Jökull


Jökull - 01.12.1971, Blaðsíða 68

Jökull - 01.12.1971, Blaðsíða 68
Mynd 4. Snjógryfjan á Snæbreið. Haukur Haf- liðason stendur á botni gryfjunnar; boropið sést í botninum. Fig. 4. A snowpit on Snœbreidur. Photo: Hjálmar R. Bárdarson May 29, 1969. en síðan matazt og skriðið í svefnpokana um kl. 02. 30. maí, föstudagur. Þoka var og ekkert út- sýni, þegar við vöknuðum kl. 10:30, og hélzt það veður allan daginn, en unnið var sleitu- laust við gryfjugröft, og var því lokið um kl. 18:30. Var dýpt gryfjunnar þá orðin 6 metrar. Matarhlé var þó um kl. 14. Var mikill heitur matur á boðstólum: kjöt, baunir, kartöflur, kaffi og jólakaka. Að loknum gryfjugreftri var gert stutt kaffihlé, áður en hafizt var handa um borun úr botni gryfjunnar. Iskjarnarnir voru vigtaðir, mældir og settir í dósir jafnóð- um, eins og á færibandi, enda nokkur þjálfun komin og verkaskipting. I talstöð fréttist, að Gusi, Naggur og Flugbjörgunarsveitarsnjóbíl- arnir tveir væru á Pálsfjalli eða þar nærri, en myndu fara þaðan í kvöld eða nótt niður að Jökulheimum, og búast við að verða i Reykja- vík laugardag eða sunnudag. Frá Bárðarbungu bárust fremur stopular fréttir frá Jökli II, en einhverjir erfiðleikar voru við borunina þar, 66 JÖKULL 21. ÁR því að nýr drifmótor var sendur til þeirra í flugvél í gærkvöldi, sendur niður í fallhlíf. — Kl. 22 var lokið við að grafa og bora alls niður í tæplega 12 metra dýpi og setja sýnin í plast- dósir. Var þá farangur tekinn saman og kl. 23:45 lagt af stað frá þessari borholu V. 13, ca. 6 km norðan við Hermannaskarð, og tekin stefna á næsta borstað, V. 14, þar sem grafa skyldi næst samkvæmt áætlun. Lentum við þá í miklu sprungusvæði, sem hindraði för að þeim stað, sem merktur hafði verið til borunar á kortið. Var ekki um annað að ræða en þræða sömu leið til baka, og fylgja gömlu slóðinni okkar, sem ekin var á suðurleið. Kl. 03:30 kom- um við að þeim stað, sem ákveðið var nú að grafa V. 14. Var þá þegar tjaldað og farið að sofa um kl. 04. 31. maí, laugardagur. Þegar vaknað var í tjaldinu við væntanlega borholu, V. 14, um kl. 10:30 var ennþá þoka yfir jöklinum, hreint ekkert útsýni, en nú var líka kominn rigningar- suddi, sem sagt mikið leiðinda- en meinleysis- veður. Strax að loknu morgunkaffi var tekið til við að grafa gryfjuna, þó með matarhléi kl. 16:30—18. Alls var grafið og boiað niður í 8,52 metra dýpt, niður í gegnum tvö árlög í jökl- inum. Var þessu lokið um kl. 23:10. Var þykkt, glært íslag neðst. I gryfjunni voru þarna mörg minni íslög, óregluleg að þykkt, íslinsur úr glær- um ís. Víða voru mörg þunn íslög 0,5—1,0 mm þykkt, sem virtust vera dagslög. Þykkt síðasta vetrarlags í holu V. 14 reyndist vera um 3.6 metrar. — Með nóttunni fór að kólna og snjóa. Ljósmyndarinn setti þá upp skjóltjald til makromyndatöku af snjókristöllum, bæði af ný- föllnum snjó og úr 1,5 metra dýpt úr snjó- gryfjunni. Horfðu ferðafélagarnir nokkra stund á aðfarir ljósmyndarans, sem þeir sögðu síðar, að hefði hlaupið um allan jökul að veiða snjó- kristalla á glerplötur til ljósinyndunar. Ekki entist þó áhorfendaskarinn til að fylgjast með þessum veiðum nema til kl. 01, en ljósmyndar- inn mun ekki hafa skriðið í svefnpokann fyrr en um kl. 04. 1. júní, sunnudagur. Vaknað var við borholu V. 14 um kl. 09:30. Komin var þoka og snjó- mugga eða slydda, en stillt veður. Útsýni sára- lítið. Var nú búizt til ferðar. Fyrst var leitað að jökulskeri einu nýju, sem talið var að væri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.