Morgunblaðið - 27.07.2015, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 27.07.2015, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 2015 Albert Kemp kleberg@simnet.is Franskir dagar voru haldnir í tuttugasta sinn á Fá- skrúðsfirði um helgina. Franskir dagar eru haldnir til minningar um veru franskra sjómanna við Ísland fyrr á öldum, en fulltrúar frá vinabænum Gravelines mæta á hverju ári og heiðra minningu sjómannanna, þar sem þeir leggja blómsveig að minnisvarða um látna sem hvíla í franska kirkjugarðinum á staðnum. Fulltrúar frá Fjarðabyggð eru einnig þátttakendur í athöfninni, en séra Jóna Kristín Þorvaldadóttir, sókn- arprestur, minntist þeirra sem hvíla í kirkjugarðinum og bæjarstjóri Fjarðabyggðar ásamt fulltrúa úr bæj- arstjórn Gravelines fluttu ávörp. Franska skútan Belle Poule lá við höfn á Fáskrúðsfirði og stóð áhöfn hennar heiðursvörð í kirkjugarðinum, en gestum gafst kostur á að skoða skútuna á sunnudag. Úr garðinum var svo skrúðganga að hátíðar- svæðinu við Tanga þar sem fram fóru ýmis skemmti- atriði. Hljómleikar, bíósýningar og myndlistarsýn- ingar voru víðsvegar um bæinn, en Sirkus Íslands var einnig á staðnum og var vel sóttur af gestum há- tíðarinnar. Franskir dagar voru formlega settir á föstudag, en Árni Johnsen stjórnaði þá brekkusöng á Búða- grund. Gestir hófu rækilega upp raust sína og sungu hátt og skýrt með Árna við varðeldinn. Setningunni lauk síðan með flugeldasýningu á miðnætti. Dag- skráin var þétt, en meðal annarra sem komu fram voru Leikhópurinn Lotta, Bjartmar og Bergrisarnir, Lalli töframaður, Jónas Sigurðsson og BMX bros. Harmonikkuunnendur hlýddu á hljóma nikk- unnar og dansleikir voru haldnir í Skrúði föstudags- og laugardagskvöld. Minningarhlaup um Berg Hall- grímssom var hlaupið auk maraþons, Fáskrúðsfjarð- arhlaupsins. Einnig var haldin hjólreiðakeppnin Tour de Fáskrúðsfjörður. Á sunnudag kom fólk saman í frönsku kapellunni og samverustund var haldin í kirkjunni. Veðrið á Fárskrúðsfirði var gott um helgina þrátt fyrir að hitastigið væri ekki hátt. Fólk hafði orð á því að aðgangseyrir fyrir sumar uppá- komur hefði verið hár og væri margt farið að minna á græðgi. Þó nutu bæjarbúar og aðrir hátíðarinnar vel, sem endranær. Látinna franskra sjómanna minnst á Fáskrúðsfirði  Franskir sjóliðar stóðu heiðursvörð í kirkjugarðinum Morgunblaðið/Albert Kemp Fáskrúðsfjörður Jón Ólafur Þorsteinsson lék á harm- onikku við athöfnina og franskir sjóliðar stóðu vörð. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Samtals 133 farþegaþotur lentu eða hófu sig til flugs frá Keflavíkurvelli á laugardaginn var, eða að meðaltali fimm og hálf þota á klukkustund. Það er ein þota á 11 mínútna fresti, að því er lesa má úr tölum um komur og brottfarir á vef flugvallarins. Mikið annríki var í móttökusal Keflavíkurflugvallar um fjögurleytið síðdegis á laugardag og streymdu farþegar út um komuhliðið. Mynduðust þá langar biðraðir við afgreiðslustöðvar bílaleiga, eins og sjá má á einni myndinni hér til hliðar. Samtals 28 leigubílar biðu þá á hlaðinu vestur af flugstöðinni. Norð- ur af flugstöðinni voru á þriðja tug hópferðabifreiða, þar með talið margar af stærstu gerð. Sagðist einn bílstjórinn ætla að fara með hóp í níu daga hringferð um landið. Breiður af bílaleigubílum voru þar á planinu og var ein