Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2014, Síða 12
Vikublað 21.–23. október 201412 Fréttir
Ríkið greiddi hálfa milljón af flugvélaleigu
n Hjördís Svan Aðalheiðardóttir afplánar nú á Vernd og losnar á næstu vikum
F
imm hundruð þúsund króna
styrkur frá íslenska ríkinu
var notaður til að greiða
hluta kostnaðarins við leigu
á flugvél sem flutti Hjördísi
Svan Aðalheiðardóttur og dætur
hennar þrjár til Íslands um haustið
2013. Styrkurinn frá íslenska rík-
inu, sem fór í gegnum innanríkis-
ráðuneyti Hönnu Birnu Kristjáns-
dóttur í lok september í fyrra, var
hins vegar ekki skilgreindur sem
styrkur til að leigja flugvél heldur
var greiðslan skilgreind sem lög-
fræðikostnaður. Þetta herma heim-
ildir DV.
Í svari frá innanríkisráðu-
neytinu við fyrirspurn DV um
styrkveitingar til Hjördísar Svan, og
eða tengdra aðila, segir að sannar-
lega hafi ráðuneytið greitt lögfræði-
kostnað fyrir Hjördísi Svan. „Í tíð
núverandi innanríkisráðherra hafa
verið veittir styrkir af liðnum ráð-
stöfunarfé ráðherra vegna þýðinga
á málsskjölum, húsnæðiskostn-
aðar og lögfræðikostnaðar. Ráðu-
neytið fékk í október og nóvember
á síðasta ári utanaðkomandi lög-
fræðiráðgjöf vegna máls Hjördísar
Svan og barna hennar. Alls nemur
þessi kostnaður 1.330.379 kr.“
Neitar að hafa greitt
fyrir leigu á vélinni
Ráðuneytið neitar því hins vegar að
hafa með beinum hætti greitt fyrir
leigu á flugvélinni sem notuð var
til að flytja Hjördísi Svan og dætur
hennar frá Kristiansand í Noregi
og til Íslands í fyrra og segist ekk-
ert hafa vitað um það mál. „Ráðu-
neytið hefur ekki lagt út í kostnað
vegna flutnings barna hennar til Ís-
lands enda engin vitneskja í ráðu-
neytinu um þann þátt málsins,“
segir í svari ráðuneytisins.
DV hefur heimildir fyrir því að
þetta sé ekki rangt enda var styrk-
urinn skilgreindur með öðrum
hætti. DV hefur ekki heimildir fyrir
því að ráðuneytið hafi vitað að til
stæði að flytja stúlkurnar til Íslands
með þeim hætti sem gert var.
Líkt og áður segir var fimm
hundruð þúsunda króna styrkurinn
ekki notaður beint til greiða fyr-
ir leiguna á flugvélinni heldur var
peningurinn millifærður úr ráðu-
neytinu og yfir á föður Hjördísar
Svan sem svo millifærði fjármun-
ina yfir á Jón Kristinn Snæhólm,
athafna- og fjölmiðlamann, sem
síðan millifærði peningana til þess
aðila sem leigði þeim flugvélina.
Í tölvupósti til föður Hjördísar
Svan í byrjun september 2013 sagði
Þórey Vilhjálmsdóttir, aðstoðar-
kona Hönnu Birnu, að ráðuneytið
myndi styrkja Hjördísi Svan um 500
þúsund krónur til að standa straum
af lögfræðikostnaði hennar. Þetta
herma heimildir DV. Við þetta lof-
orð var staðið.
Skipulagði flóttann
Í samtali við DV segir Jón Kristinn
Snæhólm að leigan á flugvélinni
hafi kostað tvær og hálfa milljón:
„Ég skipulagði þetta. Ráðuneytið
styrkti þetta mál en þetta var kall-
að styrkur vegna lögfræðikostnað-
ar en ekki styrkur vegna flugs. En
styrkurinn var náttúrlega nýttur
til að borga hluta af fluginu.“ Jón
Kristinn segir að eftir því sem hann
viti best þá hafi ráðuneytið ekki vit-
að um leiguna á flugvélinni og flótt-
ann til Íslands.
Jón Kristinn hafði þá verið Hjör-
dísi Svan og dætrum hennar inn-
an handar frá árinu 2010 og að-
stoðað þær í forræðisdeilunni. Til
að mynda náði lögreglan á Íslandi
í dæturnar heim til Jóns Kristins
þegar íslensk yfirvöld létu flytja
stúlkurnar með valdi frá Íslandi til
Danmerkur.
