Morgunblaðið - 01.07.2015, Page 2

Morgunblaðið - 01.07.2015, Page 2
Brynja B. Halldórsdóttir brynja@mbl.is Alvarleg staða kemur upp hvað hjartaaðgerðir varðar á Landspítal- anum gangi uppsögn þriggja lykil- starfsmanna eftir. Þetta staðfestir Páll Matthíasson, forstjóri LSH, en báðir lífeindafræðingarnir sem starfa við hjarta- og lungnavél ásamt hjúkr- unarfræðingi hafa sagt upp störfum. Þá sögðu tíu lífeindafræðingar á sýkladeild upp störfum í gær, af 26 stöðugildum. Uppsagnir þeirra taka gildi eftir þrjá mánuði, standi þeir við uppsagnirnar. Páll greinir frá því að erlendir sér- fræðingar muni leysa nokkra sér- hæfða starfsmenn af í nokkrar vikur í sumar, þannig að hægt verði að framkvæma nauðsynlegustu hjarta- aðgerðirnar. Þetta sé þó dýrt úrræði og aðeins gert í neyð. „Þegar starfs- menn segja upp er aðeins þrennt í stöðunni. Auðvit- að vonumst við eftir því að menn nái sáttum en ef það gengur ekki eftir verðum við að auglýsa eftir nýju fólki. Gangi það ekki heldur neyðumst við til að draga úr þjónustu. Eðli málsins samkvæmt verðum við að hætta að veita vissa þjónustu, fáist ekki fólk til þeirra starfa.“ Hann heldur áfram: „Lífeinda- fræðingar á spítalanum eru mjög sérhæft fagfólk, ekki síst þeir sem voru að segja upp á sýkladeild. Þetta er ekki fólk sem maður tínir af trján- um. Það sama gildir um annað fag- fólk. Um er að ræða sérmenntað fólk, oft með fágæta fagmenntun.“ Aðspurður hvort til standi að fá er- lenda sérfræðinga til að leysa af fleiri starfsmenn en lífeindafræðinga sem starfi við hjarta- og lungnavél, svarar Páll: „Í tilviki þessara lykilstarfs- manna verða fengnir erlendir stað- genglar í nokkrar vikur en að svo komnu máli stendur ekki til að gera það vegna annarra starfa.“ Þá segir hann ekki búið að ákveða til hvaða lausna verði gripið eftir að erlendu sérfræðingarnir ljúka störf- um. „Við erum ekki farin að skipu- leggja aðgerðir í þaula. Enn er tími til stefnu fyrir menn að ná sáttum og tími fyrir spítalann að bregðast við eftir bestu getu ef í óefni stefnir.“ Staðfestar uppsagnir á Landspít- alanum vegna kjaradeilna á þessu misseri eru 285 talsins, þar af 235 hjúkrunarfræðingar. Páll gerir þó þann fyrirvara að tölurnar gætu ver- ið hærri þar sem ekki sé víst að allar tilkynningar um uppsagnir hafi ratað enn til yfirstjórnar spítalans. „Fagfólk ekki tínt af trjánum“  Hjartaaðgerðir á LSH í uppnámi, gangi uppsagnir eftir, segir forstjóri spítalans  Erlendir stað- genglar verða fengnir í nokkrar vikur í sumar  285 staðfestar uppsagnir en geta þó verið fleiri Staðfestar uppsagnir á Landspítala Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga Félag lífeindafræðinga Aðgerðasvið 81 Rannsóknarsvið 21 Flæðisvið 24 Skurðlækningasvið 3 Geðsvið 14 Ljósmæðrafélag Íslands Kvenna- og barnasvið 22 Kvenna- og barnasvið 2 Lyflækningasvið 49 Félag geislafræðinga Skurðlækningasvið 45 Rannsóknarsvið 24 Alls 235 Alls 50 Samtals 285 Heimild: LSH Páll Matthíasson 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2015 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Hvað er betra en að gera hlé á hjólreiðatúrnum og koma við í ísbúð? Þessir tveir félagar úr Vest- urbænum gripu til þess ráðs að minnsta kosti og ekki annað að sjá en að þeir hafi nóg til að spjalla um í góða veðrinu. Eftir því sem veðrið er betra, þeim mun meira er að gera í ísbúðunum. Morgunblaðið/Þórður Vinir á spjalli með ís við höndina Ef marka má skráningu Lækna- félagsins virðast íslenskir læknar vera að flytja frá útlöndum aftur heim til Íslands. „Heimfluttir læknar frá mars til júní á þessu ári voru 24 en brottfluttir tíu,“ segir Þorbjörn