Morgunblaðið - 01.07.2015, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 182. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
1. Týndur maður kominn í leitirnar
2. Gekk á Vigdísi Finnbogadóttur
3. Að veita karlmanni guðdómleg…
4. Áfall fyrir Hafnarfjörð
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tónlistarhátíðin All Tomorrow’s
Parties hefst á morgun á Ásbrú í
Keflavík og verður nú haldin í þriðja
sinn hér á landi. Dagskrá hátíð-
arinnar liggur nú fyrir og hafa tónlist-
armaðurinn CeaseTone og hljóm-
sveitin Caterpillarmen bæst í hóp
áður tilkynntra flytjenda sem sigur-
vegarar í keppni sem haldin var á
vegum ATP en valið á þeim var í
höndum hjómplötuútgáfunnar
Bedroom og Rásar 2. Þá liggur kvik-
myndadagskrá ATP fyrir og var
hljómsveitin Mogwai fengin til að
stýra henni, í tilefni af 20 ára afmæli
hljómsveitarinnar. Meðal þeirra kvik-
mynda sem sýndar verða á hátíðinni
eru American Movie, Don’t Look
Back, The Exorcist, Rollerball og Si-
lent Running. Af helstu flytjendum
hátíðarinnar má nefna Iggy Pop, Pu-
blic Enemy og Belle and Sebastian.
Upplýsingar um hátíðina má finna
á vef hennar, atpfestival.com/
events/atpiceland2015.
Mogwai stýrir kvik-
myndadagskrá ATP
KEX Köntrí, árleg tónlistar- og mat-
arhátíð KEX hostels, verður haldin
2.-4. júlí. Hátíðin er haldin í kringum
þjóðhátíðardag Bandaríkjanna, 4.
júlí, og verður boðið upp á tónlist
undir sterkum áhrifum frá banda-
rískri þjóðlagatónlist. Meðal þeirra
sem koma fram eru Mr. Silla, KK og
Lights on the Highway
og húshljóm-
sveitin KEX Köntrí
All Stars leikur 4.
júlí. Matseðillinn á
Sæmundi í spari-
fötunum, veit-
ingastað KEX
hostels, verður
tileinkaður
bandarískri mat-
arhefð.
Matur og tónlist á
hátíðinni Kex Köntrí
Á fimmtudag Norðaustlæg átt, 5-10 m/s og víða rigning, einkum
austanlands, og hiti 5 til 12 stig, en hægari vindur og úrkomulítið
suðvestan- og vestanlands og hiti 10 til 16 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 10-18 m/s og rigning, hvassast
norðvestantil, en austan 5-10 sunnan- og austanlands og úrkomu-
minna. Dregur úr vindi og úrkomu í kvöld. Hiti 8 til 16 stig.
VEÐUR
Stangarstökkvarinn og ÍR-
ingurinn Hulda Þorsteins-
dóttir er snúin aftur á
keppnisvöllinn eftir gríðar-
lega erfiða baráttu við
meiðsli undanfarin þrjú ár.
Hún náði frábærum árangri
á innanfélagsmóti ÍR-inga á
dögunum og á sér þann
draum að komast á Ólymp-
íuleikana í Rio de Janeiro á
næsta ári en hana vantar
ekki marga sentimetra til
þess að ná lágmarkinu. »1
Ótrúleg endur-
koma Huldu
„Maður sér að þessi ferill verður ekki
jafnlangur og hjá flest-
um,“ sagði Ólafur Gúst-
afsson handboltamaður
við Morgunblaðið.
Ólafur er nýkom-
inn úr sinni ann-
arri aðgerð á
hægra hné og
er á leið í þriðju
aðgerðina á
vinstra hnénu,
þó að hann sé
aðeins 26 ára
gamall. »1
Fjórða og fimmta hné-
aðgerðin hjá Ólafi
„Ég hef auðvitað fylgst með frábær-
um árangri íslenska landsliðsins.
Árangur liðsins er ótrúlegur og
kannski er íslenska landsliðið betra
en það danska um þessar mundir,“
sagði Patrick Pedersen, danski
framherjinn í liði Vals, léttur í bragði.
Hann er leikmaður 10. umferðar
Pepsi-deildarinnar í knattspyrnu
hjá Morgunblaðinu. »2
Árangur íslenska
landsliðsins ótrúlegur
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Vinnuhópur tíunda bekkjar Breiðholtsskóla sigraði í hóp-
myndakeppni, öðrum hluta ljósmyndakeppni á vegum Vinnu-
skóla Reykjavíkur.
Vinnuskólinn efndi til ljósmyndakeppni meðal vinnuhópa
skólans. „Það eru tvær keppnir í gangi, annars vegar senda
krakkarnir myndir af sér, hópmyndir eða annað skemmtilegt,
hins vegar senda þeir myndir af beðum sem þeir hafa tekið
sérstaklega í gegn,“ segir Magnús Arnar Sveinbjörnsson,
skólastjóri vinnuskólans. Niðurstöðurnar í síðarnefndu keppn-
inni eru þó ekki ljósar. Magnús segir þátttökuna í keppnunum
hafa verið góða, en vinnuhóparnir keppa saman og segir
Magnús nemendur vinnuskólans vera mjög áhugasama. Marg-
ar skemmtilegar myndir hafa borist enda til mikils að vinna
en vinningsliðið fær köku og mjólk í kaffipásunni sinni í
vinnuskólanum.
Annað sætið í hópmyndakeppninni hlaut tíundi bekkur
Fossvogsskóla en níundi bekkur Seljaskóla hreppti það þriðja.
Sigurmyndin Það var ljósmynd frá Breiðholtsskóla sem þótti bera af en dómnefnd leit til eigin álits og þess fjölda sem hafði líkað við myndina á fés-
bókarsíðu vinnuskólans. Hópurinn sem stendur á bak við myndina á von á köku og mjólk í einni kaffipásunni í vikunni.
Fjölbreytni Myndir keppninnar voru margar og ólíkar en flestar mjög líflegar. Þessi
mynd var frá hópi 9. og 10. bekkjar úr Steinahlíð.
Liðsandi í ljós-
myndakeppni
Kátir og metnaðarfullir nemendur