Jökull - 01.12.1971, Blaðsíða 35
Nr. 286. Snjófióð í Mýrdal. Heimild: Morgun-
blaðið 23.-24. marz 1968. Tíminn 23.-24. og
26. marz 1968.)
Ardegis föstudaginn 22. marz féll snjóflóð að
Lækjarbakka í Reynishverfi í Mýrdal. Braut
það niður fjárhús og hlöðu og sópaði brakinu
með sér 200—250 metra. í húsunum voru 150
kindur og í sambyggðri 500 liesta hlöðu um
300 liestar af heyi. Foráttu veður var og kol-
dimm hríð. Húsin stóðu í um 200 m fjarlægð
frá bænum.
Bóndinn á Lækjarbakka fór með seinna móti
til húsanna þennan morgun eða á tíunda tím-
anum, því hann varð fyrst að gegna fjósstörf-
um, en rafmagnslaust var og tóku þau þvl
lengri tíma en venjulega. Mun þetta hafa orðið
honum til lífs, því þegar hann kom á vettvang
var snjóflóðið nýfallið.
Talið var, að snjóflóðið hefði breiðzt yfir um
fjóra ha. Af kindunum fórust um 120, en heyið
bar flóðið langa leið og tapaðist mikið af því
út í veður og vind. Húsin, sem snjóskriðan
tók þarna, voru tvö sambyggð kindahris, tvær
heyhlöður og skúr. Allt voru þetta traustar
byggingar og vel viðaðar, en allir viðir fóru í
brak.
(Nr. 287.)
Síðdegis þennan sama dag féll annað snjó-
flóð á Efri-Presthúsum í Reynishverfi. Tók það
fjárhús og hlöðu. Voru í húsunum 100 fjár,
eign Guðjóns Guðmundssonar á Presthúsum og
Olafs sonar hans. Þarna fórust 80 kindur, en
ekkert hey mun hafa verið í hlöðunni. Brakið
barst um 70 metra með flóðinu.
Safnað var mönnum þá þegar og revnt að
bjarga úr hlaupunum, en aðstaða var hin
versta, aftakarok og ófærð, svo við lítið varð
ráðið.
(Nr. 288.)
Þrjú snjóflóð til viðbótar munu hafa fallið
úr Reynisfjalli þennan dag þarna niður í hverf-
ið. Fór eitt þeirra milli íbúðarhúss og fjárhúsa
á Reyn. Það gerðist rétt eftir, að þrír menn
áttu leið þar um.
(Nr. 289.)
Annað féll við býlið Garð, en það nam staðar
um 70 metra frá bænum.
(Nr. 290.)
Hið þriðja féll um 250 metra fyrir austan
Reyn.
Flóðin komu úr 500—600 m hæð. Tjónið af
snjóflóðunum á Lækjarbakka og Efri-Presthús-
um var geysi mikið.
(Nr. 291. Snjóflóð í Ólafsfjarðarmúla. og Auð-
bjargarstaðabrekku. Heimildir: Morgunblaðið
16. og 19. maí 1968, Tíminn 14. maí 1968.)
Hríðarveður var á Ólafsfirði 11,—12. maí með
miklum snjómokstri og norðaustankalda. Laug-
ardaginn 11. maí varð Múlavegur ófær. Þá féll
á hann snjóflóð úr Bríkárgili og stöðvaðist öll
umferð um veginn í bili eða fram á mánudag.
A þeim tíma er talið, að þrjú önnur snjóflóð
hafi fallið á veginn.
(Nr. 292.)
Þ. 11. maí féll einnig snjóflóð í Auðbjargar-
staðabrekku í Kelduhverfi, svo ryðja varð veg-
inn.
(Nr. 293.)
Föstudagskvöldið 17. maí féll 8 metra breið
snjóskriða á veginn fyrir Ólafsfjarðarmúla, rétt
eftir að áætlunarbíllinn frá Dalvík fór þar um.
Sólbráð var kennt um og talið líklegt, að fleiri
féllu.
(Nr. 294. Snjóflóð i Auðbjarga,rstaðabrekku.
Heimild: Veðráttan.)
Snjóflóð féll í Auðbjargarstaðabrekku f
Kelduhverfi aðfaranótt laugardagsins 21. desem-
ber. Vegurinn tepptist um stundarsakir.
1969
(Nr. 295. Snjóflóð i Bíldudal og Kirkjubólsdal.
Heimild: Morgunblaðið 14. marz 1969.)
I miklum vatnavöxtum og úrfellum 12.-13.
marz hlupu bæði skriður og snjóflóð á sunnan-
verðum Vestfjörðum. I Bíldudal féll snjóflóð
aðfaranótt fimmtudagsins þess 13. marz á íbúð-
arhús í framanverðu þorpinu, braut eldhús-
glugga og fyllti eldhúsið og tvö önnur herbergi
af snjó, en stórskemmdi innbú. Ung hjón
bjuggu í liúsinu og vöknuðu þau ekki fyrr en
snjórinn var kominn að rúmum þeirra. Litlu
síðar féllu þarna tvær snjóspýjur tií viðbótar.
Þetta gerðist milli kl. 1 og 2 um nóttina.
JÖKULL 21. ÁR 33