Jökull


Jökull - 01.12.1971, Page 66

Jökull - 01.12.1971, Page 66
Mynd 2. Á leið úr Hermannaskarði til Öræfa jökuls. Þuríðartindur t. h., Esjufjöll í baksýn Fig. 2. On the way to Örœfajökull. Thurídartindur to the riglit, Esjufjöll in the background. Photo: Hjálmar R. Bárdarson May 27, 1969. á áttavita og mældi lengdina á slóðinni með jöfnu millibili til að staðsetja hana á kort. Þegar komið var suður undir Hermannaskarð var beygt nokkuð í vestur frá stefnunni á Þuríðartind, og ekið niður í skarðið. Sleðar voru skildir eftir í brekkunni upp úr Her- mannaskarði, til að létta á bílunum, áður en jökullinn tók að hækka að ráði suður á við, upp á Jökulbak og Öræfajökul, sem er hækkun úr 1350 m í yfir 2000 m. Vegna fyrirhugaðrar lengri dvalar okkar á Gosa á Öræfajökli urð- um við enn síðbúnari, því að við þurftum að taka mikinn farangur úr sleðanum og setja inn í Gosa. Að því búnu var ekið áfram upp yfir Jökulbak (1922 m), niður í Tjaldskarð (1844 m) og þaðan upp á Snæbreið (2041 m) í Öræfa- jökli, en þar blasti hæsti tindur landsins, Hvannadalshnúkur, við okkur í suðaustri í um tveggja kílómetra fjarlægð. Veður var enn hið fegursta, glaða sólskin, þótt liðið væri á dag. Var staðnæmzt augnablik á hábungu Snæbreið- ar, en þar höfðu hinir tveir snjóbílarnir beðið komu okkar á Gosa, en síðan renndu þeir sér léttilega niður að rótum Hvannadalshnúks. Þegar við komum þangað um kl. 23, höfðu allir úr hinum tveimur snjóbílunum lagt af stað upp á Hvannadalshnúk. Litlu síðar voru farar- stjóri Gosa og ljósmyndarinn líka ferðbúnir 64 JÖKULL 21. ÁR með talstöðvarbúnað og myndavélar. Var geng- ið á mannbroddum vegna mikillar ísingar á leiðinni upp. Veður var ennþá dásamlega fagurt. Síðustu geislar kvöldsólarinnar roðuðu hátind Hvannadalshnúks, en neðra hafði kvöld- húmið blálitað ísbreiður gígskálar Öræfajök- uls. Skýjabakkar huldu „láglendið“ fyrir neðan 1000 metra hæð, en norður yfir breiður Vatna- jökuls var ennþá bjart og skyggni ágætt allt til Kverkfjalla. Þegar við Gosa-menn komum á há- tindinn eftir nokkrar tafir við ljósmyndun, voru áhafnir hinna snjóbílanna þegar lagðar af stað niður aftur. Kvöddumst við þar á Hvannadalshnúk í þetta sinn, því að þeir höfðu ákveðið að nota þetta góða veður til að komast til baka aftur norður á meginjökulinn. Þótt köld væri miðnæturgolan i 2119 metra hæð var erfitt að slíta sig frá þessu stórbrotna útsýni, og varð dvölin þar á hátindinum um li/2 klst. Lögðum við út 50 metra loftnet, og átti Carl viðtal við Reykjavík með lítilli transistortal- stöð, sem hann hafði haft með upp. Komum við aftur niður að réttum Hvannadalshntiks um kl. 04. Var slegið upp tjaldi þar, og vorum við ekki lengi að festa svefn, enda orðnir svefn- þurfi, eftir langan vinnudag og vinnunótt í Grímsvötnum og síðan akstur án svefns að Hvannadalshnúk.

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.