Jökull

Ataaseq assigiiaat ilaat

Jökull - 01.12.1971, Qupperneq 25

Jökull - 01.12.1971, Qupperneq 25
markað vatnasvið. Fyrri athuganir á Bægisár- jökli eru raktar af Jóni Eyþórssyni (1957). Jóhann Sigurjónsson (1969) hefur unnið úr hinum jarð- og landfræðilegu athugunum, en þar lagði hann megináherzlu á aurburðarrann- sóknir í Baegisá. í þessu og næsta hefti Jökuls mun greint frá öðrurn hliðum verksins, sem lúta að almennum veðurathugunum og sam- tíma könnun á vatnabúskap jökulþakins svæðis og massa- og orkubúskap jökulsins. Veðurfar virðist svo lítið staðbundið á hin- um litlu jöklum á hálendinu milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar, að gögn frá veðurathugunar- stöðvum á svæðinu gætu lýst afkomu jöklanna. Athuganir á afkomu og veðurfari á jöklum verða hins vegar að ná yfir a. m. k. áratug áður en finna má nothæft reynslubundið (empiric) samband veðurfars og afkomumagns. Ennfrem- ur ættu frekari athuganir að miða að því að kanna áhrif nálægðar hafs á ákomu og leys- ingu hinna fjölmörgu jökla á svæðinu. Enn eru eingöngu til gögn fyrir tvö ár frá Bægisárjökli. Vetrarákoma á flatareiningu var 1.55 m árið 1966—67, en 1.95 árið 1967—68. Afkoman var jákvæð (0.25 m) fyrra árið, en enginn afgangur var seinna árið. Reyna mætti að nota gögn frá þessum tveimur árum til þess að gera sér rnynd af grófum dráttum afkomu- ferils liðinna ára. (Sjá Mynd 10, 11 og Töflu 5). Svo heppilega vill til, að athuganir þessi tvö ár gefa nokkra vísbendingu um búskaparhætti, þegar jökullinn skilar engum afgangi. Hinn skýri munur á vetrarákomu og leysingu þessi tvö ár bendir einnig glöggt á, hve næm sumar- leysing og þar með afkoma er fyrir litlum breytingum í meðallofthita (sjá Mynd 3 og Töflu 4). Setja má fram þá grófu hjálparreglu, að falli meðallofthiti fimm mánaða, maí til og með september, undir 8° C, mun Bægisár- jökull vaxa. Með hliðsjón af niðurstöðum afkomu- og veðurfarsmælinga árin 1966—67 og 1967—68 má freista þess að ráða grófa drætti í afkomusögu jökulsins af einfaldri framsetningu veðurgagna frá Akureyri (sjá Mynd 2, 3 og Töflu 4). A ár- unum 1930 til 1950 virðist afkorna Bægisár- jökuls hafa verið neikvæð, nema ef vera skyldi 1937—38 og 1942—43. Frá 1950 verður afkoma jökulsins breytilegri. Annað hvert ár frá 1951 — 52 til 1957—58 gæti afkoman hafa verið já- kvæð eða núll, en síðan neikvæð til 1961—62. Siðan hefur jökullinn líklega verið nálægt jafn- vægi og jafnvel skilað afgangi nema 1968—69. Bægisárjökull hefur hörfað alls um 650 m lárétt og 150 m lóðrétt frá því lengdarmæl- ingar hófust 1924, en hægar hin síðari ár en fyrr á öldinni. Jökullinn veit mót norðri og nýtur nálægðar hárra fjalla. Hinn mikli forði jökulsins frá því að hann var í hámarki um miðja síðustu öld hefur fleytt honum yfir hlýindaskeið þessarar aldar. Jökullinn er einnig mjög lífseigur vegna hins hentuga falls flatarmáls og hæðar (sjá Mynd 11). Ekki þarf að óttast um líf Bægisár- jökuls meðan jafnvægislína ákomu og leysingar liggur undir 1150 m y. s. Ef enn stefnir að kólnandi sumrum eins og verið hefur frá um 1940 (sjá Mynd 2) bendir fyrrgreind hjálparregla til þess að eingöngu þurfi meðalúrkomu vetra til þess að Bægisár- jökull vaxi. Kólnun síðastliðinna ára hefur reynzt mest á Norðurlandi, og ef sumur haldast enn köld fæst á næstu árum einstakt tækifæri á hinum litlu viðbragðsfljótu Norðurlandsjökl- um til þess að rannsaka viðbrögð jökla við batn- andi afkomu. JOKULL 21. AR 23
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Jökull

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.