Jökull - 01.12.1971, Blaðsíða 61
og bar okkur hratt yfir. Brátt urðu fyrir okkur
slóðir eftir snjóbíl og fylgdum viS þeim um
hríS. Er komiS var suSaustur fyrir Vatnaöldur,
tókum viS stefnu beint á Svartakamb og náð-
um þangaS eftir um einnar stundar akstur.
Vorum við aS hugsa um að halda austur í
gegnum Hraunskarð og síðan inn með Tungná,
en hurfum frá því og héldum þess í stað inn
með Svartakambi. Er viS áttum skammt eftir
að norðurenda hans, varð fyrir okkur ísilögð
tjörn, og tókst ekki betur til en svo, að sleðinn,
sem fremstur ók, fór þar á bólakaf, en fljótt
gekk að ná honum upp og blotnuðu ökumenn-
irnir aðeins lítillega. Kom í Ijós, að ísinn á
tjörninni var næfurþunnur, svo ekki hefði
hundi haldið, og hugðum við helzt, að þarna
mundi vera uppspretta. Eftir þetta ævintýri var
haldið áfram og nú tekin stefna skáhallt yfir
að Ljósufjöllum á hina stikuðu leið til Jökul-
heima. Blasti nú Vatnajökull við í allri sinni
dýrð enda veður eins gott og frekast varð á
kosið. Frá Ljósufjöllum vestanverðum er urn 18
km vegur til Jökulheima samkvæmt mælingu
Carls Eirikssonar og var sá spotti fljótekinn,
en klukkan var 5, er við renndum þar í hfað.
Þannig hafði ferðin frá Þóristindi aðeins tekið
3 stundir, þótt ekki væri farin skemmsta leið.
í Jökulheima var gott að koma að vanda, en
þar sem veður var einstaklega gott og óvíst,
hve lengi það héldist, ákvað Hinrik að hafa
þar aðeins skamma viðdvöl. Er menn höfðu hit-
að sér mat og kaffi eftir þörfum, var aftur lagt
af stað. Tók um stundarfjórðung að komast
upp fyrir mesta brattann í jöklinum, en þaðan
Jökulheimar 25. apríl 1970. Ljósm. Pétur Þor-
leifsson.
Grímsvatnaskáli 26. apríl 1970.
Ljósm. Pétur Þorleifsson.
tókum við stefnu norðanhallt í Háubungu. Bar
nú fátt til tíðinda og brunaði hópurinn áfram
í kapphlaupi við myrkrið. Annað slagið var þó
numið staðar, því að menn gerðust allkaldir að
sitja lengi hreyfingarlausir á sleðunum, enda
var frostið um 20 stig og smá norðanandvari.
Er upp kom í Háubungu, var birtu tekið að
bregða, og skömmu síðar skall á svartaþoka, en
haldið var samt áfram, og tók brátt að halla
undan fæti niður í lægðina milli Háubungu og
Grímsfjalls. Var enn haldið áfram um hríð, en
síðan numið staðar. Var nú ráðgazt um, hvað
gera skyldi. Orðið var mjög skuggsýnt og ekki
bætti þokan úr. Akvað Hinrik nú að fara í
könnunarferð til norðurs og vita, hvers hann
yrði vísari. Hafði hann skamman spöl farið, er
hann kom til baka og tilkynnti, að við værum
á brún Grímsvatnadals. Var nú óðara tekin
upp fyrri stefna og höfðum við ekki lengi ekið,
er grilla tók í dökkleitt ferlíki framundan. Var
þar kominn Svíahnúkur vestri. Eftir það var
leiðin auðrötuð, en aka varð með Ijósum síð-
ustu 4 km upp að skála, en þangað komum við,
er klukkuna vantaði 20 mínútur í 11, og hafði
ferðin frá Jökulheimum tekið 4 tíma með öll-
um töfum. Mun þetta í fyrsta sinn, sem farinn
hefur verið landvegur frá Þóristindi til Gríms-
vatna á aðeins 7 klukkutímum, og máttum við
vel við una. Að vanda var skálinn æði fannbar-
inn eftir veturinn, en svo vel vildi til, að
óvenju lítill snjór var fyrir dyruin og gekk
fljótt að moka frá þeim. En á meðan á þeim
mokstri stóð, fiktaði Magnús við talstöð sína
og náði brátt sambandi við Gufunesradíó og
JÖKULL 21. ÁR 59