Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2007, Síða 43
hann helgar sig baráttunni fyrir réttlæti, friði og mannúð. En þessi hugtök
kalla einnig á vitund um andstöðu og samlíðun. Andstöðu gegn því sem
hamlar komu guðsríkis og samlíðun með hverjum þeim sem líður í þessum
heimi. Stofnanir samfélagsins eiga að starfa í þessum anda og sama máli
gegnir um sérhvern einstakling sem hefur heyrt boðskapinn um kross-
festingu og upprisu. Hann talar í þessu samhengi um “skapandi eftirfylgd”
í anda Ernst Wolf.^0
7. Hinn krossfesti Guð31
Onnur bók sem vakti athygli og féll í sama jarðveg og Guðfræði vonarinnar
var bókin Hinn krossfesti Guð sem kom út átta árum síðar, 1972. Hún
vakti verðskuldaða athygli. I bók sinni The Kingdom and the Power. The
Theology ofjiirgen Moltmann hefur nemandi Moltmanns frá Bonnárunum
lýst áhrifum þessarar bókar með eftirminnilegri sögu. Það var í nóvember
1989 sem sérsveit hersins í E1 Salvador braut sér leið inn í stofnunina
Centro Monsero Romero og felldi þá sex guðfræðiprófessora Miðameríku
háskólans í San Salvador, sem bjuggu þar, og voru allir jesúítar. Einnig
skutu þeir húsvörðinn til bana og fimmtán ára dóttur hennar.
Einn hinna felldu var Juan Ramón Moreno. Af ástæðum sem ekki verða
skýrðar hafði hermaðurinn dregið líkama hans úr innri garðinum inn í
íbúðaálmu prófessoranna og sett líkið inn í herbergi sem tilheyrði Jon
Sobrino sem var erlendis þegar þetta gerðist. Menn spurðu hvort skila-
boðin, með því að setja líkið í herbergi hans, hefðu verið þau, að hann hafði
einnig verið á skotlistanum. Þegar líkið var fært inn í herbergið féll lítil
bók af hillu og lá í blóði Ramóns þegar að var komið.
Þá bók gefur að líta í litlu safni sem var komið upp til minningar um
30 Ernst Wolf, Sozialethik. Theologiscbe Grundjragen, 2. útg. Göttingen 1982, bls. 167: “Nachfolge
- ich erinnere daran — bleibt durch den Ruf zum Nachfolgen bestimmt, und schöpferische
Nachfolge meint das Wissen darum, dass beim Vollzug des Nachfolgens der Phantasie der
Liebe, ihrem Erfindungsmut, ihrer Bereitschaft zum Risiko eine massgebliche Funktion
zukommt. Sie hat kein Programm, keine Rezepte, wohl aber einen bestimmten, durch Gottes
Ja zum Menschen bestimmten Auftrag.”
31 Jiirgen Moltmann, Der gekreuzigte Gott, 1972.
41