Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2007, Blaðsíða 61
kraftur Brock leita samskipta, tengsla eða opnunar gagnvart öðru fólki.
Bæði hugtökin hafa með kenosis að gera, þ.e. að deila með sér og að auka
öðrum kraft. „Sá eða sú sem gerir annað fólk heilt,“ segir Brock, „gerir það
ekki til þess að auka eigin kraft eða vald heldur með því að efla, auka og
deila valdi. Þegar slíkum krafti er deilt opinberar hjartað hið heilaga.“2^
Með því að undirstrika frumkvæði konunnar og þátt hennar í eigin
lækningu tekur Ward að sumu leyti undir sjónarmið Brock. Engu að síð-
ur gefur hann ólíkum valdastöðum Jesú og konunnar með blóðlátin eng-
an gaum. Ward sneiðir hjá spurningu Jesú og hugsanlegu hiki og óvissu
sem hún kann að túlka. Hann skautar í snatri yfir samskipti konunnar og
Jesú því að hann telur veikindi konunnar meira og minna henni sjálfri að
kenna. Hann túlkar blóðlát í 12 ár þannig að konan hafi „lokast inni“ í
eigin veruleika, hafi orðið óendanlega upptekin af sjálfri sér. Samkvæmt
Ward hefur konan leitað ýmissa meðala hjá óprúttnum aðilum til lausnar
lífsvandans. Túlkun Ward er að vissu leyti keimlík ritskýringu Ágústínus-
ar sem ég hef þegar getið að því leyti að áherslan er öll á „kristun" kon-
unnar. Hún hefur að vísu frumkvæði að eigin lækningu en er að öðru leyti
í hlutverki þiggjandans.
Brock er eins og flestir kvennaguðfræðingar andsnúin þeirri rökvísi sem
tíðkast hefur í vestrænni hugsun, a.m.k. frá Aristótelesi, að flokka konur
með hinu jarðneska, efnislega og óvirka en karla með hinu himneska, and-
lega og virka. í stað þessara tengsla sem hjá Ward eru næstum öll á annan
veginn - frá Kristi til konunnar, byggist nálgun Brock á gagnvirkum tengsl-
um milli Jesú og konunnar. Þessa nálgun Brock tel ég komast nærri því
sem Deleuze og Guattari boða um sundurleit tengsl rísómsins, þ.e. hinar
opnu og iðandi flæðilínur mergðarinnar sem liggja í allar áttir.
Sálarlegar hindranir sem koma í veg fyrir að erótísk orka flæði frjáls á
milli fólks, kallar Brock „hjartasár“ (brokenheartedness). Hún túlkar sög-
una um konuna með blóðlátin sem tvöfalt hjartasár. Hjarta konunnar er
sært að dómi Brock vegna veikinda hennar og félagslegrar einangrunar sem
slíkir kvenlegir krankleikar höfðu í för með sér. Brock telur að Jesús þjá-
ist líka af hjartasári af því að hann er gyðingur sem getur ekki yfirstigið
29 Brock, Journeys by Heart, 82.
59