Morgunblaðið - 27.07.2015, Page 11

Morgunblaðið - 27.07.2015, Page 11
Morgunblaðið/Eggert Stendur vaktina Guðrún Signý rekur snyrtistofuna Afródítu en hún segir Grafarvogsbúa hafa tekið sér afar vel. fólks. Mér finnst ótrúlega gaman að sjá hvað viðskiptavinurinn er glaður eftir upplífgandi snyrtimeðferð og hvað honum líður betur, bæði lík- amlega og andlega. Stundum þarf svo lítið til að gleðja fólk verulega. “ Hálfnuð með meistaranámið Snyrtifræðinámið gekk afar vel og Guðrún Signý fékk strax samn- ing hjá Paradís, sem er ein rótgró- nasta snyrtistofa Reykjavíkur. Um leið og samningurinn þar rann út hóf hún leit að hentugu húsnæði fyr- ir snyrtistofu sem hún fann svo í Hverafoldinni í Grafarvogi, eða Torginu, eins og verslunarmiðstöðin er stundum kölluð. Núna er hún hálfnuð með eins árs meistaranám í greininni sem hún tekur samhliða vinnu en hún út- skrifast um jólin. „Þetta er fjarnám þar sem áhersla er lögð á bókhald og rekstur fyrirtækja, svo sem allt sem tengist greiðslu launa og virðis- aukaskatti,“ útskýrir Guðrún Signý. Karlar vilja líka fallega fætur Aðspurð hvort það hafi verið áhættusamt að opna stofu strax eft- ir útskrift, svarar unga athafnakon- an: „Já, vissulega var það áhættu- samt en ég vissi að ég ætti dyggan kúnnahóp fyrir frá því að ég vann sem naglafræðingur. Frá því að ég opnaði hafa móttökurnar verið frá- bærar, framar vonum satt að segja. Reksturinn gengur virkilega vel.“ Hún segir konur á öllum aldri koma í Afródítu en einnig karla. „Mennirnir kaupa sér oftast fót- snyrtingu, sérstaklega í sumar. Þeir þurfa líka að vera með fallega fætur, eins og við konurnar. Konurnar sækja aftur á móti frekar í vax, litun og plokkun.“ Stór hluti viðskiptavin- anna er að hennar sögn íbúar í hverfinu en aðrir viðskiptavinir koma alls staðar að. Vont að vera stressuð í vaxi ,,Snyrtimeðferðir eru oft mjög persónuleg þjónusta þannig að fólk vill síður skipta um snyrtifræðing að óþörfu. Nærgætni skiptir öllu máli í þessu. Fólk vill ekki fara í vax, hvað þá brasilískt vax, til hvers sem er. Viðskiptavinurinn verður að vera af- slappaður og líða vel í kringum manneskjuna sem veitir honum jafnpersónulega þjónustu og þessa. Það er mjög slæmt að vera stressuð eða stressaður í vaxi enda verður meðferðin mun sársaukafyllri en ella,“ útskýrir hún. Hún leggur ríka áherslu á, að viðskiptavinurinn finni að hann hafi óskipta athygli hennar á meðan þjónustan er veitt. „Ég er alltaf ein með viðskiptavininum og ég læt aldrei annan viðskiptavin bíða frammi á meðan ég sinni viðkom- andi. Oft verður mikið áreiti á snyrtistofum þar sem margir snyrti- fræðingar starfa. Einn stór kostur við að starfa ein eins og ég geri, er að ég get verið fullkomlega ein með viðskiptavininum án þess að hann verði fyrir áreiti.“ „Nude-litir“ í tísku í sumar Að sögn Guðrúnar Signýjar eru svokallaðir „nude-litir“ eða „naktir litir“ mikið í tísku í sumar, sér í lagi ferskjulitir. Margir óski líka eftir kremum og litum án parabena. ,,All- ar snyrtivörur sem ég nota eru án parabena og öll krem eru viður- kennd af læknum,“ bætir hún við en snyrtivörurnar sem hún notar eru frá Nee Cosmetics í Mílanó og kremin eru frá Sothys. „Allir varalitir sem ég nota eru svokallaðir bb-varalitir sem þýðir að þeir næra varirnar í stað þess að þurrka þær eins og hefðbundnir varalitir og allur farði er súrefnis- farði sem þýðir að húðin nær að anda í gegnum farðann, hún fær á sig fallegan ljóma og farðinn dregur einnig úr línum í kringum augun. Förðunarvörurnar og kremin henta líka vel til að verja húðina fyrir dag- legu áreiti en þær innihalda allar sólarvörn. Þannig hafa allar snyrti- vörurnar annan tilgang en bara að gera okkur falleg,“ segir Guðrún Signý að lokum. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 2015 Sölustaðir: Útilíf • Intersport • Hagkaup • Lyfja • Sportís • Afreksvörur • Crossfit Reykjavík GÁP Hjólabúðin • Kría Hjól • TRI • Jói Útherji • Örninn golfverslun • Sjúkraþjálfun Íslands Sonus viðburðir (Sonus Events) í samstarfi við Coke og Viking standa fyrir hátíð um versl- unarmannahelgina sem þeir skipu- leggjendur segja þá stærstu á „fasta Suðurlandinu“. Dagskráin verður fjölbreytt þannig að flestir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hún hefst föstudagskvöldið 31. júlí með pub-quiz í félagsheimilinu á Flúðum en í kjölfarið leikur hljómsveitin Á móti Sól fyrir dansi á sama stað. Laugardagurinn fer af stað kl. 14 með furðubátakeppni, en Laddi kemur fram í félagsheimilinu um kvöldið og Stuðlabandið stendur fyrir dansleik. Á sunnudeginum kemur Leikhóp- urinn Lotta fram um daginn en um kvöldið stýrir Grétar Örvarsson fjöldasöng í Torfdalnum. Hátíðinni lýkur svo klukkan 23 á sunnudags- kvöldið með dansleik Sniglabands- ins í félagsheimilinu. Frekari upp- lýsingar á SnapChat: fludirumverslo Verslunarmannahelgin Morgunblaðið/Eggert Dansað Sniglabandið endar hátíðina. Stuð á Flúðum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.