Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2007, Page 36
á veruleikanum eins og hann er. Þvert á móti snýst opinberunin um Guð
sem kemur til samfundar við okkur og sem við getum aðeins beðið eftir í
“von sem er virk”.”1^ Moltmann vill hverfa frá guðsímynd sem er annað
hvort “innerweltlich” eða “ausserweltlich”, annað hvort í heiminum eða
utan w'dheiminn. Astæðan er sú að “Guð vonarinnar (Róm. 15,13) er ekki
í manninum eða yfir honum heldur á undan honum”, hann er framundan,
í hinu ókomna.111 Hann gagnrýnir í þessu samhengi tilvistarguðfræðina og
tilvistarguðfræðingana (Tillich og Bultmann m.a.): hann vill ekki færa til
klukkuna þannig að “hinir síðustu tímar” séu hér og nú (Bultmann). Guð
er ekki “í dýptinni” (Tillich), hann er ekki “hið eilífa nú”, ávallt nærri með
einum eða öðrum hætti.
Þrátt fyrir eindregna áherslu Moltmanns á Guð í framtíðinni er viðhorf
hans í reynd þannig að hvort tveggja eigi við: Guð er hér og nú og einnig
í hinni ókomnu framtíð. Guð er ekki æðsti veruleiki (summum bonum)
heldur æðsti möguleiki. Eskatológían vísar til líðandi stundar um leið og
hún bendir fram til hins ókomna.17 En vísar Moltmann hér á óútfyllta ávís-
un til framtíðarinnar? Svar hans er á þá leið að framtíðin verði nútíð í
sögunni, í þeim samskiptum sem Guð á við manninn í framvindu sög-
unnar.
Sagan um brottförina af Egyptalandi er lykilsaga úr Gamla testamentinu
eins og upprisusagan er í Nýja testamentinu. Exódus-sagan hefur hvað eftir
annað orðið tákn frelsishreyfinga í hinum vestræna heimi, allt frá
bændauppreisninni á 16. öld til mannréttindahreyfinga blökkumanna á
síðari áratugum. Enn áhrifameiri í þessu efni er upprisusagan; í henni er
ekki aðeins á dagskrá frelsi og lausn undan kúgun og örbirgð, heldur einnig
frelsi undan veldi dauðans og syndarinnar.18 Upprisuvonin er ekki von til
hins handanlæga, þess sem er handan lífs og dauða, heldur von til sannrar
mennsku hér og nú andspænis veldi dauðans. Samkvæmt Nýja testament-
Gustavo Gutierrez, A Theology of Liberation, SCM Press, London 1974 (1. útg. í Lima 1971),
s. 217.
16 Júrgen Moltmann, Umkehr zur Zukunft, Gutersloh 1970 s. 12, hér skv. Horst Poehlmann, Die
Gottesdenker, s. 128.
17 Horst Poehlmann, Die Gottesdenker, Reinbek bei Hamburg 1984, s. 128-129.
18 Horst Poehlmann, Die Gottesdenker, Reinbek bei Hamburg 1984, s.129.