Jökull


Jökull - 01.12.1965, Blaðsíða 13

Jökull - 01.12.1965, Blaðsíða 13
vatnsdýpið nœr vissu marki (um 200 m dýpi), án þess að um lyftingu sé að rœða, en eðlisfrœð- ingar hafa reiknað út að líklegt sé að þetta eigi sér stað. Norskur jöklafrœðingur, Olav Liestöl, liefur bent á, að vatnsrásir undir isnum hljóti að vikka vegna bráðnunar, er stafi af þvi að nokkuð af hreyfiorku vatnsins breytist i hita- orku, og kann þetta að auðvelda vatninu hina löngu ferð þess undir jökli til jaðars Skeiðarár- jökuls. Einnig má vera, að hiti vatnsins í Grimsvatnakvosinni geti verið eitthvað hcerri en brœðslumark issins við vatnsbotn. Verður allt þetta rœtt nánar i siðari grein. Hér skal að lokum þakkað öllum þeim, sem beint og óbeint hafa aðstoðað við ofangreindar mœlingar siðan þœr hófust. Sigurður Þórarinsson. REFEREN CES: Eythórsson, J. 1951: Fransk-íslen/.ki Vatnajökuls- leiðangurinn, marz—apríl 1951. Jökull 1: 10-14. Glen, J. W., 1954: The stability oí ice dammecl lakes and other water-fillecl holes in glaci- ers. J. Glacioll Vol. 2. 15: 316—318. Holtzsclierer, J. J., 1954: Expedition Franco- Islandaise on Vatnajökull mars—avril 1951. Resultats des sondages seismiques. Jökull 4: 1-33. Liestöl, O., 1956: Glacier-dammed lakes in Nor- way. Norsk Geogr. Tidsskr. 15: 122—149. Rist, S., 1955: Skeiðarárhlaup 1954. — The hlaup of Skeidará 1954. Jökull 5: 30—36. — 1961: Rannsóknir á Vatnajökli 1960. In- vestigations on Vatnajökull in 1960. Jökull 11: 1-11. Thorarinsson, S., 1953 a: Sorne new aspects on the Grímsvötn problem. J. Glaciol. Vol. 2, 14: 267-274. — 1953 b: The Grímsvötn expedition June— July 1953. Jökull 3: 6-23. — 1954: Athuganir á Skeiðarárhlaupi og Grímsvötnum 1954. — The jökulhlaup from Grímsvötn in July 1954. Jökull 4: 34—37. — 1955: Mælingaleiðangurinn á Vatnajökli 1955. Jökull 5: 27-29. — 1958: Vatnajökulsferðir Jöklarannsóknafé- lagsins 1958. — Tlie Grímsvötn Expeditions in June and September 1958. Jökull 8: 1-9. Vatnajökulsleiðangur 1965 Vorið 1965 gerði Jöklarannsóknafélag Islands út leiðangur til Grímsvatna, hinn 13. í röð- inni. Fararstjórar voru Sigurður Þórarinsson og Magnús Jóhannsson. Aðrir þátttakendur voru: Edda Arnholtz Guðlaug Erlendsdóttir Guðmundur Jónasson Guðmundur Sigvaldason Halldór Ólafsson Hanna Brynjólfsdóttir Magnús Eyjólfsson Sigurður Steinþórsson Stefanía Pétursdóttir. Eftirfarandi er útdráttur úr dagbók minni: 29. mai, laugardag. — Earið var úr Reykjavík kl. 08.30 á tveim bílum og stýrði Gunnar Guð- mundsson öðrum, en Magnús Guðmundsson hinum. Með í för slóust Jón Eyþórsson, Elín Pálmadóttir, Soffía Theodórsdóttir, Auður Ólafsdóttir og sonur ungur. Súld var í sveitum, en bjartviðri, er kom inn yfir Tungná. Til Jökulheima komum við kl. 16.40 og var þar fyrir flokkur manna, sem vann að skálabyggingu undir stjórn Stefáns Bjarnasonar. 30. mai, sunnudag. — Lögðum upp frá jökul- rönd laust fyrir hádegi með báða vísla Jökla- rannsóknafélagsins, ökumenn Guðmundur Jón- asson og Magnús Eyjólfsson. Með í för slóst Jrriðji vísillinn með fimm verzlunarmenn úr Reykjavík (Gunnar Hannesson, Hinrik Thor- arensen, Rafn H. Jónsson og Sverri og Ingi- mund Sigfússyni), er einnig höfðu haft sam- flot við Grímsvatnaleiðangurinn vorið 1964 og reynzt hinir ágætustu ferðafélagar. Veður var stillt, en þoka skall brátt á og færi var Jmngt. Sóttist ferðin seint, Jtví keyrt var í blindu allan daginn, og kl. 02 aðfaranótt 31. maí var tjöld- um slegið. Þóttumst við Jrá vera mjög nærri Grímsvötnum, en staðsetning engan veginn ör- ugg- 31. maí, mánudag. — Fýluveður var Jrennan dag, Jroka og slydda, og var sofið fram eltir, en síðla dags liibbuðum við út í Jtokuna nokkra kílómetra til ýmissa átta og drógum af hæða- mælum þá meirihlutaályktun, að við myndum vera á Háubungu. JÖKULL 119

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.