Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2014, Qupperneq 4
Vikublað 21.–23. október 20144 Fréttir
Höskuldur Þórhallsson gæti fengið Steingrím J. sem mótframbjóðanda í Norðurlandaráði
F
ormlega er það Norðurlanda
ráð sem ákveður hver á að
vera forseti ráðsins. Við þurf
um bara að ákvaða hvað við
gerum; hvort við ákveðum
að bjóða Steingrím líka fram,“ segir
Høgni Hoydal, færeyskur stjórnmála
maður úr Þjóðveldisflokknum og for
maður hóps Vinstri sósíalískra græn
ingja í Norðurlandaráði, aðspurður
hvort hópurinn hyggist stinga upp
á því á fundi Norðurlandaráðs í lok
mánaðarins að Steingrímur J. Sig
fússon, fyrrverandi formaður Vinstri
grænna, verði í framboði til forseta
Norðurlandaráðs. Í hópnum eiga sæti
fulltrúar úr vinstrisinnuðum stjórn
málaflokkum frá Norðurlöndunum.
Steingrímur varð undir
Líkt og greint hefur verið frá í
fjölmiðlum ákvað Íslandsdeild
Norður landaráðs að tilnefna
Höskuld Þórhallsson, þingmann
Framsóknarflokksins, sem næsta
forseta auk þess sem gerð er tillaga
um að Guðbjartur Hannesson verði
varaformaður ráðsins. Á fundi Ís
landsdeildarinnar var kosið á milli
Höskuldar og Steingríms og varð
Steingrímur undir í þeirri kosningu.
Fulltrúi Samfylkingarinnar, Guð
bjartur Hannesson, studdi Höskuld í
kosningunni en hann er varaforseta
efni Íslandsdeildarinnar samkvæmt
tillögunni sem nú liggur fyrir.
Fulltrúar í Íslandsdeild Norður
landaráðs eru þingmennirnir Hös
kuldur Þórhallsson, sem er formaður,
Elín Hirst, Guðbjartur Hannesson,
Jóhanna María Sigmundsdóttir, Ró
bert Marshall, Steingrímur J. Sigfús
son og Valgerður Gunnarsdóttir.
Tilnefndir yfirleitt sjálfkjörnir
Íslandsdeildin fær að tilnefna for
setaefni til Norðurlandaráðs fyrir Ís
lands hönd á fimm ára fresti en löndin
sem eru aðilar að Norðurlandaráði
skiptast á að tilnefna forsetaefni.
Høgni segir að venjan sé sú að til
nefningar einstakra landa í Norður
landaráði standi og því séu þeir sem
tilnefndir eru nánast sjálfkjörnir. Sam
kvæmt þessu ætti Höskuldur nánast
að vera sjálfvalinn í starfið. „Venju
lega er þeirri niðurstöðu sem landið
ákveður bara fylgt,“ segir Høgni.
Hins vegar kann að vera að Stein
grímur J. verði einnig boðinn fram
sem forsetaefni þó að Íslandsdeildin
hafi ekki valið hann sem frambjóð
anda. „Ég hef bara sagt það að Stein
grímur er búinn að vera svo lengi í
íslenskum stjórnmálum og Norður
landamálum í 20 ár. Hann yrði mjög
fínn forseti. Þetta hefði bara verið svo
upplagt. Ég hef hins vegar ekkert á
móti Höskuldi – ég þekki hann líka,“
segir Høgni en eitt af því sem meðal
annars er nefnt í samanburðinum á
milli þeirra er að Höskuldur talar ekki
eitt af Skandinavíumálunum og not
ast því við túlk í störfum innan ráðsins
á meðan Steingrímur notar dönsku.
Siv í svipuðum sporum
Høgni segir að fyrir fimm árum, í
síðasta skipti sem Ísland fór með for
setaembættið í Norðurlandaráði, hafi
komið upp sú staða að Siv Friðleifs
dóttir hafi viljað verða næsti forseti
en Helgi Hjörvar, þingmaður Sam
fylkingarinnar, var þá tilnefndur af
Norður landaráði. „Fyrir fimm árum
var staðan líka þannig að Siv Friðleifs
dóttir var að hugsa um að bjóða sig
fram líka. Þá var svipuð staða í sendi
nefndinni. En hún gerði það svo ekki.
Þannig að þetta er mögulegt,“ segir
Høgni og var Helgi Hjörvar því einn í
framboði til forseta.
Kosið á milli þeirra
Norðurlandaráðsþingið verður
haldið í Stokkhólmi dagana 28. til
30. október næstkomandi. Kjörið á
forsetanum fer fram fimmtudaginn
30. október. Høgni segir að hópur
fulltrúa vinstriflokkanna muni lík
lega taka ákvörðun um það í næstu
viku hvort Steingrímur J. verði einnig
í framboði til forseta Norðurlanda
ráðs en þá verður kosið á milli þeirra
Höskuldar og Steingríms.
