Jökull


Jökull - 01.12.1956, Side 35

Jökull - 01.12.1956, Side 35
Vatnajökul. Nii valdist hann til ferðar með okkur. Laugard. 19. júlí lögðum við af stað og urð- um sex saman í bil flugbjörgunarsveitarinnar. Enn fremur fengum við lánaðan útbúnað hjá sveitinni, svo sem brodda, ísaxir og nýlonkaðla. Þessir voru í förinni: Nikulás Clinch, Sigurður Waage, Finnur Eyjólfsson, Efaukur Hafliðason, Olafur Nieisen og Arni Kjartansson. Eftir sjö stunda erfiða, en þó skemmtilega glímu við glerhála jökulhryggi og gapandi sprungur vorum við komnir upp á örðugasta hjallann og leiðin greiðfær fram undan. Var nú komið hádegi, þokunni létt af jöklinum og veð- ur hið fegursta. Við héldum áfram upp jökulinn og vorurn komnir á tindinn kl. 15. Dvöldumst við góða stund þar efra og nutum hins dásamlega útsýnis meðan við hvíldum okkur eftir erfiða og tauga- æsandi ferð upp skriðjökulinn. Niður fórum við greiðfarnari leið. Þessi leið á Eyjafjallajökul er því fær, en til hennar þarf góðan útbúnað, gætni og nokkra æfingu. Arni Kjartansson. APPALACHIA Svo nefnist félag fjallgöngumanna í Boston. Það var stofnað 1876 með 100 félagsmönnum. í sumar sem leið kom hingað Kenneth A. Henderson, sem hefur lengi átt sæti i stjóru félagsins og er víðförull og kunnur fjallgöngu- maður. Ferðaðist hann allvíða um landið og reyndi meðal annars að klífa Hraundrang í Oxnadal, en varð frá að hverfa. Félagið gefur út rit, sem kemur út tvisvar á ári. Heitir það Appalachia og svipar til árbókar Ferðafélags íslands að stærð og frágangi. Nafnið mun vera Indíánamál og þýða „austan ár“, þ. e. austan Missisippifljóts. í síðasta hefti Appalachia ritar Henderson uppliaf að ferðasögu sinni á íslandi (Flight To Yesterday). Er hún fjörlega rituð, skrumlaus og réttorð. Eftir heimkomuna sendi Henderson Jökla- rannsóknafélaginu ritið Appalachia frá og með 1940 í skiptum fyrir Jökul. Þess má geta, að Henderson er höfundur að Handbook of American Mountaineering, ýtar- legum leiðbeiningum fyrir fjallgöngumenn. Jón Eyþórsson. BRÉF TIL JÖKULS Letters to the Editor JÖKLAR VIÐ HVÍTÁRVATN O. FL. Holtakotum, 6. des. 1956. Það var haustið 1912, sem ég kom fyrst í Fögruhlíð og þá var það, eins og ég gat um í „Göngum og réttum“, að jökullinn lá fast að graslendinu og ýtti því í fellingar1) undan sér í brekkunni sunnan í hllðinni. Siðan hef ég sjaldan komið í Fögruhlíð. En eftir því, sem ég bezt veit, eftir sögn annarra fjallmanna, mun þessu hafa verið þannig varið allt fram yfir 1920, jafnvel lengur, en hvenær það breytt- ist, get ég ekki sagt um. Það væri fróðlegt að vita, hve langt er nú frá graslendinu að jökulröndinni. Það munu vera um þrjátíu ár, síðan ég kom síðast í Fögru- hlíð, og þá var komin nokkur eyða á milli jökuls og graslendis, sem siðan hefur breikkað allmikið, eins og þér er kunnugt. Um jökul- röndina frá Fögruhlíð suður fyrir Hrútafell, get ég ekkert sagt, því að ég hef aldrei átt þess kost að skoða hana nema úr fjarlægð, ég hef því ekkert til að miða við. A svæðinu frá Hrútafelli vestur að Karls- drætti, þ. e. á Leggjabrjót, hefur jökullinn auð- sjáanlega færzt mikið til baka á síðastliðnum 25—30 árum. Ég man, að um og eftir 1911 voru svonefndir „Sólkatlar“ vestan Hrútafells, tveir litlir, dökkir dílar langt uppi í jökli af Baldheiði að sjá. Nú er þetta orðin stór eyða í jökulinn og nærri samrunnin við Leggjabrjótshraunið, eftir því sem mér liefur virzt, er ég hef virt það fyrir mér austan af Tjarnheiði. En það er eins með þennan stað, að ég hef ekki farið urn Leggja- brjót síðan 1920 og því ekki getað borið það saman ár frá ári, hvernig þetta hefur gengið til. Og þá eru það skriðjöklarnir beggja megin Skriðufells. Þar má segja, að breytingin hafi orðið einna mest á slðari árum, og sést það bezt á Skriðufelli sjálfu, hve jökulfarið nær hátt í hlíðum þess, bæði að austan og vestan. Þegar ég kom fyrst í Flvítárnes, haustið 1911, fyllti jökullinn, að því er virtist, allt það bil 1) Sbr. örnefnið Húðarhólar í Barkárdal.

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.