Morgunblaðið - 01.07.2015, Síða 13

Morgunblaðið - 01.07.2015, Síða 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2015 „Vegurinn er stórhættulegur,“ segir Ólafur Gunnarsson um Hvítár- bakkaveg, en hann rekur gistiheimili á Hvítárbakka. „Mölin í veginum er alls ekki rétt. Þeir ferðamenn sem hafa komið hingað eru skíthræddir eftir að hafa keyrt þennan veg, því að bíllinn dans- ar svo rosalega ofan á mölinni,“ segir Ólafur og bætir við að slæmt ástand vegarins hafi áhrif á viðskiptin og í fyrra hafi ferðamenn velt bíl á veg- inum. Morgunblaðið flutti á laugardag- inn frétt af Jóni Friðriki Jónssyni, á Hvítárbakka, sem hafði sett upp skilti við veginn þar sem hann varaði fólk við veginum. Magnús V. Jóhannsson, svæðis- stjóri vestursvæðis hjá Vegagerðinni, segir ekki standa til að gera neitt annað en hefðbundið viðhald á Hvít- árbakkavegi. „Vegurinn er örugglega leiðinlegur en malarvegir eru það oft á tíðum. Ég hef ekki keyrt veginn ný- lega, en hann er líklega grófur og það rýkur úr honum. En hann er ekki verri en víða annars staðar.“ Á stuttum vegkafla sunnan við Borgarfjarðarbrú hefur bik blætt upp úr veginum sem getur fest við bíla og dekk. Vegna hita hefur ekki verið hægt að leggja yfirlagningu á veginn. Pétur G. Matthíasson, upp- lýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, seg- ist ekki eiga vona á að hiti tefji fram- kvæmdir mikið. Þá segir hann að þegar sólarhiti sé mikill sé hætta á blæðingum. „Það er minna um það núna en áður, þær voru algengari þegar við notuðum terpentínu sem mýkingarefni í klæðninguna.“ Hvítárbakkavegur ekki verri en víða annars staðar Varúðarskilti Fólk er varað sérstaklega við Hvítárbakkaveginum.  Vegagerðin segir viðhald vegarins vera hefðbundið Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Tveir karlmenn, fæddir 1996 og 1998, hafa verið ákærðir fyrir sér- staklega hættulega líkamsárás á annan mann. Annar þeirra er einn- ig ákærður fyrir brot gegn lög- reglumanni, árás á stúlku og aðra sérstaklega hættulega líkamsárás. Í ákærunni eru mennirnir báðir ákærðir fyrir sérstaklega hættu- lega líkamsárás, með því að hafa í félagi aðfaranótt laugardagsins 16. ágúst 2014 ráðist að karlmanni, sá yngri með því að slá hann með krepptum hnefa í andlitið þannig að hann féll í götuna og í kjölfarið spörkuðu ákærðu báðir ítrekað í höfuð hans þar sem hann lá í göt- unni. Afleiðingar líkamsárásar- innar urðu þær að nef hans aflag- aðist, framtönn brotnaði og hann hlaut mar á vinstra eyra og eymsli yfir kinnbeinum. Ákærðir fyrir sér- lega hættulega árás Kringlunni 4c – Sími 568 4900 Útalan er hafin 40% afsláttur af ö llum vör um Flott föt fyrir öll tækifæri Bæjarráð Sandgerðisbæjar kom saman til fundar í gær en þar var m.a. bókað um skýrslu Rögnu- nefndarinnar svonefndu. Vekur það furðu bæjarráðs að nefndin hafi ekki haft núverandi millilanda- flugvöll á Miðnesheiði sem einn val- kosta við skoðun á flugvallar- kostum á höfuðborgarsvæðinu. „Bæjarráð telur rétt að ef flytja á innanlandsflug úr Vatnsmýrinni liggi beint við að næst verði gerð nákvæm úttekt á því að flytja inn- anlandsflugið á núverandi alþjóða- flugvöll í stað þess að fara strax í að fullkanna flugvallarskilyrði í Hvassahrauni eins og stýrihóp- urinn leggur til. Það er eðlileg krafa að slík úttekt sé gerð áður en hafist er handa við að leggja nýjan flugvöll frá grunni á svæði sem er einnig að hluta til á Suðurnesjum og einungis í um 15 mínútna akst- ursfjarlægð frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar í Sandgerði. Bæjaryfir- völd eru tilbúin til að eiga aðkomu að slíkri úttekt, enda stærstur hluti alþjóðaflugvallarins í landi Sand- gerðisbæjar,“ segir m.a. í bókun bæjarráðs, en það telur rétt að fela starfandi bæjarstjóra að kalla eftir kynningu á efni skýrslu Rögn- nefndar fyrir sveitarstjórnarfólk í Sandgerðisbæ. Vildu skoða Miðnesheiði  Undrandi á Rögnu- nefnd í Sandgerði Morgunblaðið/ÞÖK Leifsstöð Sandgerðingar vilja að Keflavíkurflugvöllur sé skoðaður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.