Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2007, Side 41
er liðið eða yfirstandandi, hann snýst um það hvers við getum vænst og
hvað við eigum að gera - í krafti slíkrar vonar.26 Það skiptir miklu máli
að mati Moltmanns að halda sýninni á upprisuna sem heimsslitaviðburði,
eskatologíu, framtíðin er framtíð Guðs. Þessi heimsslitakenning hefur í för
með sér afleiðingar fyrir breytni mannsins. Guðfræði vonarinnar leiðir til
siðfræði vonarinnar.
Nú er komið að spurningunni hvernig þessi Guð framtíðarinnar sýni
sjálfan sig, í hverju felast fyrirheiti hans eða loforð hans? Fyrirheiti Guðs
eru þríþætt hjá Moltmann: 1) fyrirheiti um réttlæti Guðs, 2) um lífið vegna
upprisunnar frá dauðum 3) og fyrirheiti um konungdæmi Guðs í nýrri
heildarmynd tilvistarinnar.27
Réttlæti Guðs er þess vegna tjáning á trúfesti Guðs við samfélag, sem
hann tekur í sátt þótt það hafi skilið sig frá honum, fyrirgefur því þótt það
hafi gert uppreisn gegn honum og setur allt í samt lag á ný. Guð fyrirheit-
anna er einnig framtíð lífsins, í upprisu Jesú sýnir hann sig eins og sá einn
sem hefur vald yfir valdi dauðans - en í biblíulegum skilningi felst dauðinn
öðru fremur í aðskilnaði frá Guði. I upprisunni er þessi lífsfirring mannsins
yfirunnin. Gjöf lífsins merkir með öðrum orðum möguleika á því að lifa
í návist Guðs. Loks er fyrirheit Guðs um konungdæmi hans og frelsi
mannsins. Fyrirheit Guðs (promissio Dei) snýst að þessu leyti um kærleiks-
veldi Guðs yfir öllu lífi, samlíðun með öllum sem þjást í einum eða öðrum
skilningi eða eru svipt rétti sínum. Það snýst um lausn hinna föngnu, það
er sannleikur fyrir alla þá sem svíkja sjálfa sig og lifa í blekkingum. Þessi
fyrirheiti eru óuppfyllt svo lengi sem einhver býr við þjáningu og kvöl í
óendurleystum heimi.
Upprisan er ekki atburður / heiminum heldur handa heiminum og lýkur
þar með upp nýrri sýn á hina sögulegu framvindu. Um þetta efni fjallar
fjórði meginkaflinn í Guðfræði vonarinnar, um eskatologíu og sögu. Meg-
26 Geiko Muller-Fahrenholz, The Kingdom and the Power. The Theology ofjiirgen Moltmann. Lon-
don 2000, s. 59-60, s. 51.
27 Jiirgen Moltmann, Theologie der Hoffhung. Untersuchungen zur Begriindung und zu den Kon-
sequenzen einer christlichen Eschatologie. 14. útg. Göttingen 1997, s. 185. Sjá einnig: Júrgen
Moltmann, “The Liberation of the Future”, í: Richard Bauckmann (útg.), God Will Be All in
All. The Eschalogy ofjiirgen Moltmann. London, New York 1999, s. 279 o.áfr.
39