Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2014, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2014, Síða 3
Fréttir 3Vikublað 21.–23. október 2014 Pósturinn setti 55 milljónir í Samskipti Forstjóri ríkisfyrirtækisins Íslandspósts telur kaupin á Samskiptum hafa borgað sig R íkisfyrirtækið Íslandspóstur jók hlutafé dótturfélags síns, prentþjónustufyrirtækisins Samskipta ehf., um 55 millj- ónir króna í fyrra. Fyrir vik- ið er eiginfjárstaða Samskipta ehf. orðin jákvæð í fyrsta skipti síðan Ís- landspóstur keypti fyrirtækið árið 2006. Þetta kemur fram í ársreikningi Samskipta fyrir árið í fyrra en þá skil- aði fyrirtækið hagnaði upp á ríflega 9 milljónir króna. Viðskiptin gagnrýnd Viðskipti Íslandspósts með Samskipti ehf. vöktu athygli árið 2006 og voru meðal annars gagnrýnd af þingmanni Sjálfstæðisflokksins, Sigurði Kára Krist- jánssyni. Í fyrirspurn til samgönguráð- herra, Kristjáns Möller, á Alþingi sagði Sigurður Kári: „Ekki er langt síðan Ís- landspóstur keypti prentsmiðjuna Samskipti af einka aðilum. Með þeim kaupum blandaði fyrirtækið sér af full- um þunga í samkeppni á prentmark- aði, markaði sem einkafyrir tæki hafa sinnt fram að þessu.“ Með kaupunum var ríkisfyrir- tæki, sem hefur einkarétt á dreifingu bréfa sem eru undir 50 grömmum, að færa kvíarnar út í rekstur sem er í samkeppni við einkaaðila á mark- aði. Ekki verður sagt að kaupin á Samskiptum hafi borgað sig fyrir Íslandspóst. Í frétt um Íslands- póst í DV í fyrra kom fram að fyrir- tækið hefði frá aldamótum tapað um 1.400 milljónum króna á þeim hluta rekstrar síns sem rekinn er í samkeppni við einkaaðila á markaði en hluti af þeirri starfsemi er rekstur Samskipta ehf. Lán frá Íslandspósti Með hlutafjáraukningunni er eig- infjárstaða Íslandspósts orðin já- kvæð um ríflega 26 milljónir króna. Í lok árs 2012 var eiginfjárstaðan hins vegar neikvæð um ríflega 38 millj- ónir króna. Jákvæða eiginfjárstaðan er því tilkomin vegna hlutafjáraukn- ingarinnar. Þá hefur Íslandspóstur einnig lánað Samskiptum háar fjár- hæðir í gegnum árin og fóru skuldir prentfyrirtækisins við ríkisfyrirtækið úr 27 milljónum og í 55 árið 2012. Þessi skuld var svo greidd niður um rúmlega 45,5 milljónir króna í fyrra. Á sama tíma og Íslandspóstur hefur lagt Samskiptum til fé á liðn- um árum hefur viðskiptavild vegna Samskipta verið afskráð úr bókum Ís- landspósts. Þegar fyrirtækið var keypt árið 2006 nam viðskiptavildin 136 milljónum en lækkaði stöðugt árin á eftir þar til hún var afskrifuð með öllu árið 2011. Tap Íslandspósts á kaupunum á Samskiptum er því nokkuð: Ríkisfyr- irtækið hefur afskrifað viðskiptavild vegna kaupanna, lánað félaginu fjár- muni, lagt til hlutafé og keypt af því fasteignir. Telur fjárfestinguna hafa borgað sig Í samtali við DV segir Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts, að fyrirtækið sé meðvitað um hversu mikið tap sé á fjárfestingunni í Sam- skiptum ehf. Hann segist samt sem áður telja að fjárfestingin í Samskipt- um hafi borgað sig. „Já, við teljum það. Alveg tvímælalaust,“ segir Ingi- mundur. Ingimundur var ráðinn forstjóri Íslandspósts árið 2004 og áttu við- skiptin með Samskipti sér því stað eft- ir að hann tók við stjórnar taumunum í fyrir tækinu. Ingimundur hefur verið við