Morgunblaðið - 27.07.2015, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 27.07.2015, Qupperneq 10
Opið: 8 :00-18 :00 mánud . til fim mtud. 8:00-1 7:00 föstud aga Er bílrúðan brotin eða skemmd? Við erum sérfræðingar í bílrúðuskiptum og viðgerðum á minni rúðutjónum. Erum í samvinnu við öll tryggingafélög landsins. Stórhöfða 37 | 110 Reykjavík | Sími 586 1900 | framrudur@simnet.is | bilrudur.is Áratuga reynsla og framúrskarandi þjónusta 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 2015 Brynja Björg Halldórsdóttir brynja@mbl.is Guðrún Signý Gestsdóttirræðst ekki á garðinn þarsem hann er lægstur.Hún ákvað, aðeins 26 ára að aldri og nýútskrifuð sem snyrti- fræðingur, að stofna sína eigin snyrtistofu í hjarta Grafarvogs, sem ber heitið Afródíta eftir grísku feg- urðargyðjunni. Velgengnin hefur ekki látið á sér standa og Guðrún Signý er nær alltaf fullbókuð. Hún segir snyrtimeðferðir oft og tíðum afar persónulega þjónustu og því skipti öllu máli að við- skiptavinurinn sé afslappaður, líði vel og finni að hann hafi óskipta at- hygli snyrtifræðingsins. Guðrún Signý hóf nám í nagla- fræði í Snyrtiakademíunni árið 2007. Námið átti að standa yfir í eitt ár en Guðrún Signý lauk því á að- eins átta mánuðum þar sem hún þótti afburðanemandi. „Ég fékk að taka prófið strax og náði því. Eftir það fór ég að gera neglur fyrir keppendur í fitness en þær neglur eru almennt lengri og meira áber- andi en gengur og gerist. Ég gerði vissulega líka venjulegar eða hefð- bundnari neglur en margir fitness- keppendur leituðu til mín fyrir keppni.“ Í um tvö ár starfaði Guðrún Signý sem naglafræðingur. „Svo ákvað ég að ég vildi gera meira og fór í snyrtifræðina í Fjölbrautaskól- anum í Breiðholti. Ég vildi læra ým- islegt annað sem tengdist líkaman- um og bjóða upp á fjölbreyttari þjónustu, en ég hef mikinn áhuga á húðhirðu. Ég vildi líka leggja mitt af mörkum til að bæta sjálfsímynd Vill bæta sjálfsmynd viðskiptavinarins Athafnakonan Guðrún Signý Gestsdóttir opnaði snyrtistofu um leið og hún út- skrifaðist sem snyrtifræðingur, aðeins 26 ára að aldri. Hún á sér engu að síður dyggan kúnnahóp og er nær alltaf fullbókuð. Að hennar sögn skiptir nærgætni höf- uðmáli, sem og að viðskiptavinurinn sé afslappaður enda um mjög persónulega þjónustu að ræða sem fólk vilji ekki þiggja frá hverjum sem er. Morgunblaðið/Eggert Rúmgott Hægt er að setjast niður með kaffibolla fyrir snyrtimeðferðina. Morgunblaðið/Eggert Úrval Boðið er upp á vaxmeðferðir, nudd og margt fleira á Afródítu. Refinery29 er nýleg viðbót í lífsstíls- vefsíðuflóru alnetsins en yfirlýst markmið aðstandenda hennar er að vera „Besta nýja vefsamfélagið fyrir klárar, skapandi og fágaðar konur hvar sem er í heiminum.“ Hvort aðstandendum vefsíðunnar tekst það skal látið liggja milli hluta en vefsíðan lumar á ýmsum áhuga- verðum greinum um tísku, ferðalög, heilsu, kynlíf, vinnumarkaðinn og stjórnmál. Maður gæti þó þurft að grúska og „skrolla“ örlítið niður til að finna efni sem hæfir klárum og skapandi kon- um, eins og vefsíðan á að vera hönn- uð fyrir, því að á síðunni eru full- margar greinar um hvernig venjulegar konur geta hermt eftir Katy Perry, fengið fallegra hár, grennst um nokkur kíló, málað sig til að virðast yngri eða hvaða snyrtivör- ur þær verði að kaupa. Vefsíðan www.refinery29.com Vefsamfélag Þurfa klárar og skapandi konur að vera óaðfinnanlegar líka? Fyrir skapandi og klárar konur? Veitingastaðurinn Prikið stendur fyr- ir teikni&drykkjukvöldi eða „Drink and draw“ í kvöld, mánudagskvöld. Þar býðst þátttakendum að teikna myndir og fá í staðinn að kaupa veig- ar á lágu verði. Aðeins þarf að koma með penna en blöð verða á staðnum. Um er að ræða fimmta teikni- &drykkjukvöld Priksins en þema kvöldsins er internetið. Samkoman hefst klukkan níu í kvöld og stendur yfir til klukkan eitt. Prikið hefur staðið fyrir ríkulegri dagskrá nær alla daga í júlímánuði en hægt er að sjá alla viðburði undir við- burðinum „Júlí á Prikinu“ á fésbók. Teiknað á Prikinu Teikni- og drykkjukvöld Morgunblaðið/Ómar Prikið Teiknarar eru velkomnir. Allir eru meðvitaðir um slæm áhrif langtímasvefnleysis en nýleg rann- sókn sýnir að jafnvel ein svefnlaus nótt getur verið dýrkeypt. Rann- sóknin sem birt verður í Journal of Clinical sýndi að svefnleysi geti trufl- að dægursveiflur líkamans. Þátttak- endur í rannsókninni voru fimmtán karlar en þeir fengu fullan svefn í eina nótt og engan svefn í aðra nótt. Eftir að hafa vakað alla nóttina fór magn stresshormóna í blóði þeirra upp í hæstu hæðir, sem bendir til þess að ein svefnlaus nótt geti haft veruleg áhrif. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á að við erum afar lé- leg í að læra og að muna hluti eftir að hafa vakað alla nóttina. Að sama skapi er skammtímaminnið lélegt og viðbragðstíminn lengist. Rannsókn sem birt var í The Journal of Neuro- science leiddi í ljós að geta okkar til að greina á milli flókinna svipbrigða verður að nær engu þegar við fáum ekki REM-svefn, eða bliksvefn, um nóttina. Þetta getur leitt til þess að við komum óafvitandi illa fram við vini okkar. Svefnleysi Ein svefnlaus nótt dýrkeypt Morgunblaðið/Ernir Eyjólfsson Þreyta Svefnlaus nótt kallar á hræðilega þreytu daginn eftir. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.