fjölskyldan að koma sér fyrir í stórum húsbíl. Slík er umferðin orðin á Kefla- víkurflugvelli yfir háannatímann að á vefsíðu vallarins hefur verið birt til- kynning þar sem brýnt er fyrir far- þegum að mæta tímanlega vegna mikillar umferðar. Metið fellur með reglulegu bili Segir þar að nú gangi í garð hver metvikan á fætur annarri og að ann- ríkið sé mest snemma morguns, frá kl. sex til hálfátta, undir hádegið, frá kl. níu til ellefu, síðdegis, frá klukkan þrjú til hálffimm, og undir miðnætt- ið, frá klukkan hálfellefu til tólf á há- degi. Þá séu fimmtudagar, föstudag- ar og laugardagar annasömustu dagar vikunnar. Er því mælst til þess að farþegar mæti tveimur og hálfum til þremur tímum fyrir brott- för. Unnið er að stækkun komusalar- ins norðanmegin í flugstöðinni og hefur til dæmis verslun 10-11 verið flutt á nýjan stað. 133 farþegaþotur á einum degi  Ellefu mínútur liðu að meðaltali milli þess að þota lenti eða tók á loft á Keflavíkurflugvelli á laugardag  Vegna mikils álags eru farþegar beðnir um að innrita sig í flug með nokkurra klukkustunda fyrirvara Ljósmyndir/Baldur Arnarson Lyklarnir sóttir Langar biðraðir mynduðust hjá afgreiðslustöðum bílaleiga á Keflavíkurflugvelli. Gott að mæta snemma » Maður sem Morgunblaðið ræddi við sagði dóttur sína ekki hafa þurft að bíða lengi eftir innritun á laugardaginn. » Þau feðgin komu rétt fyrir klukkan fimm aðfaranótt laugardags eða tveimur tímum og þremur stundarfjórðungum fyrir brottför. » Sé miðað við að 150 farþeg- ar hafi að meðaltali verið í far- þegaþotunum 133 sem lentu eða tóku á loft frá Keflavíkur- flugvelli á laugardaginn var, fóru samtals tæplega 20 þús- und farþegar um flugvöllinn þann daginn. » Til samanburðar voru íbúar á Akureyri 18.191 talsins hinn 1. janúar síðastliðinn. Atvinnuskapandi Hátt í 30 leigubílstjórar biðu eftir farþegum fyrir utan flugstöðina á laugardaginn var. Á ferð Þetta fólk var nýlent. Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Nokkrar bæjarhátíðir fóru fram um helgina, en þær fóru allar vel fram og voru vel sóttar af bæjarbúum og að- komufólki. Tónleikarnir Bræðslan fóru fram á Borgarfirði eystra, en að sögn Magna Ásgeirssonar, eins skipu- leggjenda hátíðarinnar, var hún frið- sæl og tókst vel til. „Í þau ellefu skipti sem tónleikarnir hafa verið haldnir hefur ekki komið upp eitt einasta lögreglumál,“ segir hann. Meðal listamanna sem komu fram á hátíðinni voru Valdimar, Prins Póló og Bubbi Morthens. Áætlað er að færri hafi tekið þátt í hátíðinni í þetta skiptið en áður, en í ár voru þar um 2.500 manns. Mærudagurinn var haldinn hátíð- legur á Húsavík á laugardag. Hátíðin var stytt í einn dag í ár eftir kvart- anir heimamanna vegna umfangs há- tíðarinnar síðustu ár. Að sögn skipu- leggjenda heppnaðist nýja fyrirkomulagið vel og um 3.000 manns tóku þátt í hátíðarhöldunum. Í Grundarfirði var hátíðin Á góðri stund haldin um helgina. Skipuleggj- endur áætla að um 3.000 manns hafi heimsótt bæinn þegar mest lét, en það er töluverð fjölgun frá fyrra ári. Bræðslan Bubbi Morthens kom fram á tónleikunum ásamt hljómsveitinni Dimmu. Meðal annarra flytjenda voru Valdimar, Prins póló og Ensími. Hátíðir fóru vel fram um helgina  Stóráfallalaus og skemmtileg helgi í Grundarfirði, á Borgarfirði eystra og Húsavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.