stjórnvölinn hjá Íslandspósti þann tíma sem ríkisfyrirtækið hefur lagt Samskiptum til fjármuni í formi lána og hlutafjár. n Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Telur fjárfestinguna hafa borgað sig Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslands- pósts, telur fjárfestinguna í Samskiptum hafa borgað sig þrátt fyrir tap- reksturinn í gegnum árin. M atthías Máni Erlingsson afplánar dóm sinn nú í fangelsinu að Sogni. Hann strauk eftirminnilega af Litla-Hrauni um jólin 2012 en talið var að hann hefði klifrað yfir girðingarnar tvær við fangelsið. Á Sogni eru hins vegar engar girðingar. „Fangelsið er skilgreint sem opið fangelsi en það felur í sér að engar girðingar eða múrar afmarka fangels- ið og því þurfa fangar sem vistast þar að hegða sér á ábyrgan hátt og bera virðingu fyrir þeim reglum sem þar gilda,“ segir á vef Fangelsismálastofn- unar. Yfirlýst markmið Sogns er að undirbúa fanga svo þeim verði unnt að koma undir sig fótunum í samfé- laginu á ný en þar stunda fangar ým- ist vinnu eða nám. Matthías var færð- ur á Sogn í lok síðasta mánaðar. Árið 2012 var Matthías Máni dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir til- raun til manndráps en hann réðst á fyrrverandi stjúpmóður sína á heim- ili hennar. Hann barði hana með kertastjaka, tók hana kverktaki og reyndi að kæfa hana með kodda. Áður hafði hann verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir líkams- árás og eignaspjöll í Austurríki. Ljóst var að flótti Matthíasar var þaul- skipulagður en hann svelti sig í sex daga áður en hann strauk til þess að vera búinn undir erfiðar aðstæður. Fyrir rétt rúmlega ári fékk Matt- hías Máni dóm fyrir strok sitt af Litla- Hrauni sem var fremur léttur dóm- ur í ljósi þeirrar fjölmiðlaathygli sem málið fékk. Fyrir strokið fékk hann aðeins þrjátíu daga fangelsi. Rúmum tveimur mánuðum eftir að yfir- völd höfðu hendur í hári Matt híasar Mána, þann 5. mars 2013, réðst hann á fangavörð, sló hann í höfuðið. Fyrir þetta fékk Matthías Máni átta mánaða dóm. Í þeim dómi kemur fram að hann hafi „sætt agaviðurlög- um í fangelsinu“. Ljóst er að Matthías á nokkurn tíma eftir af fangelsisvist sinni í ljósi agabrota. Í september í fyrra var ráðist á Matthías Mána á hrottafenginn hátt á Litla-Hrauni. Baldur Kolbeins- son og Eggert Kári Kristjánsson voru ákærðir fyrir að hafa „slegið og spark- að ítrekað í höfuð hans og líkama, en ákærði Baldur notaði hengilás eins og hnúajárn er hann sló Matt- hías Mána í höfuðið. Af árásinni hlaut Matthías Máni nokkra skurði í andliti, þar af þrjá á enni sem þurfti að sauma, og glóðarauga á vinstra auga.“ Í viðtali við Vísi vegna máls- ins gaf Matthías fremur einkennilega lýsingu á atburðinum. „Ég er meðvit- uð vera. En ég er kannski bara með Alzheimer,“ sagði hann. n Matthías Máni kominn á Sogn n Strokufangi í opnu úrræði n Engin girðing Hjálmar Friðriksson hjalmar@dv.is Strokufangi Matthías Máni strauk af Litla-Hrauni um jólin 2012. Nú hefur hann verið færður í „opið úrræði“. Kringlunni • sími 511-2022 • www.dyrabaer.is Tilboðið gildir frá 16 - 20 október. Smáralind • Kringlunni • Krossmóa Reykjanesbæ • sími 511-2022 • www.dyrabaer.is HÆ SÆTI!HVAÐA FÆRÐ ÞÚ AÐ BORÐA?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.