Jökull


Jökull - 01.12.1956, Side 39

Jökull - 01.12.1956, Side 39
SVERRIR SCHEVING THORSTEINSSON: Frostsprungur á Sprengisandi I næstsíðasta hefti Jökuls skrifar Sigurður Þór- arinsson stutta grein, sem hann nefnir „Fleyg- sprungnanet á Sprengisandi1' og fer hann þar fyrst nokkrum almennum orðum um myndun frostsprungna í jarðvegi, en víkur síðan að at- hugunum, sem hann gerði úr flugvél yfir Sprengisandi 26. ág. 1954. Vildi ég hér mega bæta nokkrum orðum við um frostsprungur á Sprengisandi, þar sem ég tel ekki ólíklegt, að við Sigurður höfum báðir séð og athugað sömu fyrirbrigði, — hann úr sjúkraflugvél Björns Pálssonar, ég úr öræfabíl Guðmundar Jónassonar. Samkvæmt m. a. dagbók minni frá 15. ágúst 1954, eru athuganir mínar eftirfarandi. Kyrkingslega gróinn, næstum láréttur melur (skammt frá Tómásarhaga) var vel afmarkaður í mikill, kringlulagaður og nærri sléttur. Rennur áin þar á aurum fram i gljúfrið. Þar er gnægð af gabbró og líklega granófýr, en dökkt blá- grýtið rnyndar mjóar rendur í með smágöngum skáhallan upp á við.“ 22. Vatnsdalshlaup hefur ekki orðið á þessu ári, og er ekki talið líklegt, að það verði héðan af, skrifar Skarphéðinn Gíslason á Vagnsstöðum 26. nóvember. 23. Fláajökull gekk allmikið fram í sumar, en svo dró hann sig til baka, er lengra leið á sum- arið, og þá fór áin (Hólmsá) að renna austur með jökli í Holtakíl. Langvarandi þurrkar í sumar og haust hjálpuðu því, að áin gerði lít- inn skaða nú. Hólmsá hefur enn þá verið veitt í sinn gamla farveg austan við Heinaberg. Hólmsá spýtist nú undan jökli fast við Merki- fell, á milli þess og lítils kletts, sem yddir á rétt hjá fellinu. Lítur út fyrir, að klettur þessi nái nokkuð langt inn undir jökul og skoran milli hans og fellsins sé mjög djúp. Fari svo, að jökull bráðni af þessum kletti, er sti hætta yfirvofandi, að áin fari austur í Hleypilæk og geri usla á Austurmýrum. (Skarphéðinn Gísla- son). reiti, sem ýmist voru þrí-, fer- eða jafnvel sex- hyrndir. Flestir munu þó hafa verið fimm-hyrnd- ir á þessu svæði. Stærð reitanna var frá 12—-35 metrum i þvermál og mátti víða sjá langdregna reiti, sem lágu hlið við hlið og mynduðu í heild nokkurs konar belti. Voru þeir reitir flestir að- eins ferhyrndir og mjög reglulegir á að líta. Með- allengd reitanna í einu slíku belti var nálægt 20 m, en breiddin var öllu ójafnari, 3—6 m. Sjálfar frostsprungurnar, sem afmörkuðu reit- ina, voru 5—20 cm. á breidd við yfirborð, — og mjókkuðu síðan fleygmyndað niður í jarð- veginn, að mér fannst að ákveðinni dýpt, en þar urðu þær jafnbreiðari og mynduðu sprungu, 1—4 cm. á vídd. Talsverður hæðamismunur var á sprungu- börmunum, allt að 8—12 cm, og mátti fylgja slíkri upphækkaðri brún sama reits á 2—3 hliðar. Stundum stóð einn og sami reitur ofurlítið hærra í brúnunum, en viðliggjandi reitir. Sjálfir sprungubarmarnir (reitamótin) voru venjulega grétðri vaxnir, mest gulleitum mosategundum, sem víða þöktu algjörlega sprungubarmana, og mátti í langri fjarlægð sjá afmörkun reitanna, þegar sólin skein á mosann. Annars var sjálfur melurinn aðeins gróinn einstökum jurtum, kannski 6—8 tegundum í allt, sem hvergi mynd- uðu samfellda breiðu eða þúfur. Á yfirborðinu var melurinn samsettur af frekar jafngrófri möl, með einstaka hnullungssteinum á milli. Meira eða minna af frostsprungum og mela- tiglum mátti sjá á allri leið okkar úr Jökuldal að Gæsavötnum, þótt reglulegastar myndanirnar væri að finna á hinum láréttu melum vestan og norðvestan Tungnafellsjökuls. Um myndun þessara reita og áætlun um aldur, er ágizkun Sigurðar ekki ólíkleg, þegar hafðar eru í huga ýrnsar „sífreða-eyjar" í Kanada og víðar, sem talið er að myndazt hafi við svipaðar aðstæður og einmitt er líklegt að geti orðið á Sprengisandi. ABSTRACT. The author describes nets of ice-wedges near Tómasarhagi W of Tungnafellsjökull in Central Iceland, studied by him in Aug. 1954. 37

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.