Jökull

Ataaseq assigiiaat ilaat

Jökull - 01.12.1994, Qupperneq 61

Jökull - 01.12.1994, Qupperneq 61
þann tíma er ekki vitað. Ekki var þetta jafn og stöðugur framburður af mó, en stundum talsvert mikill. Eftir að farið var að nota kerrur á Kvískerjum (1916) var öðru hvoru sóttur mór að Breiðá, stundum á tvær til þrjár kerrur í einu en sum árin bar lítið á að áin bæri fram mó. Dálítið var af lurkum í mónum, en lítið af stórum stofnum. Breiðamerkurfjall virðist hafa verið notað fyrir fráfærnalömb eitthvað fram á 18. öld, sbr. orð sr. Gísla Finnbogasonar í bréfi til Ama Magnússonar um 1700 um að það verði ekki notað til lambagöngu því þar girði nú jökull í kring ( Kristian Kálund, 1914). Isleifur Einarsson segir um Hafrafell 1709 að það hafi verið upprekstrarland; nú óbrúkandi því allt er komið í jökul. Þetta bendir til að ekki hafi verið langt um liðið frá því að jöklar gengu saman framan við fjöllin því menn hafa nokkuð fljótt áttað sig á að hægt var að reka kindur yfir jökulinn, en það gæti þó hafa verið verra fyrstu árin. Þegar jöklamir fóru að ganga fram, hafa þeir vikið ánum sitt á hvað. Bjöm Pálsson kvaðst hafa séð jökul- vatn í hverjum einasta farvegi á Breiðamerkursandi að undanskyldum Nýgræðum og Fitjum frá aldamót- um til 1940, en oft ekki nema skamma stund í einu í hverjum farvegi. Líklegt má telja að svipað hafi þetta verið áður, en nokkur óvissa er samt hvemig gróður- eyðingin gerðist, hvort árnar rifu niður grassvörðinn eða huldu hann aur, en það hefur að minnsta kosti sums staðar gerst. Þegar Fjallsá flutti sig í núverandi farveg 1936 gróf hún sér djúpan farveg um jökulöldur og möl. Undir mölinni, um það bil tveim metrum undir yfirborði reyndist vera jarðlag, sem mun hafa verið hálft fet að þykkt, en vegna þess að alltaf var nokkurt vatn yfir því var það aldrei kannað vel. Undir jökulöldunum nokkru ofar er þunnt jarðlag sem vel er hægt að athuga þó e.t.v. þurfi að grafa frá því möl sem hrapað getur úr öldunni. Þegar Breiðá sameinaðist Fjallsá 1954 gróf hún sér farveg þvert fyrir framan Breiðamerkurfjall. Þar kom í ljós þunnt jarðlag sem ætla má að hafi verið yfirborð lands áður en jökull gekk yfir það. Vel má því vera að víða megi finna jarðlag með gróðri undir mölinni ef borað væri. Hugsanlega væri hægt með skipulegum rannsóknum að rekja þróun svæðisins frá landnámi til þessa dags, sem mundi að sjálfsögðu skýra ýmislegt annað. Lítið er um heimildir um gróðurfar á Breiðar- merkursandi á fyrri tíð. Þó getur Isleifur Einarsson um Fjallsfit 1709, og svo vill til að hægt er að vita nokkum veginn hvar hún var, því til er vitnisburður frá 1701 um að mörkin milli Fjalls og Kvískerja voru um vörðu vestast á Fjallsfit, en mörkin munu vera óbreytt. Meðan Fjallsfit var við líði hlýtur Fjallsá að hafa runnið nokkuð mikið austar en hún gerði í byrjun þessarar aldar, sennilega í farvegi í Króknum, en rétt fyrir aldamótin rann þar hluti Fjallsár og var sú á nefnd Deildará (sögn B.P.). Vestan við Fjallsfit var aðal gras- og slægjuland Kvískerja og voru Fitjar sem Fjallsá og Hrútá hafa nú eytt vestasti partur þess. Nærri austur við mörkin sem áður getur, héldust tvö ömefni fram á sjöunda tug síðustu aldar, sem bentu til að þar hefði áður verið meiri gróður; Langibakki og Stórasvæða (B.P. eftir móður sinni). Um svipað leyti var jökullinn að ganga yfir svæði austan við mörkin vaxið það háum víði að lítið bar á kindum þar. Þegar sást hvað að fór skóguðu Hofsmenn viðinn sem var á nokkra hesta. TILVITNANIR Blanda I. Fróðleikur gamall og nýr, 1918. Jón Eyþórsson, 1952. Þættir úr sögu Breiðár. Jökull 2, 17-20. Kristian Kálund, 1914. Afmælisrit. Landnámabók. Njálssaga. Sveinn Pálsson, 1935. Ferðabók. Vegna mistaka í prentun 43. árgangs afJökli er grein þessi endurprentuð. JOKULL, No. 44 59
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Jökull

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.