Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2007, Síða 94
ég til grundvallar fjórar prédikanir, tvær úr kirkjupostillunni og eina úr
húspostillunni. Þessar prédikanir hafa óneitanlega náð mestri útbreiðslu og
mótað túlkun kynslóðanna, ekki síst presta. Þar að auki verður ein pré-
dikun frá 31. október 1529 skoðuð sérstaklega þegar Lúther fjallar nær ein-
göngu um tveggjaríkjakenninguna. Aðrar prédikanir verða hafðar til hlið-
sjónar. Að lokum verður gerð tilraun til að draga upp skýringarmyndir af
tveggjaríkjakenningunni.
1. Hlutverk stjórnvalda
Segja má að viðfangsefni Lúthers í ritinu Um veraldlegt vald sé tvíþætt.
Annars vegar reynir hann að skilgreina hlutverk ríkjanna beggja, hins and-
lega og hins veraldlega, hins vegar fjallar hann um hlutverk kristins manns
í báðum ríkjunum. Bygging ritsins segir sína sögu um efnistökin. Ritið
skiptist í þrjá meginhluta, fyrsti hlutinn fjallar um nauðsyn veraldlegs valds
og hvert hlutverk þess sé,1^ annar hlutinn fjallar um hversu langt hið ver-
aldlega vald nær, um aðgreiningu veraldlegs og andlegs valds,15 og loks er
þriðji hlutinn nokkurs konar furstaspegill, því að hann fjallar um eðli og
starf stjórnandans.16
Lúther skiptir fyrsta hlutanum í sex liði þar sem hann fjallar um (1)
nauðsyn veraldlegs valds, (2) tvö svið mannlegs lífs, (3) tvær manngerðir,
(4) ríkin tvö, (5) stöðu hins kristna á hinu veraldlega sviði og (6) um hinn
kristna og beitingu veraldlegs valds. Lúther sundurliðar ekki annan hluta
með undirköflum, en hann víkur að mörkum veraldlegs valds og greinir
eðli trúarinnar sem telst til hins andlega ríkis. f þriðja hlutanum koma aft-
ur fyrir sundurliðaðir undirkaflar, en þar fjallar Lúther um (1) hvers eðlis
starf kristins fursta sé, (2) hvaða reglur honum beri að virða, (3) afstöð-
una til stríðsreksturs og (4) skiptingu auðs sem er fenginn með vafasöm-
um hætti. A byggingu ritsins sést skýr greinarmunur á hinu veraldlega og
andlega ríki og að Lúther aðgreinir ákveðið hin tvö ólíku valdsvið en vík-
ur sér þó ekki undan að fjalla um tengsl þeirra. Hann rekur ekki fleyg á
14 WA 11, 246-261.
15 «5111,261-271.
16 WA 11, 271-280.
92