Morgunblaðið - 01.07.2015, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2015
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
„Það er allt brjálað að gera. Nú er sá tími árs þegar
allt er sem betur fer á fullu,“ segir Sævar Skapta-
son, framkvæmdastjóri Ferðaþjónustu bænda.
Hann segir að gisting sé víða uppbókuð, t.d. á Mý-
vatnssvæðinu, Suðurlandi og við Gullfoss og Geysi.
„Þó að ekki sé fullbókað á svæðum utan við þessa
allra vinsælustu staði er þar vel bókað,“ bætir hann
við.
Ferðaþjónusta bænda býður upp á 5.500 uppá-
búin gistirými sem skiptast niður á 184 bæi um allt
land. Sævar segir að dagar komi í sumar þegar
ferðamenn geti ekki fundið laust herbergi á Suður-
landi. „Það hefur verið mikil breyting á síðustu ár-
um. Eftirspurnin er gífurleg og það koma dagar
þegar slegist er um herbergin,“ segir hann, en gisti-
rýmum á skrá hjá ferðaþjónustunni hefur fjölgað
um 130 til 150 á milli ára á undanförnum árum.
Öll gistirými verða uppbókuð á Höfn
Óðinn Eymundsson, hótelstjóri Hótel Hafnar,
tekur í sama streng og Sævar. Bókunarstaðan á
Hótel Höfn er mjög góð fyrir sumarið.
„Sumarið fer rosalega vel af stað. Það er mikil
aukning í júní,“ segir Óðinn, en aukningin í júní
nemur 30 prósentum á milli ára. Segir hann það því
fyrirséð að hótelið verði uppbókað út sumarið.
Þrátt fyrir stóraukið framboð af gistirými á Höfn
að undanförnu telur Óðinn að allt gistipláss í
sveitarfélaginu verði uppbókað fram yfir háanna-
tímann. „Það er mikil fjölgun í sýslunni. Mikið er
um heimagistingu, ýmsir hafa verið að stækka við
sig og eins hafa verið nýbyggingar,“ segir Óðinn. Á
Hótel Höfn eru 68 herbergi og geta allt að 137 gest-
ir gist á hótelinu miðað við fulla nýtingu. Óðinn seg-
ir að fullyrða megi að yfir 90 prósent þeirra sem
dvelji á Hótel Höfn séu erlendir ferðamenn.
Slegist um herbergin þegar mest er
Hótelhaldari á Höfn í Hornafirði segir aukninguna í júní nema 30 prósentum frá sama mánuði í fyrra
Bókunarstaðan mjög góð í bændagistingu á Suðurlandi, Mývatnssvæðinu og við Gullfoss og Geysi
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Gistirými Á vinsælustu ferðamannastöðunum er eftirspurn eftir gistirými meiri en framboðið.
Gert er ráð fyrir að íbúðir og smærri
verslunar- og þjónustueiningar rísi á
öðrum tveggja reita á lóð Ríkis-
útvarpsins við Efstaleiti. Niður-
stöður dómnefndar í hugmynda-
samkeppni um notkun lóðarinnar
voru kynntar í gær og varð tillaga
Arkþings hlutskörpust. Tillagan
gerir ráð fyrir að lóðinni sé skipt í
tvo meginreiti.
Reykjavíkurborg og Ríkis-
útvarpið undirrituðu samkomulag
þess efnis að efnt yrði til hugmynda-
samkeppninnar um uppbyggingu á
59 þúsund fermetra svæði við Út-
varpshúsið í mars síðastliðnum.
Á sama tíma var undirritaður
samningur um að borgin leigði 2.600
fermetra í Útvarpshúsinu en þangað
mun Þjónustumiðstöð Laugardals
og Háaleitis flytjast.
Sigtryggur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri þjónustumiðstöðv-
arinnar, segir vinningstillöguna gera
ekkert nema gott.
„Það er mjög gott fyrir okkur að
hafa þjónustumiðstöðina í miðju
íbúðahverfi. Eini hugsanlegi gallinn
við staðsetninguna er að þjónustu-
miðstöðin er í jaðri byggðar,“ segir
hann en bætir við að með tillögunni
sem bar sigur út býtum sé sá vandi
minni en ella.
Til stóð að þjónustumiðstöðin
flyttist í Útvarpshúsið í maí sl. en
Sigtryggur segir að sökum skorts á
iðnaðarmönnum hafi þurft að fresta
flutningum fram í júní til að byrja
með. Þá reyndist ekki heldur hægt
að finna iðnaðarmenn svo flutn-
ingum hefur verið seinkað þar til 4.
september næstkomandi.
