Jökull - 01.12.1971, Blaðsíða 82
Hjáhnar R. Bárðarson: ÍS OG ELDUR,
andstæður íslenzkrar náttúru. Myndir og
texti 171 bls. Utg. Hjálmar R. Bárðarson,
Reykjavík 1971. Bókin er gefin út á tveim-
ur tungumálum, íslenzku og ensku. Ensku
þýðinguna annaðist Sölvi Eysteinsson, og
er hún nákvæm og vönduð. Bókin er prent-
uð í Hollandi hjá Joh. Enschedé En Zonen,
Haarlem.
Hjálmar R. Bárðarson er lesendum Jökuls
kunnur af greininni „Icing of Ships' í Jökli
1969, og ekki síður af þátttöku í leiðöngrum
á Vatnajökul til ísborana á sviði nútíma jökla-
fræði. Hann hefur annazt hina vísindalegu
myndatöku leiðangranna. Síðastliðin fjögur ár
hafa forsíðumyndir á Jökli verið eftir Hjálmar
R. Bárðarson.
Að starfi er Hjálmar skipaverkfræðingur og
siglingamálastjóri, en háfjöllin og jöklarnir
eiga hlutdeild í honum. Þeir, sem stunda rann-
sóknir á sviði náttúruvísinda hér á landi, þekkja
vel til dugnaðar Hjálmars. Hann hikar ekki
við að leggja á brattann lilaðinn byrðum af
hvers kyns ljósmyndaútbúnaði, sem hann hefur
að hluta smíðað sjálfur, því að nákvæmn-
in og fullkomleiki ljósmyndarinnar er honum
fyrir öllu. Við hin erfiðustu skilyrði, hvort
heldur er í næðingi á jökli eða við eldkviku
hrauna, gefur hann sér góðan tíma til að at-
huga, hvaða filma á við, hvaða linsa o. s. frv.,
hann kastar ekki til þess höndunum. Enda
verður árangurinn eftir því. Hjálmar fylgir
eigi þeirri stefnu, að taka margar myndir og
velja síðan úr. Vandvirkni hans í hvívetna er
of mikil til þess. Hann tekur fáar myndir en
góðar, hann leitar stöðugt að hinni „ídeölu“
fullkomnun.
Hjálmar er áhugaljósmyndari. Hann hefur
flutt marga fyrirlestra um ljósmyndatækni,
einkum urn nærmyndun og kyrralífsmyndun, og
hefur gefið út kennslubók á dönsku um það
efni.
Arið 1965 gaf Hjálmar R. Bárðarson út
myndabókina „Iceland, to give a general idea
of the country and its people“. Þegar fréttir
bárust út, að myndabókin ís og eldur væri í
uppsiglingu, var af kunnugum gert ráð fyrir
vandaðri og listrænni bók. Þær vonir hafa ekki
brugðizt. Myndræn túlkun á skini og skuggum
er frábær. Er þar órofasamband á milli heið-
ríkju og litauðgi íslenzkrar náttiiru og snilldar-
vandvirkni höfundar. Sem listræn myndabók á
hún vel heima á litla kaffiborði húsfreyjunnar.
En hún er meira en myndabók með 122 svart-
hvítum myndum og 83 í lit. Bókin er heil-
steypt verk, eins konar kennslubók, jöfnum
höndum handa stúdentum sem prófessorum eða
öllum þeim, sem skyggnast vilja inn í andstæð-
ur íslenzkrar náttúru. Bókin dregur fram átök
elds og ísa. Rauðglóandi hraunkvika flæðir í
sjó við Surtsey. Hafís lokar siglingaleiðum fyrir
Norðurlandi. Jöklar brjóta og sverfa niður
landið, en í skjóli þeirra vex fegursti gróður
þess. Hvarvetna eru andstæður, sem Hjálm-
ar túlkar bæði í máli og myndum. Nokkur
ljóður er það á bókinni, að vísu ekki stórvægi-
legur, að á einstöku blaðsíðum eru sömu setn-
ingarnar, frá orði til orðs, bæði í texta og
myndaskýringum.
Svipmyndum úr vísindaleiðöngrum á jöklum
er brugðið upp.
Hverjum, sem óskar að sjá og kynnast ís-
lenzkri náttúru, ráðlegg ég að lesa þessa bók.
Is og eldur er bók til lesturs og endurlestur.
Sigurjón Rist..
80 JÖKULL 21. ÁR