Jökull - 01.12.1956, Síða 2
Frá féiaginu:
Aðalfundur var haldinn í Tjarnarkaffi
6. febrúar 1956. Fundarstjóri var Jón Kjart-
ansson sýslumaður. Á fundinum mætti 65
manns. Þetta gerðist lielzt:
1. Formaður flutti skýrslu um störf fé-
lagsins á liðnu starfsári.
2. Fundarstjórinn ræddi um nauðsyn
þess að Kötlurannsóknunum yrði hald-
ið áfram.
3. Gjaldkeri lagði fram endurskoðaða
reikninga. Eignir féíagsins í árslok
voru metnar á 88 576,30. Félagsmenn
voru 225. '
4. í stjórn voru endurkosnir Árni Stefáns-
son, Sigurður Þórarinsson, Sigurjón
Rist og Trausti Einarsson. Jón Ey-þórs-
son er formaður til aðalfundar. 1957. —
1 varastjórn voru endurkosnir Einar
Magnússon, Guðmundur Kjartansson
og Þorbjörn Sigurgeirsson. — Endur-
skoðendur endurkosnir: Páll Sigurðs-
son, Rögnvaldur Þorláksson og Gunn-
ar Böðvarsson.
5. Sigurður Þórarinsson og Sigurjón Rist
fluttu erindi með litskuggamyndum
um Kötluhlaupið og rannsó.kn á
Kötlu sumarið 1955.
ÚR SKÝRSLU FORMANNS o. fl.
Fuiidir. Tveir fræðslufundir voru haldn-
ir á árinu.
Jökulheimar. Vorið 1955 tókst að reisa
vandaðan skála í Tungnaárbotnum. Var
hann reistur í sjálfboðavinnu undir for-
ustu Árna Kjartanssonar. Yfirsmiður var
Stefán Jónsson.
Rannsóknir. Félagið efndi til rannsókna-
leiðangurs á Vatnajökul 28. maí til 16.
júní. Fararstjóri var Sigurður Þórarinsson.
Aðalviðfangsefni var að mæla þykkt jökuls-
ins á Grímsvatnasvæðinu, en þær mæling-
ar annaðist eðlisfræðingurinn Jean Martin
frá Expéditions Polaires Francaises. Ann-
ar leiðangur var farinn til þykktarmælinga
á Kötlusvæðinu 18. til 27. júní undir stjórn
Sigurjóns Rists.
Félagið sá um rannsóknir á Tindfjalla-
jökli og unnu 8 brezkir stúdentar þar um
tveggja mánaða skeið.
Mælingar á breytingum skriðjökla voru
framkvæmdar í nafni félagsins og annað-
ist Jón Eyþórsson þær mælingar. Til styrkt-
ar starfSsemi sinni fékk félagið kr. 4000 frá
Menntamálaráði og kr. 13500 úr rikissjóði.
Auk þess greiddi ríkissjóður útlagðan kostn-
að við Kötlurannsóknirnar, um 36 þúsund
krónur.
Ý N
JÖKLARANNSÓKNAFÉLAG ÍSLANDS
P. O. Box 884, Reykjavík
Félagsgjald (þar í ársritið Jökull) kr. 50.00
Gjaldkeri: Sigurjón Rist
Raforkumálaskrifstofunni
llitstjóri Jökuls:
Jón Eyþórsson
Fornhaga 21, Reykjavík
ICELAND GLACIOLOGICAL SOCIETY
P. O. Box 884, Reykjavík
President and Editor of Jökull:
J ón Ey thorsso n
P. O. Box 884, Reykjavik
Secretary: Sigurdur Thorarinsson
P. O. Box 532, Reykjavík
Annual subscription for receipt of the
journal JÖKULL £ 1—0—0 or $ 3.00
V______________________________________)