Jökull - 01.12.1971, Blaðsíða 33
(Nr. 268. Snjóflóð á Múlaveg. Heimild: Vísir
14. nóvember 1966.)
Sunnudaginn 13. nóvember féll snjóflóð á
veginn fyrir Olafsfjarðarmúla og var vegurinn
lokaður um hríð, því snjóflóðahætta var þar
mikil.
1967
(Nr. 269. Snjóflóð í Auðbjargarstaðabrekku.
Heimild: Veðráttan.)
Aðfaranótt sunnudagsins 1. janúar féll snjó-
flóð í Auðbjargarbrekku á Tjörnesi og eyði-
lagði jeppabifreið.
(Nr. 270. Snjóflóð á Seyðisfirði. Heimild: Morg-
blaðið 28. marz 1967 og Vísir 28.-29. og 31.
marz 1967.)
Á miðvikudagsmorguninn 27. marz féll all-
mikið snjóflóð úr um 800 m hæð í Bjólfinum
á Seyðisfirði á sömu slóðum og snjóflóðið mikla
1885. Féll það á mjölskemmu síldarbræðslunn-
ar Hafsíldarinnar hf. og braut hana niður. Þetta
var um 1500 m2 stálgrindahús. Lagðist það al-
veg saman og sópaðist að nokkru leyti á sjó
fram. Ekkert mjöl var í húsinu, en þar var
ýmislegt geymt, svo sern 2—3 þúsund mjölbretti,
17 tonn af þilplötum og 20 standarðar af
timbri, og sópaði því öllu í sjóinn. Rétt innan
við húsið var verksmiðjan, en hana sakaði ekki.
Flóðið fylgdi giljadrögum i fjallinu, en
breiddi úr sér, er neðar dró. Mikil fannfergja
var, er þetta gerðist, og bætti stöðugt á.
Sagt er, að nýsnævið, sem var feiki mikið,
hafi legið á harðbergi (hjarni?) í fjallshlíðun-
um og að víða væru miklar snjódyngjur.
Þess má geta, að mjölskemma Hafsíldar mun
liafa verið eina húsið, sem byggt hefur verið
inn á svæði því, sent snjóflóðið mikla 1885
sópaði.
(Nr. 271.)
Um líkt leyti og snjóflóðið féll úr Bjólfin-
um, féll annað mikið snjóflóð úr Sandhóla-
tindi niður á Vestdal, norðan fjarðarins, en
ekki olli það neinu tjóni.
(Nr. 273. Snjóflóð í Skaftártungu. Heimild:
Morgunblaðið 14. nóvetnber 1967.)
Laugardaginn 11. nóvember fór bóndinn á
Ljótarstöðum í Skaftártungu 1 fjárleit urn
klukkustundar gongu frá bænum. Féll þá á
hann snjóskriða, og varð hann undir lienni. Er
komið var fram á kvöld, var hans leitað. Fannst
hann fljótlega, en með litlu lífsmarki og lézt
liann litlu síðar. Þetta var ungur bóndi og liét
Sverrir Sigurðsson.
1968
(Nr. 274. Snjóflóð á Siglufirði. Heimild: Morg-
unblaðið 6. febrúar 1968 o. fl.)
Aðfaranótt sunnudagsins 4. febrúar og frarn
á dag geisaði á Siglufirði aftaka norðaustan-
veður með bleytuhríð. Um kl. 6.20 á sunnu-
dagsmorguninn vöknuðu lijónin Jónína Vlg-
lundsdóttir og Þórir Björnsson, rafvirki, í hús-
inu nr. 76 við Suðurgötu á Siglufirði við það,
að dóttir þeirra Gunnnildur, sjö ára, kom upp
í rúm þeirra með nokkru fáti, og rétt í sömu
andránni urðu þau vör mikils þrýstings í her-
berginu og hávaða. Urðu þau þess þá brátt vör,
að mikið af snjó var komið inn í herbergið.
I öðru herbergi sváfu tveir synir hjónanna, 5
og 6 ára. Hafði gangurinn þangað fyllzt af
snjó og nokkur snjór komizt inn í herbergið,
en ekki svo þá sakaði.
Maður i næsta húsi varð snjóflóðsins var og
hvernig komið var í nr. 76. Iíom hann brátt
á vettvang og náði síðar í hjálp, en fjölskyldan
úr nr. 76 flutti til hans.
Snjóflóðið hafði fallið úr svokölluðu Strengs-
gili. Það hafði skollið á framhlið hússins, sem
var einlyft steinhús, sprengt þakið af því að
nokkru, brotið glugga á hliðinni, sprengt upp
hurðir og laskað milligerðir, en fólkinu varð
það til happs, að svefnherbergin voru í þeim
hluta hússins, er frá flóðinu vissi. Húsgögn
höfðu brotnað og skorizt af rúðubrotum og
gólfteppi blotnað og tætzt sundur.
Ekki sakaði neinn að ráði, nema livað hjónin
höfðu skorizt nokkuð á glerbrotum. Húsið var
nýtt og hafði fjölsky’ldan aðeins búið þar í
nokkra mánuði. Dálítill snjór úr flóðinu féll á
þak næsta húss, en olli þar engum skemmdum.
(Nr. 274, 275.)
Tvær minni snjóskriður féllu um líkt leyti á
öðrum stöðum þarna í fjallinu og eyðilögðu
skúra, þar sem hey var geymt.
JÖKULL 21. ÁR 31