Jökull


Jökull - 01.12.1956, Síða 46

Jökull - 01.12.1956, Síða 46
6. mynd. Á leið niður í Hveradal Kverkfjalla. — Travelling on Vatnajökull. Ljósm. Á. Kjartansson. gleymdu ekki afmæli Guðmundar þ. 11. Sam- bandið við umheiminn var einhliða, svo sem verið hafði alla ferðina, því að móttakari sendi- tækis þess, er við höfðum meðferðis, bilaði þeg- ar á fyrsta degi og varð því að senda öll skeyti blint, sem kallað er, og treysta á það, að ein- hver heyrði einhvers staðar. Þann 10. júní gerðu fjórir okkar tilraun til að komast til Gríms- vatna til að ná í benzín. Ekki komumst við á vísli nema 5 km, sakir benzínskorts, en héldum áfram á skíðum. Færið var djöfullegt og veðrið eftir því. Þóttumst við góðir, er við komumst aftur í tjaldstað, eftir að hafa þrammað um 35 km, liafandi erfiði en ei erindi. Hefðum við vart fundið tjaldstaðinn, ef við hefðum ekki verið svo forsjálir að hlaða snjóvörður með stuttu millibili alla leiðina. Ekki fýsti okkur aftur í slíka reisu, og var nú sent skeyti til Ágústs Böðvarssonar og hann beðinn að senda flugvél með benzín, svo fljótt sem veður leyfði. Ekkert vissum við um örlög þess skeytis, en að morgni 12. júní tók að rofa dálítið í lofti, svo að stund- um grillti í bláan himin. Um 11-leytið heyrðist flugvélargnýr. Við, sem í aðalbækistöðinni vor- um, sáurn aldrei vélina, en vonuðumst til, að hún hefði komið auga á Grendil, sem var 5 km suðvestar, en þar sváfu þeir Olafur og Haukur. Var fregna frá Grendli beðið með töluverðri eftirvæntingu, og klukkutíma síðar kom sá skrautlegi bill með 200 benzínlítra innanborðs, er kastað hafði verið niður í brúsum. Vakti koma Grendils mikinn fögnuð í tjaldbúðunum, og dró það ekki úr gleðinni, að hjartagóður höfuðstaðarbúi hafði sent með vélinni sígarett- ur og viskýflösku. Kom flaskan heil niður, enda var nýsnævislagið nú orðið 70 cm þykkt. Kl. 14,40 var lagt af stað og stefnt á Gríms- fja.ll. Skyggnið var vont að vanda, hríðarmugga, svo að ekkert sást. Vorum við komin um 2 km SA af Svíahnúk eystri, er við áttuðum okkur og stefndum á brekkuna. Á Grímsfjall komumst við kl. 1 um nóttina, og var þá flugsenda benzínið á þrotum, en á Hithól áttum við 270 lítra, sem nægði okkur niður af jöklinum. Nú tók að rofa í lofti, og er við höfðum snætt næt- urverð, var orðið albjart yfir Grímsvötnum og frostið 9 stig. Kl. 2,30 var ekið af stað, og mun mér seint gleymast förin vestur jökulinn í sindr- andi sólskini. I Tungnaárbotna komum við kl. 11, og kom Jón Eyþórsson til móts við okkur. Hafði hann beðið við 10. mann í Jökulheim- um í 5 daga. Voru þar í hópi þeir Árni Edwins, Finnur Eyjólfsson, Halldór Eggertsson og Dan- inn J. W. K. Ekholrn, sem halda áttu á jökulinn til mælinga ásamt Guðmundi Jónassyni og Flerði Hafliðasyni. Kl. 15 kvöddum við þessa sex og héldum til byggða í tveim bílum. Stýrði sonur Guðmundar þeim, er fyrir fór, og virðist ekki ætla að verða eftirbátur föður síns um öræfa- keyrslu, því að við vorum ekki nema röska 5 44

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.