Jökull


Jökull - 01.12.1965, Side 14

Jökull - 01.12.1965, Side 14
Unnið að mælingu vetrar- ákomu á Grímsvatnaslétt- unni. Ljósm. S. Þórarinsson, 3. júní 1965. 1. júni, þriðjudag. — Þurrara var í lofti bennan dag, og sá af og til til sólar framan af. Hiti við frostmark kl. 08, en 2° C. ura hádegi. Þá héldu fjórir okkar af stað á skíðum f stefn- una kompás N50°A og gengum í þokunni í rúman klukkutíma, þar til er við rákumst á Svíahnúk vestri, og var þar Guðmundur Jónas- son kominn á vlsli. Að hnúknum fundnum var aftur snúið til tjaldstaðar og síðan lialdið á slóðina til Grímsvatna. Seinfarið er milli Svía- hnúkanna í svartaþoku, en leiðin viðsjál, og komið kvöld, er við íundum skálann. Var hann í sæmilegasta standi. 2. júni, miðvikudag. — Allan daginn var stinningskaldi af suðri, liríðarveður og hiti rétt neðan við frostmark. Hellar voru skoðaðir. Þeir jarðfræðingarnir Guðmundur Sigvaldason og Sigurður Steinþórsson könnuðu jarðhita, en út- streymi lofttegunda reyndist of vægt til að þeir gætu tekið þau sýnishorn, sem þeir hugðust taka. 3. juni, fimmtudag. — Veður var gott þennan dag, bjart í lofti og hiti um frostmark á Svía- hnúk. Var nú haldið niður í Vötn og unnið af kappi við mælingar allan daginn. Hækkun vatnshorðs við Stóra-Mósa síðan 25. maí 1964 reyndist vera 8.5 m, eða 2.3 cm/dag að jafnaði, og var vatnsborð nú komið í svipaða liæð og 120 JÖKULL fyrir síðasta hlaup. Vorum við Magnús Jóh. sammála um, að hlaups væri að vænta áður árinu lyki. Hæðármunur vatnsborðsins og mið- svæðis Grímsvatnasléttunnar var 22.5 m, en hotn lægðar undir Gríðarhorni í sömu hæð að heita mátti og vatnshorðið við Stóra Mósa. Þykkt vetrarsnævar og vatnsgildi lians var mælt á þremur stöðum. Miðja vegu milli Depils og Gríðarhorns var þykkt 327 cm, vatnsgildi 1835 mm eða 56%. Þar sem áður var stóra mastrið, 6.5 km NA af Svíahnúk eystri, var þykktin 277 cm, vatnsgildi 1535 mm eða 55%, en við stöng þá, sem sett var niður vorið 1964, við rætur Grímsfjalls að austan, var þykktin 290 cm og vatnsgildi 1660 mm eða 57%. Stöng þessi er á hryggnum, jrar sem hann er einna lægstur, rúm- um 70 m lægri en mælistaðurinn við stóra mastrið eða í um 1540 m hæð. Leysing við þessa stöng umfram ákomu sumarið 1964 var 116 cm eða nálægt 600 mm vatns. 4. júní, föstudag. — Stinningskalcli og skaf- renningur allan daginn. Hiti um hádegi -4- 1,5° C. Var sofið lengi frameftir eftir undangeng- inn erfiðisdag. 5. júni, laugardag. — Veður var svipað og dag- inn áður, og er sýnt var, að ekki ætlaði úr að rætast, var haldið af stað heimleiðis kh 14 í blindhríð, svo að varla sá út úr augunum. Vor-

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.