Íbúðir og verslanir munu rísa
Ljósmynd/Arkþing
Efstaleiti Tillaga Arkþings bar sigur úr býtum í hugmyndasamkeppni.
Niðurstöður dómnefndar í hugmyndasamkeppni um lóð RÚV kynntar
Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis flytur í Útvarpshúsið í september
Reykjavík var hlýjasti staður landsins í gær og
veður afar þægilegt til útivistar. Þrjár veður-
stöðvar í borginni mældust með mesta hitann,
allar upp undir 20 stig. Hiti fór hæst í 19,7 gráð-
ur á Geldinganesi, 19,4 á Reykjavíkurflugvelli
og loks mældust 18,7 gráður við Korpu. Þessar
hitatölur eru nokkuð frá meti ársins til þessa.
Það er rakið til Húsafells þar sem 22 stig mæld-
ust síðastliðinn föstudag. Trausti Jónsson veð-
urfræðingur segir í bloggi sínu að þetta þyki í
lakara lagi í enda júnímánaðar en hafi þó tvisvar
verið lakara á öldinni. Til að gleðja þá lands-
menn sem vilja hafa það notalegt í sumarfríinu
getur hann þess að oftast mælist hæsti hiti ársins
síðar á árinu og þá væntanlega í júlí eða ágúst.
Morgunblaðið/Eggert
Notalegast á þremur stöðum í borginni
Tæplega 20 stiga hiti mældist á veðurstöðvum í Reykjavík í gær
Bandalag há-
skólamanna
(BHM) á ekki von
á öðru en að
Hæstiréttur muni
í dag skipa gerð-
ardóm til að
ákveða kaup og
kjör félags-
manna. Þetta
segir Þórunn
Sveinbjarnar-
dóttir, formaður BHM.
„Lögin sem sett voru á verkfall
BHM þann 13. júní kveða á um skip-
un gerðardóms,“ segir hún og vísar
til ákvæðis laganna þess efnis að hafi
samningsaðilar ekki undirritað
kjarasamning fyrir 1. júlí 2015, skuli
Hæstiréttur tilefna þrjá menn í
gerðardóm til að ákveða kaup og
kjör. Bendir Þórunn á, að ætli menn
að fara eftir lögunum, verði skipa
gerðardóm.
Svo sem kunnugt er, stefndi BHM
íslenska ríkinu vegna sömu laga á
þeim grunni að þau brytu gegn
stjórnarskrá, Mannréttindasáttmála
Evópu og samþykktum ILO. Á
morgun verður fyrirtaka í málinu
málflutningur á mánudag.
brynja@mbl.is
BHM væntir
gerðardóms
Skipaður í dag,
sé farið að lögum
Þórunn
Sveinbjarnardóttir
Óðinn Eymundsson á Hótel
Höfn segir helsta vandamálið
við fjölgun ferðamanna vera
starfsmannamál. Erfitt sé að
manna í stöður á hótelinu og
því þurfi hótelið að sækja
starfsfólk frá útlöndum.
„Við höfum verið að taka
krakka frá Norðurlöndum
sem hefur tekist mjög vel,“
segir hann en norrænu ung-
mennin koma hingað til lands
með tilstuðlan norræna
vinnumarkaðsverkefnisins
Nordjobb.
Starfsmenn
frá útlöndum
LÚXUSVANDI Á HÖFN
Vegna kulda og
þurrka í vor er
ólíklegt að öll
lón Landsvirkj-
unar fyllist í
sumar. Mögu-
legt er að Lands-
virkjun þurfi að
draga úr fram-
boði á raforku á
skammtíma-
markaði ef stað-
an í lónunum
verður undir væntingum í haust.
Kuldinn í vor olli því að vorleys-
ing af hálendinu hófst seint og var
hægt framan af. Er þetta ein versta
vorkoma í rekstrarsögu vatnsmiðl-
unar Landsvirkjunar, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu.
Hvort og hvenær lónin fyllast
ræðst meðal annars af veðurfari og
jökulbráðnum næstu vikna og mán-
aða. Mestar líkur eru á að Hálslón
fyllist en litlar líkur á að lón á
Þjórsársvæði nýtist til fulls.
helgi@mbl.is
Ólíklegt að lón á
Þjórsársvæði fyllist
Foss Hálslón
ætti að fyllast.