Jökull


Jökull - 01.12.1994, Side 83

Jökull - 01.12.1994, Side 83
/ Jöklarannsóknafélag Islands Skýrsla stjómar Jörfi á aðalfundi 28. febrúar 1995. SKIPAN STJÓRNAR OG NEFNDA Síðasti aðalfundur Jöklarannsóknafélags Islands var haldinn 22. febrúar 1994. Fundarstjóri var Hjálmar R. Bárðarson og Guttormur Sigbjarnarson ritari. A fyrsta stjómarfundi eftir aðalfund, 7. mars, skipti stjóm með sér verkum og dregið var um röð manna í vara- stjóm. Stjómin var þannig skipuð: Aðalstjórn: Helgi Bjömsson formaður, kosinn 1992 til þriggja ára. Einar Gunnlaugsson varaformaður, kosinn 1993 til tveggja ára Oddur Sigurðsson ritari, kosinn 1993 til tveggja ára. Jón E. Isdal gjaldkeri, kosinn 1994 til tveggja ára. Stefán Bjamason meðstjómandi, kosinn 1994 til tveggja ára. Varastjórn: Hannes H. Haraldsson 1. varamaður, kosinn 1994 til tveggja ára. Alexander Ingimarsson 2. varamaður, kosinn 1993 til tveggja ára. Astvaldur Guðmundsson 3. varamaður, kosinn 1993 til tveggja ára. Jón Sveinsson 4. varamaður, kosinn 1994 til tveggja ára. Valnefnd skipuðu Sigurjón Rist kosinn 1993 til þriggja ára, Gunnar Guðmundsson, kosinn 1992 til þriggja ára og Sveinbjörn Björnssson kosinn 1994 til þriggja ára. Oddur Sigurðsson, ritari félagsins, hafði umsjón með fundagerðum og fréttabréfi, en Einar Gunnlaugs- son sá um félagaskrá, dreifingu Jökuls innanlands og utan, gíróseðla og samstarf um slík mál við gjaldkera. Stjóm félagsins kaus formenn hinna ýmsu nefnda og völdu þeir sér nefndarmenn. Nefndir voru þannig skipaðar: Rannsóknanefnd: Helgi Bjömsson formaður og Jón Sveinsson, Raunvísindastofnun, Hannes H. Har- aldsson, Landsvirkjun, Oddur Sigurðsson, Orku- stofnun og Magnús Már Magnússon, Veðurstofu. Ritnefnd: Helgi Björnsson og Bryndís Brandsdóttir tilnefnd af Jörfi og Leó Kristjánsson, Karl Grön- vold og Kristján Sæmundsson tilnefndir af Jarð- fræðafélagi. A árinu lét Leó af störfum og Aslaug Geirsdóttir tók við sem ritstjóri. Skálanefnd: Stefán Bjarnason formaður, Alexander Ingimarsson, Astvaldur Guðmundsson, Guðlaug- ur Þórðarson, Jón E. Isdal og Sverrir Hilmarsson. Bílanefnd: Halldór Gíslason yngri formaður, Arni Páll Árnason, Garðar Briem, Hafliði Bárður Harðarson og Þorsteinn Jónsson. Ferðanefnd: Ástvaldur Guðmundsson formaður, Árni Páll Árnason, Hannes H. Haraldsson og Soffía Vernharðsdóttir. Bílanefnd sá að þessu sinni um störf skemmtinefndar. Endurskoðendur félagsins voru Elías B. Elíasson og Ámi Kjartansson. Hinn 26. janúar 1995 voru félagar skráðir 528, 14 heiðursfélagar, 423 almennir félagar, 9 fjölskyldu- félagar, 47 stofnanir og 35 bréfafélagar. Auk þess fengu 7 fjölmiðlar sendann Jökul og fréttabréfið. Erlendir áskrifendur voru 70. FJÁRVEITING Fram að árinu 1992 fékk Jöklarannsóknafélag íslands styrk af fjárlögum til útgáfu tímaritsins Jökuls og til rannsókna af fjárlagaliðnum „Vísindaleg starf- semi, styrkir. Vísinda- og fræðistörf1. Á árinu 1992 nam þessi styrkur 450 000 kr. samkvæmt ákvörðun Fjárlaganefndar. Síðan tók Menntamálaráðuneytið JOKULL, No. 44 81

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.