Jökull - 01.12.1956, Qupperneq 47
7. mynd. Hnúkurinn
Grendill, austast á
Vatnajökli. — Grend-
ill, the easternmost
trig. point on Vatna-
jökull (cf. the map,
fig■ !)■ _
Ljósm. A. ICjartansson.
tíma frá Jökulheimum að Galtalæk. Síðasta mál-
tið ferðarinnar var sem hin fyrsta snædd á Sel-
fossi og komið í bæinn snernma nætur þ. 14.
júní.
Mœlingaleiðangurinn.
Þann 14. júní var þegar undinn bugur að því
að senda benzín flugleiðis upp í Jökulheima,
svo að þeir sexmenningarnir kæmust af stað.
Hafði flugvöllur verið merktur 2.5 krn norð-
vestur af skálanum.
Laust eftir miðnætti aðfaranótt 15. júní lögðu
þeir félagar af stað með skriðbíl Guðmundar,
einn vísil (Grendil) og rúrna 2000 lítra benzíns.
Að Þórðarhyrnu komu þeir kl. 7,55 og lágu þar
í þoku og leiðinda veðri til 19. júní. Birti þá,
svo að Ekholm gat mælt. Upp úr hádegi var
lagt af stað til Grímsfjalls og gist þar næstu
nótt. Þaðan var haldið kl. 6,15 og röskum 12
stundum síðar var tjöldum slegið við Hvanna-
dalshnúk í góðu veðri. Brátt syrti þó að og
næsta dag, 21. júní, var vestanrok og rigning.
Varð að vaka alla næstu nótt og gæta tjaldanna,
svo að þau fykju ekki. Næstu tvo daga var veð-
ur slæmt, en aðfaranótt þ. 24. birti og var
Ekholm kominn á Hvannadalshnúk til mælinga
kl. 6,30. Kl. 11 næsta dag var mælingunum lokið,
og síðan var haldið af stað austur að Þverár-
tindsegg og komið við í Esjufjallaskálanum, sem
virtist vera í góðu standi. Kl. 6 um morguninn
þ. 26. var lagt á Þverártindsegg 1 góðu veðri,
en mælingu lokið þar upp úr hádegi daginn
eftir. Hafði Ekholm staðið yfir hornamælinum
lengst af tímanum. Af stað var haldið kl. 22,45
og lagt upp á hájökulinn vestan Eyjólfsfells
(þ. e. nokkru vestar en sýnt er á kortinu, 1.
mynd) og komið að Goðahrygg 1 svarta þoku
að kvöldi næsta dags. Að kvöldi þ. 29. var mælt
af Grendli í fegursta veðri, lagt af stað til
Kverkfjalla kl. 1,30 um nóttina og komið þang-
að eftir rúmlega 9 tíma akstur. Mælingu þar
var lokið kl. 19 og enn var haldið af stað, komið
til Þórðarhyrnu kl. 7 að morgni 1. júlí og mælt
þar að nýju, en síðan haldið vestur á bóginn
og komið í Jökulheima kl. 10,40 mánudaginn
2. júlí, en til Reykjavíkur næsta dag. Lofar
Guðmundur mjög dugnað félaga sinna, ekki sízt
Ekholms, er reyndist sem áður bæði þolinmóð-
ur og harðfylginn, en á þá eiginleika reynir
mjög við þríhyrningamælingar á Vatnajökli.
Hefur Ekholm með þessum mælingum unnið
þýðingarmikið vísindastarf við erfiðar aðstæður.
Niðurlagsorð.
Með heimkomu þeirra sexmenninganna lauk
einum lengsta og umfangsmesta leiðangri, sem
nokkurn tíma hefur verið gerður út á Vatna-
jökul. Samanlagt mun hafa verið ekið á jökli
um 1000 km leið, og er það miklu meira en
nokkru sinni áður hérlendis, enda munu þeir
teljandi á fingrum annarrar handar leiðangr-
arnir, sem farið hafa lengri leið á jökli á norð-
45