Jökull - 01.12.1956, Qupperneq 28
Á Heiðinnamannadal. T. h. skarð yfir í Hafr-
árdal. Tindurinn fyrir miðjum dalbotni mætti
heita Heiðingi. — The small glacier in íhe
Heathens’ Valley.
3. GLJÚFRÁRJÖKULL.
Laugardaginn 29. júlí fór ég frá Urðum kl.
09. Fylgdi mér piltur þaðan að Ivóngsstöðum í
Skíðadal. Komum þangað kl. 11.
Oskar Júlíusson bóndi á Kóngsstöðum tók
vel erindi mínu um fylgd fram að Gljúfrár-
jökli, en hann blasir við því nær í hásuður frá
Iíóngsstöðum nálægt botni. Skriðadals, og er
sjónhendingarvegur þangað um 8 km.
Gljúfrárdalur er stuttur afdalur úr Skíða-
dal. Hann er hengidalur og mynni hans um
120 m yfir botn Skiðadals. Jökullinn liggur í
djúpum hringmynduðum dalbotni og horfir
beint í hánorður. Sporðurinn er í 560 m hæð
á korti. Hájökullinn nær upp i 1200 m. Lengd
jökulsins alls frá norðri til suðurs er um 3500
m og mesta breidd nálægt 2000 m. Flatarmál
hér um bil 4 km2. Svipar honum allmjög til
eystri sporðs Tungnahryggsjökuls.
Neðan úr dal sést ydda á dökkleita nibbu
yfir miðjum jökli. Heitir hún Blekkill og er á
suðurbarmi jökulskálarinnar, 1262 m að hæð.
Mælingamerki:
Gi Varða á stóru Grettistaki.
Go Varða 30 m nær jökli. Frá Go að jökli
68 m.
Frá G2 eru um 10 m niður að ánni í gilbotni
og jökulsporður í gili endar um 10 m ofan við
merkið.
Jökullinn hefur ekki alls fyrir löngu náð um
800 m lengra niður í dalinn. Vegalengdin er
þó ágizkun. Sést þar glögg V-löguð byrjun á
liliðaröldum. Hlíðar eru skriðu orpnar, en gróð-
urteigingar meiri hátt í hlíðum en hið neðra.
Virðist jökullinn hafa náð um eða yfir 100 m
upp í hlíðarnar rétt neðan við núverandi sporð.
Ur minni Gljúfrárdals sást vel inn í botn
Vesturárdals. Norðarlega í eggina er lítið skarð
og fallegur jökulbunki undir því. Handan (vest-
an) skarðsins mun vera Ingjaldsskál í Kolbeins-
dal. Botnar Skíðadals, Vesturárdals og Þverár-
dals liggja hlið við ltlið, og eru í öllum tals-
verðir jöklar, er horfa gegnt austri.
4. HEIÐINNAMANNADALUR.
Að loknum athugunum í Gljúfrárdal, hélt ég
norður úr dalnum og upp í mynni Heiðinna-
mannadals, sem er austan Gljúfrárdals og nærri
samhliða honum, en miklu hærri. Mynni hans
er um 300 m yfir botni Skíðadals. Fylgdi Óskar
mér upp í dalmynnið, en hvarf þá aftur. Ég
ráðgerði að ganga af Heiðinnamannadal niður
Hafrárdal til Hörgárdals.
I botni Heiðinnamannadals er jökulbunki all-
mikill, einkum að vestanverðu, undan skarð-
inu yfir í Hafrárdal. Fyrir miðjum botni, norð-
an skarðsins, er allmikilúðlegur tindur (1352 m),
nafnlaus. Mætti kalla hann Heiðingja. Annað
skarð er austan við tindinn yfir í Lambárdal,
og er þar einnig jökull, en miklu minni en að
vestan.
Mikil og falleg jökulalda liggur í boga fram-
an við jökulinn og urðarbotn innan við. Aldan
er 10—15 m há og um 400 m löng.
Merki:
Hi varða á jökulöldu nálægt miðju.
H2 varða á steini 180 m frá Hi. Frá H2 voru
30 m að vetrarsnjó. Þaðan áætlaðir um 40
m að jökulrönd eða 70 m alls frá H2 og
250 m frá Hi-
Mér mældist hæðin 834 m við Hi og 845 m
við jökulsporð.
Jökullaust virðist vera í þeirri hæð austan til
í botninum, og mun jökulsporður í eystra skarð-
inu vera í h. u. b. 945 m hæð. Á miðjum jökul-
sporði er talsverð grjótdreif og vottar fyrir mið-
rönd í stefnu á fjallsnefið.
Að verki loknu hélt ég sem hraðast niður
Flafrárdal, og er það heldur leiður vegur og
seinfarinn vegna þvergilja. Ivom að Barká t
Hörgárdal kl. 20.15 eftir 4.15 stunda gang úr
mynni Heiðinnamannadals. Þar frá má draga
um 1.15 st. fyrir vörðuhleðslu. — Fyrir botni
Hafrárdals virtust mér tveir greinilegir hjallar,
hinn efri í 865 m hæð og hinn neðri 750 m.
26