Morgunblaðið - 27.07.2015, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 208. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
1. Cecil fannst afhöfðaður og fleginn
2. Hvatt til kaupa en ekki viðgerðar
3. Ekki sama svartur rass og hvítur
4. Ástralar ættu sjálfir að drepa hval
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Strákarnir í Olga Vocal Ensemble
hafa verið á tónleikaferð um Ísland
síðan 21. júlí sl. og er hún núna rétt
hálfnuð. Í gær héldu þeir tónleika í
Tjarnarborg á Ólafsfirði og í kvöld
verða þeir með tónleika klukkan
18:00 í Iðnó.
Strákarnir hafa sungið saman síð-
an 2013 en þeir kynntust í Tónlistar-
skólanum í Utrecht er þeir voru allir í
söngnámi hjá Jóni Þorsteinssyni.
Þeir hafa sungið víða um Evrópu, t.d.
í Hollandi, og farið í tónleikaferð um
Frakkland.
Kvöldverðartónleikar
í Iðnó með Olga Vocal
Anna Jónsdóttir sópran er órög við
að syngja á óhefðbundnum stöðum.
Hún hefur haldið tónleika í hellum,
gömlum lýsistanki og tekið upp plötu
í Akranesvita.
Hún er nú á tónleikaferð um landið
en meðal staða sem Anna hefur
sungið á og mun syngja á má nefna
Klettshelli í Vestmannaeyjum sem er
einungis hægt að komast að frá sjó,
Kirkjuna í Dimmuborgum, verksmiðj-
una á Hjalteyri, Stefánshelli í Borgar-
firði, Grímsey, Vatnshelli á Snæfells-
nesi o.fl. stórbrotna staði.
Á morgun, þriðjudag,
verður hún með tónleika í
Garðskagavita klukkan
20:00 og flytur sígild ís-
lensk þjóðlög sem allir
ættu að þekkja, t.d.
Krummi svaf í klettagjá.
Þá hvetur hún tónleika-
gesti til að taka undir og
skapa þannig skemmti-
lega samverustund.
Tónleikar í Garð-
skagavita á morgun
Á þriðjudag Hæg breytileg átt eða hafgola og skúrir, einkum
sunnantil síðdegis. Skýjað með köflum norðanlands og úrkomulít-
ið. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast vestanlands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustlæg eða breytileg átt, yfirleitt 3-8
m/s. Bjartviðri norðvestan- og vestanlands, en annars skýjað. Úr-
komulítið, en líkur á síðdegisskúrum suðvestantil. Hiti 6 til 15 stig.
VEÐUR
„Ég hlakka til að komast í
gang og vonast eftir því að
fá að spreyta mig eitthvað
að ráði það sem eftir lifir
tímabilsins. Rosenborg spil-
ar bara með einn framherja
og hann er markahæsti
maður tímabilsins,“ sagði
Matthías Vilhjálmsson með-
al annars í samtali við
Morgunblaðið eftir að hafa
skrifað undir samning við
norska stórliðið Rosenborg
í gær. »1
Í samkeppni við
Söderlund
Signý Arnórsdóttir úr Keili og Þórður
Rafn Gissurarson úr GR sigruðu á Ís-
landsmótinu í höggleik sem lauk á
Garðavelli á Akranesi í gær að lokn-
um 72 holum við frá-
bærar aðstæður. Bæði
urðu þau Íslands-
meistarar í fyrsta
skipti í höggleiknum
þrátt fyrir að
hafa verið í
hópi bestu
kylfinga
landsins á
undan-
förnum ár-
um. »2
Fyrstu sigrar Signýjar
og Þórðar Rafns
ÍA vann afar mikilvægan sigur á
Leikni í fallbaráttuslag liðanna í
Pepsi-deild karla í knattspyrnu í gær-
kvöldi. Íslandsmeistarar Stjörnunnar
unnu sinn fyrsta heimasigur í sumar
þegar Eyjamenn kíktu í heimsókn í
fyrsta leiknum undir stjórn Ásmund-
ar Arnarssonar en auk þess höfðu
Fjölnismenn betur gegn Fylki í miðju-
slag deildarinnar. » 6,7,8
Fyrsti heimasigur Ís-
landsmeistaranna
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Þetta eru undraverðar heimildir
um lífskjör fólks og þær sýna ná-
kvæma mynd af samfélagsháttum,“
segir Már Jónsson, prófessor í
sagnfræði við Háskóla Íslands, en
hann hefur nú gefið út bók sem ber
heitið Sterbúsins fémunir framtöld-
ust þessir. Í henni birtast nærri því
hundrað af þúsundum varðveittra
dánarbúsuppskrifta.
