Jökull


Jökull - 01.12.1965, Page 44

Jökull - 01.12.1965, Page 44
2. mynd. Múlajökull á jólaföstu 1965. Sprunginn og sýnilega á framskriði. Ljósm. M. Jóhannsson. Fig. 2. A sudden advance. of Múlajökull, an outlet frorn Hofsjökull. Skeiðarárjökull hafði gengið fram um 30 m vestan til og allbrattur svo langt austur, sem sést frá mælingastað. — í septembermánuði hljóp Skeiðará, en 17.—19. sept. var rennslið orðið eðlilegt. 1 úrhellisrigningum síðari hluta októbermánaðar komust öll vötn í hámark, og Skeiðará líktist þá meira hlaupvatni en venju- legum hásumarsvexti. Þá braut hún sér farveg vestur með jökli og lagðist í ytri farveginn. Mælingar eru erfiðar við Morsárjökul vegna lóna. Má eingöngu þakka það áhuga Ragnars í Skaftafelli, að þær hafa tekizt. Skaftafellsjökull er talsvert úfinn og sprung- inn, en minni gangur i Svínafellsjökli en tvö undanfarin ár, segir Guðlaugur á Svínafelli. Fjallsjökull hefur skriðið fram um 40 m, en Flosi á Kvískerjum álítur, að framskriðið nái ekki yfir stórt svæði. „Fjallsá hljóp 28.-29. ág. Það hefur borið til nýlundu í sambandi við hlaupið, að lónið i Breiðamerkurfjalli hefur flóð yfir jökulstífluna í byrjun að minnsta kosti að einhverju leyti. Fyrir miðjan ágúst mun þess hafa orðið vart utan af sandi einn dag (víst 10. ág.), að vatn rann niður jökul með fram fjall- inu. Ég fór svo upp að lóninu, er ég mældi við fjallið, og eru verksummerki greinileg. Næst lóninu virðist aðafvatnsmagnið hafa brotizt um göng gegnum hæsta jökulhrygginn við fjallið, en opnazt nokkrum tugurn metra sunnar, og hefur vatnið skorið sig niður og myndað mjóa en djúpa, opna rennu í jökulinn, sem nær tæp- an km suður með fjallinu. Síðan hefur það fallið í göng undir jökli nokkur hundruð metra neðsta spölinn. — Að vatnið hefur skorið rennu í jökulinn, en ekki runnið beinlínis milli fjalls og jökuls, kemur til af því, að aurborinn jökull hefur náð talsvert upp í skriðurnar, allmiklu hærra en aðaljökullinn við fjallið liggur nú.“ „----í sumar hitti ég á minningar eftir mann, sem var hér á Kvískerjum nokkur ár milli 1870/80, Sveinn Árnason að nafni. Hann getur þar um lilaup í vötnum við Breiðárós, minnist þess auðvitað aðeins af tilviljun og lýsir því ekki, en talar um það sem vel þekkt fyrirbæri." „---Kvíslin, sem rann úr hinu nýlega mvnd- aða Nýgræðukvíslarlóni austur í Jökulsárlón, hefur brotið niður dálítið jökulhaft við austur- enda lónsins (í ágúst) og skorið sig niður um nokkra metra. Lónið liefur því lækkað sem því nemur og minnkað verulega, einkum austan til, og rennur kvíslin þar á aurum með jöklinum fram dálítinn spöl. Vestra eru smálón og aur- höft á milli, sem kvísfin fellur um, en aðal- lónið er vestur við Mávabyggðarönd." Þetta eru kaflar úr bréfi F'losa á Kvískerjum dags. 28. okt. 1965. Sigurgeir llunólfsson, Skáldabúðum, segir (17. okt.) Múlajökul hafa hopað talsvert að sunnan- verðu (h-79 m), en ekizt lítillega fram (+13 m) vestan til. „Jökultungan austan við Hjartafell sýnist hafa lækkað. Jarðhitasvæðið austan við Olafsfell er alltaf að aukast." Nálægt jólum sáu flugmenn, að Múlajökull var orðinn allúfinn og sprunginn framan til. 150 JÖKULL

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.