Jónsson, formaður Læknafélags Ís- lands. Hann setur þó fyrirvara við tölurnar þar sem um er að ræða hausatalningu á þeim sem hafa skráð sig í eða úr félaginu á þessu tímabili en langflestir starfandi læknar séu skráðir í félagið og félagaþátttaka sé því ákveðinn spegill. „Tölurnar benda til þess að hinn nýi kjarasamningur frá janúarmán- uði síðastliðnum hafi jákvæð áhrif á vilja lækna til að flytja heim til að starfa,“ segir Þorbjörn. Hann segir þó mikilvægt að gefa þessu tíma enda er stór ákvörðun að flytja milli landa. „Þetta þarf allt að smella og getur tekið 1-2 ár að snúa þessu við. Ég veit samt um menn sem hafa spekúlerað í þessu því launakjörin eru nú betri, en við heyr- um ekki af öllum sem eru að skoða þetta eða stefna á að flytja heim.“ brynja@mbl.is Fjölgun í Læknafélaginu bendir til heimkomu lækna  24 heimfluttir læknar í mars-júní en 10 fluttu brott Morgunblaðið/Golli Læknar Það tekur tíma að fá brottflutta lækna til að snúa aftur til landsins en tölur Læknafélagsins gefa góðar vísbendingar. Hundrað skjálftar mældust á tæp- um tveimur tímum í jarðskjálfta- hrinu sem gekk yfir Reykjanes í gærkvöldi. Stærstu skjálftarnir sem búið var að yfirfara voru nærri 4 að stærð. Þeir fundust í Reykja- nesbæ og einnig fékk Veðurstofan tilkynningar ofan af Akranesi. Samkvæmt upplýsingum Veður- stofunnar hófst jarðskjálftahrina um 4 kílómetra norðvestur af Geir- fugladrangi á Reykjaneshrygg um klukkan 21 í gærkvöldi. Heldur dró úr henni á ellefta tímanum en henni var þó ekki lokið. Ekki er óalgengt að slíkar hrinur gangi yfir á þess- um slóðum samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar. helgi@mbl.is Jarðskjálftar fund- ust upp á Akranes Fimm skemmtiferðaskip komu til Reykjavíkur í gær og hafa þau sjaldan eða aldrei verið jafn mörg við bryggju í einu, að því er fram kemur á vef Faxaflóahafna. Með skipunum voru alls nærri 5 þúsund farþegar og áhafnar- meðlimir um 2.200 talsins. Tvö skipanna lágu í Gömlu höfninni, tvö við Skarfabakka og eitt við Korn- garð. Stærsta skipið var Celebrity Eclipse, 122 brúttólestir að stærð. Tvö skipanna voru hér yfir nótt. Lystiskip ekki verið fleiri í einu Brynja B. Halldórsdóttir brynja@mbl.is Tuttugu og átta frumvörp urðu að lögum á Alþingi í gær en þingfundur stóð enn yfir þegar Morgunblaðið fór í prentun. Á ellefta tímanum mælti Eygló Harðardóttir fyrir frumvarpi um húsnæðisbætur. Að sögn Helga Bernódussonar, skrifstofustjóra Alþingis, var ákveð- ið að gera hlé á þingfundi frá klukk- an sjö til tíu í gærkvöldi til þess að gefa efnahags- og viðskiptanefnd færi á að vinna að tveimur frumvörp- um um afnám hafta. Eftir að þeim fundi lauk hélt þingfundur áfram og einnig verður þingfundur fyrrihluta dags í dag. Eldhúsdagsumræður eru svo á Alþingi í kvöld en stefnt er að þinglokum á föstudag. Þau lagafrumvörp sem urðu að lögum í gær eru lög um náttúru- vernd, um lax- og silungsveiði, um meðferð elds og varnir gegn gróð- ureldum, lyfjalög, um fjölda hæsta- réttardómara, siglingalög, vopnalög, lög um varnir gegn dýrasjúkdómum, um meðferð einkamála, um inn- stæðutryggingar, efnalög og fleiri. 13 frumvörp að lögum í dag Í dag verða að öllum líkindum greidd atkvæði um þrettán frum- vörp, m.a. um þjóðlendur og ákvörð- un marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, einnig lög um viðurlög við brotum á fjármálamarkaði, úrskurð- arnefnd velferðarmála, menntamála- stofnun, innflutning dýra, verndar- svæði í byggð og lögræðislög að því er lýtur að réttindum fatlaðs fólks. 28 lög urðu til á Alþingi í gær  Þingfundir halda áfram í dag

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.