Verkið tekur til 96 einstaklinga á
aldrinum 21 til 81 árs og bjuggu
þeir í öllum sýslum landsins á tíma-
bilinu 1722 til 1820. Kemst þetta
nærri því að vera 2% tiltækra
gagna, en val á dánarbúum tók að
sögn Más mið af miðbiki sam-
félagsins.
„Ég reyndi í byrjun að velja
fremur fátækara fólk til þess að
sýna lífskjör alþýðunnar og vildi þá
um leið hafa fólk frá hverri sýslu.
Síðan fannst mér vera þörf á
ákveðnum samanburði og setti því
einnig inn nokkra vel stæða ein-
staklinga,“ segir Már og vísar þar
meðal annars til efnaðs bónda,
prestsdóttur á stórbýli og rekt-
orsfrúar í Reykjavík.
Gamall hattur með gati
Eignir nýlátins fólks voru lögum
samkvæmt skráðar vegna arfskipta
og má rekja elstu íslensku skipta-
bókina aftur til ársins 1717. Var
það Cornelius Wulf, landfógeti og
sýslumaður í Gullbringusýslu, sem
útbjó hana, en síðar voru það
hreppstjórar og í
vissum tilfellum
sýslumenn sem sáu
um skráninguna.
Var á þessum
tíma skráð allt frá
bústofni og verk-
færum til fatnaðar
og bóka og í vissum
tilfellum matvæli.
Þannig gefst les-
andanum færi á að skyggnast með
einstökum hætti inn í líf fólks.
Nefna má sem dæmi að í dánarbúi
karlmanns sem bjó að Syðri-
Fljótum í Meðallandi og lést árið
1765 mátti finna gallaða kistu,
gamla sessu, þrjú orf og sex hrífur,
sálmabók og gamlan hatt með gati.
Konungi og erfingjum í hag
„Það átti að skrá allt, en það eru
þó dæmi um vanhöld. Í þeim til-
fellum var það gagnrýnt og í kjöl-
farið gengið á fólk, því kerfið gerði
ráð fyrir því að þetta væri unnið af
nákvæmni vegna hagsmuna erf-
ingja. Eftir árið 1790, þegar kom-
inn var erfðaskattur, var það einnig
konungi og um leið ríkissjóði í hag
að þetta væri rétt skráð,“ segir
Már.
Gölluð kista, orf og sálmabók
Hulunni svipt af
fornum dánarbú-
um Íslendinga
Morgunblaðið/Golli
Sterbú Már Jónsson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, hefur nú gefið út bók sem ber heitið „Sterbúsins fé-
munir framtöldust þessir.“ Í henni birtast nærri því hundrað af þúsundum varðveittra dánarbúsuppskrifta.
Már Jónsson sagnfræðingur segir
markmið bókar sinnar einkum
vera að vekja athygli á þessum
gögnum um eftirlátnar eigur
fólks, sem meðal annars
varða horfna lífshætti og
menningu fólks.
Í fyrra gaf hann út annað
verk sem nefnist Hvítur jök-
ull – snauðir menn. „Er þar
fjallað um dánarbú fólks
sem bjó á litlu svæði í upp-
sveitum Borgarfjarðar fyrir
miðja 19. öld,“ segir Már.
Þar birtast skrár yfir eignir alls
11 karla og 16 kvenna að við-
bættu því sem vitað er um lífs-
hlaup þeirra.
Spurður hvort hægt sé að
skoða gögn sem þessi alls staðar
á landinu kveður Már já við. „Það
er alveg sama hvar gripið er nið-
ur – það er hægt að skoða hvern
einasta hrepp út frá þessum
gögnum.“ Sem sérlega áhugavert
svæði nefnir hann Grímsey, sókn-
ir undir Jökli og áhrifasvæði
Skaftárelda eftir 1783.
Til eru mörg áhugaverð svæði
HVÍTUR JÖKULL – SNAUÐIR MENN