Morgunblaðið - 04.07.2015, Side 22

Morgunblaðið - 04.07.2015, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2015 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ MichaelFallon,varn- armálaráðherra Breta, lagði fram á breska þinginu í vikunni þá uppástungu sína að breski flugherinn myndi hefja loftárásir innan landa- mæra Sýrlands á skotmörk tengd hryðjuverkasamtök- unum Ríki íslams, en hingað til hefur flugherinn eingöngu tekið þátt í loftárásum á sam- tökin innan landamæra Íraks. Raunar þarf ríkisstjórn Breta ekki samþykki þingsins fyrir slíkum aðgerðum, en í ljósi hinnar háðuglegu at- kvæðagreiðslu á haustdögum 2013, þar sem þingið felldi til- lögu þáverandi stjórnar um að taka þátt í fyrirhuguðum loftárásum Bandaríkjamanna á Sýrlandsstjórn í kjölfar þess að hinir síðarnefndu beittu efnavopnum, er eðli- legt að eftir samþykki þings- ins sé leitað. Úrslit þeirrar at- kvæðagreiðslu höfðu ýmis áhrif, meðal annars þau að Obama Bandaríkjaforseti heyktist sjálfur á því að refsa fyrir notkun efnavopnanna, þrátt fyrir fyrri hótanir sínar. En staðan nú er allt önnur, bæði innan þings og utan. Forysta Verkamannaflokks- ins hefur lýst sig tilbúna til þess að skoða tillögur Íhalds- flokksins, auk þess sem það skiptir nokkru máli að Ríki íslams er, þrátt fyrir yfirlýs- ingar hryðjuverkasamtak- anna, ekki viður- kennt sem fullvalda ríki. Það eru því ekki uppi sömu áhyggjur af alþjóðalögum og voru þegar Bashar al Assad Sýrlandsforseti var skot- markið. Það sem skiptir þó kannski mestu máli er andrúmsloftið innan Bretlands í kjölfar hinnar skæðu hryðjuverka- árásar á Túnis, en fjöldi Breta féll þar fyrir hendi vígamanna sem sóttu innblástur sinn og jafnvel meiri stuðning til hinna ömurlegu hryðjuverka- samtaka. Í máli Fallons kom fram að öryggisþjónustur Breta teldu mögulegt að árás- irnar hefðu verið skipulagðar í höfuðstöðvum Ríkis íslams í Raqqa í Sýrlandi, og meira en líklegt að verið væri að skipu- leggja aðrar árásir á breska hagsmuni þaðan. Öll vötn falla því nú til Dýrafjarðar, og er líklegra en ekki að Bretar muni áður en langt er um liðið bætast í hóp Bandaríkjanna og Kanada sem þegar hafa hafið loft- árásir innan landamæra Sýr- lands. Við það ætti þrýsting- urinn sem verið er að setja á Ríki íslams að aukast nokkuð. Það er hins vegar enn álita- efni hvort að loftárásir, sama hversu margar þjóðir standa að þeim, geti dugað einar og sér til þess að rífa upp með rótum þá óværu sem þarna hefur tekið sér bólfestu. Bretar íhuga loftárásir innan Sýrlands} Pressan aukin Sautján áradrengur lést úr ebólu í Líberíu um liðna helgi, en nærri því tveir mánuðir eru liðnir síðan því var lýst yfir að landið væri laust við sjúk- dóminn, og nærri því fjórir síðan smit var síðast skráð. Tveir félagar drengsins hafa einnig smitast og fylgjast heilbrigðisyfirvöld nú grannt með um hundrað manns sem taldir eru hafa haft samneyti við drenginn, en óttast er að annar faraldur gæti nú blossað upp í kjölfarið. Fréttirnar hafa valdið miklum ótta í Líberíu, enda var landið illa leikið í fyrra af faraldrinum, og margar fjölskyldur eiga enn um sárt að binda vegna hans. Jafn- framt er þetta bakslag áfall fyrir nágrannaríkin Síerra Leone og Gíneu, sem höfðu ekki náð sama árangri og Líbería í baráttu sinni við ebóluna, þar sem þau höfðu vonast til þess að aðferðir þær sem beitt hafði verið þar myndu einnig virka heima fyrir, en nú þykir það miklum vafa undirorpið. Þegar við bætist að farald- urinn hefur nú þegar lagt efnahag þeirra rúst með því að draga úr framleiðni, ferðamennsku og utanríkis- viðskiptum er ljóst að end- urtekning á hinum ólýsan- legu hörmungum síðasta árs eru það síðasta sem Vestur- Afríka má nú við. Það skiptir því miklu að alþjóðasam- félagið sé vakandi og leggi sitt af mörkum til þess að hægt verði að sigrast á