskir stofn- fjáreigenda í Sparisjóði Vestmannaeyja um yfirmat.“ Á kostnað fyrri eigenda Í bréfi stofnfjáreigendanna til FME er sérstök athygli vakin á því að í samkomulaginu sem gert var milli fráfarandi stjórnar sparisjóðsins og Landsbankans og leiddi til fyrrnefnds samruna, var aðeins gert ráð fyrir því að hægt yrði að bregðast við því ef skatteign reyndist ofmetin. Í ákvæð- um 3.2. og 4.5 í samkomulaginu sé því ljóst að endurmat á yfirfæranlegu tapi gæti aðeins lækkað stofnfjáreig- endum til tjóns. Í bréfinu segir auk þess: „Mun Landsbankinn miðað við þetta, að öðru óbreyttu, auðgast á kostnað stofnfjáreigenda um 22 millj- ónir króna. Er athyglivert að bankinn vill fylgja mati KPMG um virði eigna og skulda sparisjóðsins að öðru leyti en þessu.“ Landsbankinn hafnar endurgreiðslu á skatteign Morgunblaðið/Árni Sæberg Fjármál Stofnfjáreigendur telja sig ekki hafa verið hafða með í ráðum þegar sparisjóðurinn var tekinn yfir. Sparisjóðurinn » Sparisjóður Vestmannaeyja var sameinaður Landsbank- anum 28. mars síðastliðinn. » Stofnfjáreigendur hans voru m.a. Bankasýsla ríkisins, Líf- eyrissjóður Vestmannaeyja, Vestmannaeyjabær og Vinnslu- stöðin. » Þá hafði komið í ljós að kröfusafn sjóðsins hafði verið ofmetið um nærri 1.200 millj- ónir.  Stofnfjáreigendur Sparisjóðs Vestmannaeyja telja sig hlunnfarna um tugi milljóna Umtalsverð velta var með löng óverðtryggð ríkisskuldabréf í lok vikunnar og heldur verð þeirra áfram að hækka. Þessa auknu veltu má að líkindum skýra með hækkun á lánshæfismati ríkissjóðs, að sögn Valdimars Ármanns, framkvæmda- stjóra sjóða hjá Gamma. Viðsnúningur hefur orðið í verði á óverðtryggðum ríkisskuldabréfum, en verð þeirra fór jafnt og þétt lækk- andi framan af ári. Sú þróun snerist við í byrjun júní og í kjölfar tilkynn- ingar um áætlun við losun hafta hef- ur verð þeirra farið mjög hækkandi. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hefur verið orðrómur á skuldabréfamarkaði um að aukna veltu að undanförnu megi ekki síst rekja til aukinna kaupa erlendra að- ila en það hefur ekki fengist staðfest. Valdimar bendir á að mögulegar ástæður fyrir hækkun bréfanna á undanförnum dögum séu fleiri en sú að viðskipti erlendra aðila hafi farið vaxandi. „Það gæti verið að erlendir aðilar séu byrjaðir að fjárfesta en einnig að innlendir fjárfestar hafi slíkar væntingar. Síðan má einfald- lega rekja þetta til hækkunar á láns- hæfismati ríkissjóðs í byrjun vikunn- ar og væntinga um að eftirspurn eftir ríkisskuldabréfum haldist áfram sterk,“ segir Valdimar. Jafn- framt bendir hann á að í kjölfar til- kynningar um áætlun um losun hafta vænti fjárfestar þess að framtíðar- útgáfa ríkisskuldabréfa verði lítil. Lítið framboð og aukin eftirspurn stuðli að því að verð hækki. sigurdurt@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Skuldabréf Eftirspurn er eftir óverðtryggðum ríkisskuldabréfum. Óverðtryggð ríkis- skuldabréf hækka  Miklar breyt- ingar eftir hækkun lánshæfismats

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.