Ákvörðunina sem Høgni ræðir
um þarf því að taka með því augna
miði að líklegra sé að aðrir fulltrúar
frá öðrum þjóðum í Norðurlanda
ráði séu líklegri til að vilja Steingrím
en Höskuld sem forseta þingsins.
Ekki náðist í Steingrím J. Sigfússon
við vinnslu fréttarinnar þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir. n
„Venjulega er þeirri
niðurstöðu sem
landið ákveður bara fylgt.
Höfnuðu
Steingrími
sem gæti
samt
farið fram
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Meirihlutinn vildi ekki Steingrím
Íslandsdeild Norðurlandaráðs valdi frekar
Höskuld Þórhallsson en Steingrím J. Sigfús-
son sem frambjóðanda.
Yfirleitt sjálfkjörið
Höskuldur Þórhallsson
verður að líkindum næsti
forseti Norðurlandaráðs
ef Steingrímur J. Sigfús-
son fer ekki fram gegn
honum á þingi ráðsins í
lok mánaðarins.
Bæði sýknuð í Panama-fléttunni
Sigurjón Þ. Árnason og Elín Sigfúsdóttir laus allra mála
D
ómur féll í máli embættis sér
staks saksóknara gegn Sigur
jóni Þ. Árnasyni, fyrrverandi
banakastjóra Landsbankans,
og Sigríði Elínu Sigfúsdóttur, fyrr
verandi framkvæmdastjóra fyrir
tækjasviðs Landsbankans, á mánu
dagsmorgun. Voru þau bæði sýknuð
og ríkissjóður dæmdur til að greiða
allan málskostnað, þar á meðal 24
milljónir í málsvarnarkostnað.
Sigurjón og Sigríður voru ákærð
fyrir umboðssvik og sökuð um að
hafa misnotað aðstöðu sína með
því að fara út fyrir heimildir til
veitingar ábyrgða á meðan þau sátu í
lánanefnd Landsbankans. Umboðs
svikin, sem þau voru ákærð fyrir,
voru upp á tæplega fjórtán milljarða
króna og snúa að aflandsfélögum í
eigu Landsbankans. Féð sem fengið
var að láni frá öðrum bönkum var
vegna kaupréttarsamninga starfs
manna Landsbankans. Bæði tvö
neituðu sök.
Málið hefur hingað til verið kallað
Panamafléttan og tengist undirritun
Sigurjóns og Elínar á sjálfskuldar
ábyrgðir Landsbankans á lánasamn
ingum við tvö félög, annars vegar fé
lagið Empennage Inc. og hins vegar
félagið Zimham Corp en bæði félög
in voru skráð á Panama. n
birgir@dv.is
Koníaksdólgur
rústaði hótelbar
Starfsmaður hótels í miðborg
Reykjavíkur óskaði aðstoðar lög
reglu laust fyrir miðnætti á sunnu
dag eftir að óboðinn gestur hafði
ruðst þar inn og farið að hrifsa til
sín áfengisflöskur af barnum.
Þegar maðurinn lét greipar
sópa um barinn og náði taki á einni
flösku rakst hann í aðrar flöskur í
leiðinni þannig að þær féllu í gólfið
og brotnuðu. Hafði maðurinn í hót
unum við starfsmanninn og reyndi
loks að kýla hann þegar reynt var
að hefta för hans.
Lögreglumenn höfðu upp á
dólgnum á gangi með veigarnar
úr barráninu og var það koníaks
flaska af dýrari gerðinni sem hann
hafði haft upp úr krafsinu. Var
hann í annarlegu ástandi og færð
ur í fangageymslu.
Lögfræðingur
dæmdur fyrir
meiðyrði
Árni Stefán Árnason dýraréttar
lögfræðingur var í Héraðsdómi
Reykjaness á mánudag dæmdur
fyrir meiðyrði. Var honum gert
að greiða Ástu Sigurðardóttur,
eiganda hundaræktarinnar Dals
mynnis, 200 þúsund krónur í
miskabætur vegna ummæla sem
hann lét falla í þættinum Mál
ið á Skjá Einum og bloggskrifa.
Alls krafðist Ásta að átta ummæli
yrðu dæmd dauð og ómerk en
tók dómurinn undir kröfu henn
ar í þremur tilfellum. Þetta eru
ummælin „Dýraníð að Dals
mynni“, „Rekstraraðilinn Ásta
Sigurðardóttir hefur augljóslega
einnig gerst brotleg við dýra
verndarlög með ýmsum hætti.
Við brotum Ástu eins og þau
blasa við mér getur refsing varð
að allt að tveggja ára fangelsi.“ og
„Það á ekki við um Ástu sem hef
ur eitthvað að fela.“ Árni þarf ekki
að greiða fyrir birtingu dómsins í
fjölmiðlum en þarf að birta hann
á bloggsíðu sinni og greiða 400
þúsund krónur í málskostnað.
Í dómsal Sigurjón og Elín voru bæði sýknuð.