þess- um vágesti, og jafnframt til þess að ríkin þrjú geti end- urreist aftur samfélög sín í kjölfar þessara áfalla. Óttast er að nýr far- aldur sé í vændum}Ebólan snýr aftur H öfuðborgarsvæðið 2040 er áhugaverð og heildstæð fram- tíðarsýn sveitarfélaganna á höf- uðborgarsvæðinu um hvernig höfuðborgarsvæðið eigi að þróast næstu 25 árin. Áætlunin er óbindandi stefnumörkun sveitarfélaganna sjö um að stilla saman strengi í skipulagsmálum. Spár benda til að á þeim 25 árum sem horft er til muni íbú- um í sveitarfélögunum sjö fjölga um 70.000. Það er álíka fjöldi og býr í dag í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði til samans. Fjölgunin verður því mjög mikil, og myndi kalla á gríð- arlega uppbyggingu umferðarmannvirkja og kalla á 130 þúsund ný bílastæði ef fjölgun bíla myndi haldast í hendur við fólksfjölgunina. Mikil áhersla er þess vegna lögð á Borgarlínuna, há- gæða almenningssamgöngukerfi sem verður ætlað að tengja kjarna sveitarfélaganna. Sveitarfélögin vilja eðli- lega ekki verða risavaxin bílastæði og er vel að sjá þau taka höndum saman um að taka höfuðborgarsvæðið í átt frá fjölgun úthverfa yfir í að styrkja bæði núverandi út- hverfi og hverfi miðsvæðis. Hugmyndirnar sem settar eru fram eru í grunninn góðar, en skortir átakanlega tvennt. Borgarlínan á að styðjast annaðhvort við léttlestir, sem minna óneitanlega mikið á sporvagna, eða hraðvagna, strætisvagna sem „hugsa“ að sumu leyti eins og lestir – með fáum biðstöðvum og komast leiðar sinnar í umferð- inni óháð því hversu þung önnur umferð er. Í ljósi þess hversu langan tíma það tæki að koma upp léttlestakerfi á höfuðborgarsvæðinu – eins skemmtilegt og spennandi og það kynni að vera – þá er tími lestanna liðinn. Margar af bestu borgum heims, Vín, New York, London og París, styðjast að miklu leyti við lestasamgöngur. Þar er hins vegar margra áratuga hefð fyrir notkun lesta og byggð mun þéttari. Þéttingaráætlanir borgaryfirvalda í Reykjavík ganga vonandi eftir, sem mun skila betri byggð, en lestarsamgöngur eru eftir sem áður ekki raunhæfar, sérstaklega þegar hrað- vagnar gætu skilað nánast sama árangri, nema með mun minni tilkostnaði. Hinn veikleikinn í áætluninni er hversu mikið er horft til framtíðar með augum nútíð- ar. Í þessu samhengi er rétt að ítreka að áætl- unin tekur til 25 ára. Fyrir 25 árum var árið 1990. Davíð Oddsson var enn borgarstjóri og internetið var ennþá bara bóla. Maður hefði þurft vænan bakpoka til að bera allar þær græjur sem nú rúmast í vas- anum í formi snjallsíma. Eftir 25 ár er ekki ólíklegt að sjálfkeyrandi bílar muni hafa því sem næst gert ökumenn óþarfa ásamt bílastæðum, baráttunni gegn ölvunarakstri og hraðakstri í íbúðahverfum. Í áætluninni er sett fram það markmið að í lok þess tíma sem hún nær til verði hlutdeild almennings- samgangna í ferðum á höfuðborgarsvæðinu 12% og hlut- ur gangandi 30%. Þessi 30% eru ágætis markmið. Ef sjálfkeyrandi bílar verða á hinn bóginn búnir að ryðja sér til rúms væri rétt að færa þessi 12% í 70%, því enginn myndi vilja eiga og reka bíl sem stendur kyrr 95% líftíma síns þegar hann getur fengið lánað nokkurs konar öku- mannslausan leigubíl hvar og hvenær sem er. gunnardofri@mbl.is Gunnar Dofri Pistill Skammsýn framtíðarsýn STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Ingvar Smári Birgisson isb@mbl.is Hlutfall fólks sem skortirefnisleg gæði á Íslandilækkaði úr 6,6% í 5,5%milli áranna 2013 og 2014. Árið 2013 var þetta hlutfall á Íslandi það fimmta lægsta í Evrópu, á undan löndum eins og Danmörku, Þýskalandi og Hollandi, en aðeins Lúxemborg, Noregur, Svíþjóð og Sviss stóðu sig betur en Ísland hvað varðar hlutfall þeirra sem skortir efnisleg gæði. Þetta kemur fram í Hagtíðindum, fréttariti Hagstof- unnar. Kolbeinn Stefánsson, sérfræð- ingur í lífskjararannsóknum hjá