Morgunblaðið - 27.07.2015, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 2015
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is HEYRNARSTÖ‹IN
Snjallara heyrnartæki
Beltone First™
Nýja Beltone First™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu.
Beltone First gengur með iPhone 5s, iPhone 5c, iPhone 5, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi.
Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
Ókeypis
heyrnarmælingsíðan 2004
Vefþjóðviljinn sagði litla sögu álaugardag sem er umhugsunar
virði: „Nú dynja auglýsingar á
landsmönnum: Bótaskrárnar eru
komnar út. Kaupið bótaskrárnar!
Tryggingastofnun sendir frá sérlista yfir hæstu bótaþega í
hverju kjördæmi og fréttamenn
lesa þá
upp.
Engin
laga-
heimild er fyrir því að senda þetta
út en það er gert samt, og enginn
fettir fingur út í það, af ótta við að
vera talinn vinur bótaþega.
Fjölmiðlar vinna svo upp úrbótaskránum. Þeir birta lista
yfir hæstu atvinnuleysisbótaþega,
hæstu örorkubótaþega, hæstu
vaxtabótaþega, hæstu barnabóta-
þega og svo framvegis.
Þeir fáu sem mótmæla þessu ogbenda á að hér sé fjallað opin-
berlega um viðkvæm persónuleg
málefni fá þau svör að í fyrsta lagi
eigi þetta að vera opinberar upplýs-
ingar, þar sem bótagreiðslurnar
komi úr sameiginlegum sjóðum.
Fólk sem borgi skatta eigi rétt á að
vita í hvað skattarnir fara. Í öðru
lagi er sagt að birting bótaskránna
sé mikilvæg í baráttunni gegn bóta-
svikum. Menn þori ekki að þykjast
vera atvinnulausir en vinna samt
svart, ef þeir vita að bótaskráin
verður birt.
Ef þessi rök duga ekki er þvíbætt við að fjárhagslegar upp-
lýsingar séu ekkert viðkvæmar
upplýsingar, nema menn hafi eitt-
hvað að fela.
Og þess vegna halda bótaskrárn-
ar áfram að koma út.“
Væri ekki eitthvað bogið við birt-ingu bótaskránna? En skatt-
skránna?
Lítil saga um
bótaskrár
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 26.7., kl. 18.00
Reykjavík 11 skýjað
Bolungarvík 12 heiðskírt
Akureyri 10 skýjað
Nuuk 7 skýjað
Þórshöfn 11 skýjað
Ósló 12 skýjað
Kaupmannahöfn 16 skýjað
Stokkhólmur 17 alskýjað
Helsinki 18 skýjað
Lúxemborg 17 skúrir
Brussel 13 skúrir
Dublin 12 skúrir
Glasgow 13 skúrir
London 15 skýjað
París 12 alskýjað
Amsterdam 15 skúrir
Hamborg 18 léttskýjað
Berlín 18 heiðskírt
Vín 25 léttskýjað
Moskva 26 heiðskírt
Algarve 25 heiðskírt
Madríd 37 heiðskírt
Barcelona 28 léttskýjað
Mallorca 30 léttskýjað
Róm 27 léttskýjað
Aþena 31 léttskýjað
Winnipeg 27 léttskýjað
Montreal 22 alskýjað
New York 30 léttskýjað
Chicago 27 skýjað
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
27. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:19 22:51
ÍSAFJÖRÐUR 3:58 23:22
SIGLUFJÖRÐUR 3:40 23:06
DJÚPIVOGUR 3:42 22:27
Ökumaður bifreiðar sinnti ekki
stöðvunarmerkjum lögreglu í fyrri-
nótt fyrr en hann nam staðar við
Geirsnef og óð
þar út í sjó og
hugðist synda
brott undan
lögreglunni.
Sneri hann þó
til baka eftir
áskoranir lög-
reglu.
Var piltur-
inn, sem var á
tvítugsaldri,
færður á lögreglustöðina til blóð-
sýnatöku og svaf þar úr sér vímuna.
Sömu nótt handtók lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu karlmann á þrí-
tugsaldri vegna líkamsárásar. Var
karlmaður á fimmtugsaldri fluttur á
slysadeild meðvitundarlaus eftir
árásina. Vitni tjáðu lögreglu á vett-
vangi að fórnarlamb árásarinnar
hefði ítrekað áreitt gerandann, en
engin vitni voru þó að átökunum
sjálfum. Sá slasaði mun hafa komist
til meðvitundar.
Hjá lögreglunni á Akureyri er
kynferðisbrot til rannsóknar. „Ég
get staðfest að svona mál er til rann-
sóknar,“ sagði Ragnar Kristjánsson,
varðstjóri hjá lögreglunni á Akur-
eyri. Vildi hann ekki tjá sig að öðru
leyti né um það hvenær umrætt mál
hefði komið upp.
Reyndi
að flýja
Lögreglan Miklar
annir voru um helgina
Þyrla Landhelgisgæslunnar var köll-
uð út þegar klukkuna vantaði tíu mín-
útur í þrjú aðfaranótt sunnudags til að
sækja veikan einstakling í Húsafell.
Var læknir með í för, eins og venja
er í útköllum sem þessum, en þyrlan
lenti í Reykjavík stuttu síðar eða
klukkan tuttugu mínútur yfir fjögur
og var viðkomandi fluttur á Borgar-
spítalann.
Samkvæmt upplýsingum frá spítal-
anum hefur einstaklingurinn nú hald-
ið til síns heima og reyndist ekki al-
varlega veikur.
Í fyrrinótt var einnig tilkynnt um
neyðarblys. Var tilkynnandi einnig
staddur í Húsafelli og taldi sig hafa
séð neyðarblys á lofti í átt að Arnar-
vatnsheiði. Samkvæmt upplýsingum
frá lögreglu reyndist eingöngu um
flugeld að ræða og ekkert neyðar-
ástand.
Gæslan Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti veikan mann í Húsafell í fyrri-
nótt og flutti á spítala þar sem hann náði bata og er horfinn til síns heima.
Neyðarblys reynd-
ist vera flugeldur