Jökull - 01.12.1971, Page 71
— Um kvöldið fórum við allir niður í íshellana
í Grímsfjalli, sem voru sæmilega opnir. Var
dvalizt þar um hríð, m. a. við myndatöku og
skoðun á íslögum. Víða er bláminn þar ævin-
týralegur, þar sem dagsbirtan nær að skína í
gegnum rifur við opin, en neðra er niðarnyrkur.
4. júní, miðvikudagur. Hvílzt var í skálanum
á Grímsfjalli til kl. 11:30, en þá hafin matar-
gerð, borðað og tekið til í skálanum. Síðan
gengið frá honum til brottfarar. Nú var hins
vegar komin blindþoka, útsýni hreint ekki
neitt, þótt birtan væri mikil. Við lögðum af
stað frá Grímsfjallaskála kl. 15. Var ekið mjög
hægt að Vestari Svíahnúk, um þriggja km leið.
Yfir þetta varhugaverða sprungusvæði gekk
maður á undan bílnum. Eftir tveggja tíma akst-
ur var komið að Svíahnúk vestari. Var öku-
hraðinn þannig 1,5 km/klst. Útsýni var ennþá
ekkert, þoka og rigningarsuddi. Var nú tekin
áttavitastefna að snjóvörðunni, sem við hlóð-
um á uppleið utan í Háubungu, þar sem ákveð-
ið var að grafa síðustu snjógryfju ferðarinnar.
Var komið þangað kl. 21, borðað, og síðan
strax byrjað að grafa gryfjuna, og unnið við
það fram eftir nóttu.
5. júni, fimmtudagur. Enn var verið að grafa
snjógryfjuna utan í Háubungu, þegar sást til
ferða Jökuls II í þokunni um kl. 02. Urðu
fagnaðarfundir miklir, þegar Bárðarbungu-
menn óku í hlað. Vinnu var þó haldið áfram
við gröft, borun og sýna-söfnun að venju, og
loks kl. 06 var lagt af stað í samfloti áleiðis
til jökulrandar, en þangað var komið kl. 10:30.
Gekk vel að aka niður af jökli. Voru sleðar
skildir eftir í bili inni við jökul, en snjóbílun-
um ekið til Jökulheima og nokkru af farangri
í Rauð og á bíl Magnúsar Eyjólfssonar. Var
komið að Jökulheimum kl. 11:45 og þegið kaffi
hjá Pétri Sumarliðasyni, veðurathugunarmanni.
Síðan var farið aðra ferð upp að jökli, á meðan
kokkar Bárðarbungu- og Suðurjökla-manna sáu
um matseld úr afgöngum frá báðum leiðang-
urshópunum. Var gerður sæmilegur rómur að
réttum þeim, sem voru á borð bornir um kl.
15—16:30. Var þetta sagður margréttaður mat-
ur: kjötréttir eftir vali, baunir, gulrætur, súpa
og kaffi með tilheyrandi viðbiti í nýja skála í
Jökulheimum. Að máltíð lokinni var lagzt til
svefns, og sofið til kl. 21:30. Var þá unnið við
að taka farangurinn úr snjóbílunum, og síðan
drukkið kvöldkaffi. Nú var komin suddarign-
ing, kyrrt veður, en útsýni lítið. Þó sá til jökuls,
og var greinilega sama veður þar líka. Um kl.
01 var aftur lagzt til svefns í Jökulheimum.
6. júni, föstudagur. Að morgni var búist til
heimferðar frá Jökulheimum og ekið til Reykja-
víkur, með hefðbundinni dvöl við pylsubarinn
á Selfossi. Var þar með lokið árangursríkri og
ánægjulegri sumarferð Jöklarannsóknafélags ís-
lands á Bárðarbungu og suðurjökla árið 1969.
JÖKULL 21. ÁR
69