Hagstofunni, segir að um sé að ræða langtímaþróun og að þetta sé kannski merki um að lífsgæði fari batnandi. Hann segir mælinguna ekki mjög næma fyrir snöggum breyt- ingum. Sem dæmi um það má nefna að ef fólk missir tekjur eitt árið dettur það niður fyrir lágtekjumörk en það býr ekki við neinn skort. Ef til vill hefur það lánstraust eða vara- sjóði sem það getur gengið á. Ef fólk er hins vegar lengi með lágar tekjur eykst skorturinn og það get- ur tekið tíma fyrir fólk að rétta sig af hækki tekjurnar, t.d. vegna þess að það þurfi að greiða niður skuldir. Öryrkjar þola mikinn skort Í Hagtíðindum kemur enn- fremur fram að þegar skortur er greindur eftir atvinnustöðu skeri ör- yrkjar sig úr, en árið 2014 skorti 23% þeirra efnisleg gæði. Þá sé áhyggjuefni að árið 2012 skorti 17,8% öryrkja efnisleg gæði og þró- unin sé því ekki í rétta átt. Skortur á efnislegum gæðum er tíðari meðal einstæðra foreldra og barna þeirra en hjá öðrum fjöl- skyldugerðum. Árið 2014 skorti 20,3% þessa hóps efnisleg gæði. Til samanburðar má nefna að hlutfallið var 4,6% á meðal þeirra sem bjuggu á heimilum tveggja fullorðinna og tveggja barna. Þá var hlutfallið nokkuð hátt á meðal fólks undir 65 ára aldri sem býr eitt á heimili, eða 15,1% segir í Hagtíðindum. Fólk eldra en 65 ára upplifir minnstan skort efnislegra gæða, eða aðeins 2,5%. „Eldra fólk kemur oft í heild sinni vel út í lífskjaramæl- ingum, að hluta til vegna þess að á ákveðnum æviskeiðum er róðurinn þyngri í þessum efnum. Þegar fólk er að eignast börn og koma sér upp heimili eru útgjaldaþarfir heim- ilanna mjög miklar, jafnvel þó tekj- urnar séu sæmilegar. Fólk sem er komið yfir 65 ára aldurinn hefur oft komið sér upp húsnæði og öðrum eignum. Þannig býr hátt í helm- ingur efsta aldursbilsins í skuld- lausu húsnæði. Oft minnkar út- gjaldaþörfin líka, fólk endurnýjar ef til vill föt ekki eins oft og hefur keypt sér húsgögn sem endast vel. Margt svona kemur saman og gerir það að verkum að jafnvel þótt lífeyr- isþegar hafi ekki háar tekjur búa þeir ekki endilega við skort,“ segir Kolbeinn. Lítill munur á kynjunum Lítill munur er á milli kynjanna, en hann fer þó minnk- andi. Árið 2014 lifðu 5,7% kvenna við skort en 5,3% karla, samanborið við 5,9% karla og 7,2% kvenna árið 2010. Kolbeinn segir að munurinn milli kynjanna, sem að hans sögn er varla tölfræðilega marktækur, skýr- ist mögulega af stöðu einstæðra mæðra, sem koma mjög illa út al- mennt séð, en einn af hverjum fimm einstæðum foreldrum skortir efn- isleg gæði. Þá er athyglisvert að sjáan- legur munur er á efnislegum skorti gæða eftir búsetu. Þannig falla 8,6% íbúa stærri bæja í þann flokk, en að- eins 5% íbúa á höfuðborgarsvæðinu og 3,9% fólks í dreifbýli. Dregur úr skorti á efnislegum gæðum Skortur á efnislegum gæðum eftir atvinnustöðu Heimild: Hagstofa 35 30 25 20 15 10 5 0 2004 2014 Í fullu starfi Atvinnulausir Eftirlaunaþegar Öryrkjar og langveikirNámsfólk% Þeir sem teljast búa við skort á efnislegum gæðum skil- greinast af því að búa á heimili sem þrennt af eftirfarandi á við um. Þeir sem búa á heim- ilum sem fernt af eftirfarandi á við um eru taldir búa við verulegan skort:  1: Hefur lent í vanskilum húsnæðislána eða annarra lána vegna fjárskorts á síðast- liðnum 12 mánuðum  2: Hefur ekki efni á að fara árlega í vikulangt frí með fjöl- skyldunni  3: Hefur ekki efni á kjöti, fiski eða sambærilegri græn- metismáltíð að minnsta kosti annan hvern dag  4: Getur ekki mætt óvænt- um útgjöldum (sem voru að upphæð 160 þúsund árið 2011)  5: Hefur hvorki efni á heimasíma né farsíma  6: Hefur ekki efni á sjón- varpstæki  7: Hefur ekki efni á þvotta- vél  8: Hefur ekki efni á bíl  9: Hefur ekki efni á að halda húsnæðinu nægjanlega heitu Hvað er skortur efnis- legra gæða? FORSENDURNAR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.