Jökull - 01.12.1965, Síða 18
4. mynd. Þak stóra hell-
isins lirunið, veggirnir
standa. Dökku lögin í
ísnum hafa að líkindum
myndazt sumar hvert. —
Bergið efst í hellinum er
mjög sprungið.
Ljósm. Helgi Hjartarson.
3. okt. 1965.
Þann 3. okt. 1965 vissi ég um rnenn, sem
ætluðu á þessar slóðir til refaveiða. Bað ég þá
að athuga, hvernig þarna væri umhorfs núna,
taka myndir fyrir mig og mæla hita lækjarins.
Arangur af mælingunni varð sá, sem að ofan
greinir.
5. mynd. Einn af minni hellunum, rúmar tvær
mannhæðir. Stóri hellirinn var 10—15 mann-
hæðir. Gangur var milli þessara hella.
Ljósm. Helgi Hjartarson, 3. okt. 1965.
En nokkrar ágætar myndir tóku þeir eins og
þetta lítur nú út. Stóra ishellisbáknið hefur
nú ungað út þrem minni íshellum. Þessir hellar
mynduðust að mestu, eftir að þakið féll af
þeim stóra. Fimmta mynd sýnir þann íshellir,
sem var næstur stóra hellinum, og gengt var á
milli þeirra. Þessi er vel bogamyndaður og rúm-
ar tvær mannhæðir. Bráðið snjóvatn seytlar
eftir gólfinu. Bergið þarna er mjög sprungið.
Næsti íshellir er um tvær mannhæðir eða held-
ur minna. Hann er aflangur í lögun með gang
inn í helli nr. 1.
Þriðji íshellirinn er nýlega kominn í Ijós og
er knöpp mannhæð og aflangur eins og nr. 2.
Allir ná þeir aðeins nokkra metra inn í
skaflinn.
ísmyndun er innan um þá alla. Stutt bil er
á milli þeirra.
Snjóað hefur þarna uppfrá, síðan að mynd-
irnar voru teknar, en hellarnir eru allir opnir
að framan.
124 JÖKULL