Jökull - 01.12.1971, Page 38
húsfreyjuna, sem hafði alveg færzt í kaf. Tók
það ekki langan tíma en hún kenndi meiðsla í
brjósti og var flutt á sjúkrahús. Ekki munu þó
meiðsl hennar hafa reynzt alvarleg.
Miklar skemmdir urðu á húsinu og þó eink-
um á innanstokksmunum. Til marks um afl
hlaupsins er, að það reif upp með rótum fimm
metra hátt grenitré er stóð sunnan undir hús-
inu, og fannst það niðri á næstu lóð.
Snjóflóð þetta olli einnig nokkrum skemmd-
um á kirkjugarðinum og braut niður áhalda-
hús í suðvesturhorni garðsins.
Snjóflóð þetta kom úr fjallinu upp af miðj-
um bænum. í þau 26 ár, sem Kjartan hafði
búið þarna, hafði snjóflóð aldrei komið nærri
húsinu.
(Nr. 318.)
Aðfaranótt mánudagsins 15. febrúar féll svo
snjóflóð sunnar í fjallinu, niður yfir fjárhúsa-
hverfi bæjarins, braut það niður þrjú hús og
drápust þar 75 kindur.
Þriðja snjóflóðið féll svo á mánudagsmorgun-
inn 15. febrúar á Hvanneyrarströnd, braut þar
niður eitt fjárhús og drap ellefu kindur. Enn-
fremur tók það sumarbústað, færði hann niður
í fjöru og stórskemmdi.
(Nr. 320. Snjóflóð hjá Munaðarnesi við Ingólfs-
fjörð. Eleimild: Morgunblaðið 24. marz 1971.)
Um kl. 9 árdegis mánudaginn 22. marz féll
mikið snjóflóð úr fjallinu fyrir ofan býlið Mun-
aðarnes við Ingólfsfjörð. Það var meira en kíló-
meter á breidd, braut og tók með sér átta síma-
staura og stóran hluta af túngirðingunni og bar
á sjó fram, skemmdi geymsluhús utarlega á tún-
inu og jeppa. Flóðið nam staðar skammt frá
íbúðarhúsinu.
Um nóttina liafði kyngt niður miklum snjó
ofan á harðfenni.
(Nr. 321. Snjóflóð á Skipadal, Hrafnseyrarheiði.
Heimild: Morgunblaðið 23. og 24. marz 1971.)
Um hádegisbil mánudaginn 22. marz fóru
þeir Sigurður Þórðarson, 30 ára bóndi, Auð-
kúlu, Arnarfirði, og Jón Elfars Valdimarsson,
15 ára piltur frá Blönduósi, frá Auðkúlu og
ætluðu til Þingeyrar við Dýrafjörð. Var svo um
talað, að þeir létu vita, er þeir kæmu í sælu-
liúsið á heiðinni.
Er ekkert heyrðist frá þeim Sigurði á tilsett-
um tíma, var leit hafin bæði frá Auðkúlu og
Þingeyri. Þeir félagar höfðu ekið á bíl að svo-
nefndri Geldingadalsá, en er komið var upp á
Skipadal, um klukkustundar gang frá bílnum,
hafði snjóflóð mikið fallið þar úr norðurhlíð
dalsins og þar þraut slóð þeirra. Var þá safnað
liði og leitað í flóðinu og fundust lík þeirra
Sigurðar og Jóns á þriðjudagsnóttina eftir mikla
leit neðarlega í dalnum, alllangt frá vegi. Voru
um tveir metrar niður á lík Jóns Elfars, en lík
Sigurðar á fjögurra metra dýpi.
Viðauki frá S. Rist.
Skipadalur er örstuttur, fláandi dalur með
sléttar og brattar urðarskriður. Hann gengur
vestnorðvestur í fjöllin út frá Hrafnsevrardal.
Þjóðbrautin, Vestfjarðavegur, liggur um Skipa-
dal í miklum sveig. Skafrenningur úr norðlæg-
um áttum safnar snjó í norðurkinnina. Brekka
norðurkinnarinnar nyrzt og austast er úthverf.
Snjóflóðið 22. marz var flekahlaup. Dagana
5.-8. marz var asahláka og rigning við Arnar-
fjörð. Næstu daga þar á eftir aðgerðalítil veð-
ur, en síðan frosthörkur og stöku él fram að 20.
Rifahjarn á fjöllum. Síðla dags h. 20. tók að
snjóa. Kyngdi þá niður miklum snjó á harð-
fennið. Kóf mikið var af austri og norðaustri
síðari hluta dags h. 21., en veður gekk niður
að morgni 22. og þá tók að draga úr frosti.
Ingólfur Guðmundsson, Mjólkárvirkjun, sendi
mér skýrslu um hlaupið. Hann segir m. a.:
„ .. . Það var norðurkinn Skipadals, sem
hljóp. Brotlína var upp við kinnarenda að norð-
an og lá svo í sveig vestur neðan brúnar um
300 m á breidd. Brotið var þverstífður stallur
um 1 i/g—2 m á hæð. Lengd hlaupsins 600 m.
Það hefur sennilega byrjað að renna undan
fótum þeirra Sigurðar og Jóns, því að slóð
þeirra var rakin, þar til hún hvarf undir snjó-
flóðið, rétt við veginn. Hundur hafði fylgt
þeim að heiman. Hann var við jeppann, er
Hreinn Þórðarson, bróðir Sigurðar, kom þar
að. Sáust för eftir hundinn, þar sem hann
hafði komizt úr hlaupinu, en honum hefur
tekizt að halda sig ofan á því, og voru förin
fyrir miðju hlaupinu nálægt 50—60 metrum
fyrir neðan veg, skammt frá þeim stað, er menn-
irnir fundust síðar.
Leitin. Hreinn kom fyrstur á slysstaðinn eða
36 JÖKULL 21. ÁR