Morgunblaðið - 01.07.2015, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 01.07.2015, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2015 Ásgeir Þór Óskarsson rak Gúmmíbátaþjónustuna í Reykjavík ítæp 40 ár. „Ég er fæddur og uppalinn í Reykjavík og átti fyrstheima í Þverholtinu og síðar á Lokastíg 23. Eftir gagnfræða- skólapróf fór ég í Samvinnuskólann einn vetur.“ Ásgeir starfaði fyrst í Gleriðjunni en síðan fór hann til sjós í tvö ár og var á varðskipum. Hann hóf síðan störf við skoðun og eftirlit á gúmmíbjörgunarbátum og rak Gúmmíbátaþjónustuna eins og áður sagði. „Ég var mjög heppinn með starfsfólk og líkaði vel samstarfið við útgerðarmenn og sjómenn.“ Helstu áhugamál Ásgeirs eru ferðalög, innanlands og utan, og kór- söngur. Ég hef sungið með Karlakór Reykjavíkur, Skagfirsku söng- sveitinni og nú með Söngvinum í Kópavogi. Eftir starfslokin hef ég stundað sund og pútt auk þess að vera eldheitur Valsmaður og ég sæki flesta leiki Vals.“ Ásgeir hefur búið í Kópavogi í 40 ár og er sannur Kópavogsbúi. Hann er giftur Svanlaugu Torfadóttur leikskólakennara og á þrjár dætur, Ingu Ósk, Jóhönnu og Guðmundu. Barnabörnin eru sex talsins. Ásgeir er nýkominn úr afmælisferð. „Hún heppnaðist mjög vel. Ég var í Árósum og borgin er lífleg, þar var margt að skoða og alltaf gaman að koma til Danmerkur.“ Í dag ætlar Ásgeir að dvelja í sumarbústað og grilla með fjöl- skyldunni. Hjónin Ásgeir og Svanlaug voru sl. sumar á Ítalíu, þar sem keyrt var um og dvalist í Cremona, en Ítalía er í sérstöku uppáhaldi hjá þeim. Eldheitur Valsari og sækir flesta leiki Ásgeir Þór Óskarsson er áttræður í dag A rnar fæddist á Akureyri 1.7. 1965 og hefur verið búsettur þar alla tíð fyr- ir utan tvö ár er fjöl- skyldan bjó í Kaup- mannahöfn er hann var 4-5 ára: „Ég ólst upp á Eyrinni þar sem helstu leiksvæði þess tíma voru fjaran niður af Strandgötunni. Ömmur og afar voru reyndar virk- ir þátttakendur í uppeldinu fyrstu ár- in. Fyrst var ég mikið hjá móðurfor- eldrum og síðar bjó ég m.a. í eitt ár hjá ömmu og afa meðan foreldrar voru í Kaupmannahöfn við nám.“ Arnar var í Barnaskóla Akureyrar og Lundarskóla: „Framhalds- og há- skólaárin fóru nú frekar í það að njóta þess sem lífið hafði upp á að bjóða ungu fólki á þeim tíma fremur en stífa námsástundun. Ég stundaði að vísu nám í viðskiptafræði við HA en lenti svo í því eins og margir að ljúka aldr- ei lokaritgerðinni. Auk þess stundaði ég nám í blómaskreytingum í Dan- mörku, lauk prófum í því og starfaði við það í nokkur ár hjá ömmubróður mínum sem rak Blómabúðina Laufás á Akureyri áratugum saman.“ Starfsferillinn hjá Arnari hefur lengst af verið tengdur viðskiptum og sölumennsku enda kominn af kaupa- héðnum eins og hann segir sjálfur. Hann vann í verslun hjá afa og ömmubræðrum sínum og starfaði einnig við sölumennsku hjá fram- leiðslufyrirtækinu Glófa sem fram- leiddi vettlinga, sokka og ýmsar aðr- ar ullarvörur. Þessar vörur seldi Arnar víða um land. Hann hefur svo verið fasteignasali í 12 ár og starf- rækt eigin fasteignasölu sl. tvö ár. Arnar er virkur félagi í Oddfellow- reglunni og leikur golf þó hann segi Arnar Guðmundsson, löggiltur fasteignasali á Akureyri – 50 ára Stór hópur Arnar með systkinum sínum og foreldrum. Myndin er tekin við Gróðrarstöðina á Akureyri. Góðar stundir í stangveiði Veiðigrallarar Arnar með hópnum góða sem fer a.m.k eina ferð á sumri. Maren Dögg Guðbjartsdóttir og Jóhanna Dagrún Daða- dóttir söfnuðu 2.461 krónu með því að búa til háls- festar úr krabba- klóm sem þær seldu á tombólu í Neskaupstað. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.