Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2007, Side 85
Kjarnahugtök fyrstu þriggja greina Mannréttindayfirlýsingarinnar berg-
mála sterkt í kynverundarréttindunum, sbr. frelsi, sjálfræði, friðhelgi og
jafnræði. Þessi réttindi, sem skoða má sem griðarétt, eru jafnframt grund-
völlurinn að gæðaréttinum: að geta lifað heilbrigðu lífi sem kynvera og
skiptir í engu hvort maður er samkynhneigður eða gagnkynhneigður. Að-
alatriði framsetningar kynverundarréttindanna af hálfu WAS er tengingin
milli mannréttinda og heilbrigðis. Á bak við fullvissu WAS um mikilvægi
þessara tengsla býr skilningur á manninum sem kynveru.50 Sameiginleg-
ur skilningur WAS, WHO og PAHO á kynverund manneskjunnar er sá
að kynverund sé hluti persónuleikans og tilheyri grunnþörfum sérhverrar
manneskju.51 Það að vera manneskja felur alltaf í sér að vera kynvera. Kyn-
verund er því ekki hægt að einangra firá öðrum þáttum lífsins. Af þessu
má ljóst vera að kynverund (sexuality) og kynlíf (sexual activity) er ekki
algerlega það sama. Með því að tala um kynverund er tekið til stærra sviðs
manneskjunnar en kynlífssviðsins í þröngri merkingu. Tal um kynverund
manneskjunnar vísar til hins sameiginlega með öllum mönnum, til þess
sem allar mannverur eiga sameiginlegt sem er hæfnin til að leita ástar,
tengsla, hlýju og nándar. Sérhverri manneskju ber frelsi til að blómstra sem
kynvera. Kynverundarréttindin eru tækið til að tryggja það. Styðjandi og
réttlátt samfélag viðurkennir kynverundarréttindi allra manna og lítur á
þau sem hluta grundvallar mannréttinda.
Aukna áherslu á samtengingu þessara tveggja atriða, þ.e. heilsu og
mannréttinda má einnig glöggt greina hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni
(WHO). I fréttabréfi WHO frá 20 0452 er skýrt frá því að sérstöku kast-
ljósi verði í framtíðinni beint að kynheilsu á alþjóðavettvangi.53 Skilning-
ur WHO á kynheilsu byggir á skilgreiningu stofnunarinnar á heilsu, sem
slíkri. WHO lítur þannig á að líkamlegir, andlegir, félagslegir og tilfinn-
50 Skilgreiningar á kynverund mannsins (human sexuality) hafa slípast til undanfarna áratugi á
þingum og samráðsfundum WAS, WHO og PAHO (Pan American Health Organisation).
51 Sjá nánar Sólveig Anna Bóasdóttir „Kristinn mannskilningur. Kynverund - kynheilsa - kyn-
verundarréttindi" í Ritröð Guðfrœðistofhunar. Tileinkuð dr. Birni Björnssyni sjötugum. 24 (2007)
237-254.
52 Progress in Reproductive Health Research 2004, No 67, s. 1 (http://www.who.int/reproductive-
health/hrp/progress/67.pdf)
53 Kynheilsa felur í sér marga málaflokka og verða þeir ekki taldir upp sérstaklega hér.
83