Morgunblaðið - 01.07.2015, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2015
Canopy, nýtt vörumerki í eigu
Hilton International, mun opna
sitt allra fyrsta hótel í Reykjavík í
mars 2016. Hótelið verður á
Hljómalindarreitnum í miðbæ
Reykjavíkur og mun flokkast til
lúxushótela.
Upphaflega Icelandair hótel
Hótelið mun heita Canopy
Reykjavik | City Centre og mun
Icelandair hótel sjá um rekstur-
inn. Framkvæmdir eru þegar
hafnar, en auk þess sem núver-
andi húsum á reitnum verður
breytt verður nýbygging reist á
milli þeirra. „Í upphafi fram-
kvæmda við Hljómalindarreitinn
lögðum við upp með að þarna risi
nýtt Icelandair hótel,“ er haft eftir
Magneu Þóreyju Hjálmarsdóttur,
framkvæmdastjóra Icelandair hót-
ela, í tilkynningu frá Ice-
landairhotels.
Njóta góðs af markaðs-
setningu áfangastaðarins
„Þegar okkur hinsvegar bauðst
tækifæri til að opna fyrsta hótel
sinnar tegundar í heiminum hér í
Reykjavík, og njóta þar góðs af
gríðarlegri markaðssetningu
áfangastaðarins um heim allan
gegnum öflugt sölukerfi Hilton
International, þá þurftum við ekki
að hugsa okkur tvisvar um,“ er
haft eftir Magneu.
Þá telur hún mikinn ávinning í
að auka fjölbreytni í gistiflóru
borgarinnar frá því sem nú er og
fjölga erlendum vörumerkjum.
„Samstarfsaðilar okkar erlendis
leggja mikinn metnað og jafn-
framt fjármuni í að markaðssetja
þetta nýja vörumerki á komandi
misserum og árum,“ segir hún.
Í tilkynningu segir að Canopy
sé nýtt lífsstílsvörumerki ætlað
fyrir þá sem vilji aukin gæði í
gistingu og veitingum, en jafn-
framt að upplifa sérkenni hvers
áfangastaðar á hótelinu. Því verð-
ur lögð lykiláhersla á sterka skír-
skotun í íslenskt mannlíf, menn-
ingu og hönnun í innviðum
hótelsins, en á sama tíma upp-
fylltar kröfur Canopy um gæði
gistingar og þjónustu.
115 herbergi
Canopy Reykjavik | City
Centre verður með 115 her-
bergjum að meðtöldum svítum.
Hótelið verður í samræmi við hug-
myndafræði Canopy þar sem mikil
áhersla er lögð á hönnun. Í bak-
garði verður veitingarekstur. Á
efstu hæð verða bar og veitinga-
staður ásamt sérstakri matsölu.
Haft er eftir Patrick Fitzgibbon,
aðstoðarframkvæmdastjóra þróun-
ar hjá Hilton International, að Ís-
land sé orðið einn vinsælasti
áfangastaður heims, þar sem
ferðamannafjöldi hafi þrefaldast
undanfarin 15 ár. Þess vegna sé
viðeigandi að fyrsta hótelið undir
merki Canopy verði opnað á Ís-
landi.
Gary Steffen, aðalframkvæmda-
stjóri Canopy hjá Hilton, segir að
mikil vinna hafi verið lögð í að
rannsaka þarfir og væntingar við-
skiptavina á öllum stigum þegar
hugmyndafræði Canopy var mót-
uð. Hann segir Canopy vera fullt
tilhlökkunar að opna hótelið hér á
landi.
Hótel í eigu
Hilton rís
Lúxushótel undir merkjum
Canopy rís á Hljómalindarreitnum
Hótelið Sjá má af þessari tölvugerðu mynd hvernig byggingin mun falla inn
í götumyndina. City Center og Icelandair munu sjá um reksturinn.
Morgunblaðið/Júlíus
Hljómalindarreitur Nýtt hótel á vegum Hilton-hótelkeðjunnar mun heita Canopy Reykjavík. Framkvæmdir eru
þegar hafnar auk þess sem núverandi húsum verður breytt. Verður nýbygging reist á milli þeirra.
– fyrir dýrin þín
01.–05. júlí
TAX FREE Á BÚRUM OG BÆLUM
Smáralind • Kringlunni • Reykjanesbæ • Sími 511 2022 • www.dyrabaer.is