Jón Kristinn var í flugvélinni
Mál Hjördísar hefur vakið mikla
athygli hér á landi en forræðis-
deilan stóð yfir í nokkur ár. Hjördís
var búsett í Danmörku ásamt Kim
Gram og dætrum þeirra þremur.
Eftir að þau skildu tók við bar-
átta um forræði yfir dætrunum og
vændi Hjördís Svan barnsföður
sinn meðal annars um meint of-
beldi í sinn garð og dætra þeirra.
Hjördís Svan og Kim Gram
deildu forræði yfir stúlkunum en í
fyrrahaust ákvað Hjördís Svan að
nema þær á brott frá Danmörku
og fór hún huldu höfði í Skandi-
navíu um fimm vikna skeið. Í fyrri
hluta septembermánaðar ákvað
faðir Hjördísar á Íslandi, Rafn Svan
Svansson, að leigja flugvél ásamt
Jóni Kristni Snæhólm og sækja
Hjördísi og dæturnar til Noregs.
Þessari flugferð var lýst með
eftir minnilegum hætti í tímaritinu
Nýju Lífi í fyrra en þar er Jón Krist-
inn hinn maðurinn sem ekki er
nafngreindur. Blaðamaður Nýs Lífs,
Þóra Tómasdóttir, fór með þeim
Rafni og Jóni Kristni frá Reykjavík
til Noregs og sótti mæðgurnar. „Það
er sólríkur septembermorgunn
og við hittumst þrjú í flugstöðvar-
byggingunni við Reykjavíkurflug-
völl, ég, faðir Hjördísar og maður
sem hefur lagt máli hennar lið á
undanförnum árum [Jón Kristinn
Snæhólm]. Rafn fær sér sígarettu
til að slá á taugarnar. Hugmyndin
um að leigja flugvél kom upp í gær
og allt gærkvöldið og nóttin fór í að
safna peningum. Menn hringdu
í menn og undir morgun fékkst
lán til að leigja vél svo hægt væri
að sækja Hjördísi og dætur henn-
ar. Þær hafa verið í felum í Skandi-
navíu undanfarnar fimm vikur.“
Sagði ráðherra
hafa lofað vernd
Einn af aðstandendum Hjördísar
Svan, presturinn Arndís Ósk
Hauksdóttir sem búsett er í Noregi,
sagði í viðtali við Fréttablaðið um
miðjan maí að innanríkisráðu-
neytið hefði lofað því að Hjördís
og stúlkurnar yrðu ekki sendar úr
landi ef þær kæmu aftur til Íslands
eftir flóttann til landsins: „… ráðu-
neytið taldi sig ekki geta aðstoðað
Hjördísi við að flýja til Íslands með
börnin en ef hún kæmist af eigin
rammleik myndi verða stutt við
hana, börnunum veitt vernd og
þær yrðu ekki sendar úr landi aft-
ur.“ Hjördís og stúlkurnar höfðu
meðal annars dvalið hjá Arndísi
Ósk í Noregi eftir að hafa farið frá
Danmörku.
Hanna Birna neitaði því að hafa
veitt slíkt loforð en sagðist hafa lof-
að að það yrði tryggt að þær fengju
réttláta málsmeðferð.
Hjördís fór hins vegar aftur til
Danmerkur þar sem hún hlaut
dóm fyrir brot á umgengnisrétti og
fyrir að hafa numið dætur sínar á
brott frá Danmörku með ólögmæt-
um hætti.
Afplánar á Íslandi
Hjördís Svan, sem dæmd var til 18
mánaða fangelsisvistar í Danmörku
fyrr á árinu fyrir að nema dætur
sínar þrjár á brott frá landinu, hef-
ur afplánað dóm sinn á Íslandi síð-
an í júlí. Fyrst var Hjördís Svan í
Kvennafangelsinu í Kópavogi en nú
er hún á Vernd og stundar vinnu
samhliða veru sinni þar, líkt og gert
er ráð fyrir. Hjördís mun losna úr
fangelsinu á næstu vikum. Þetta
herma traustar heimildir DV.
Stúlkurnar hjá ömmu og afa
DV hefur heimildir fyrir því að dæt-
ur Hjördísar og Kims Grams séu
ennþá á Íslandi en Hæstiréttur
dæmdi Hjördísi í hag í afhendingar-
máli sem Kim Gram höfðaði fyrr á
árinu. Inntakið í þeim dómi var að
Kim Gram hefði ekki höfðað málið
gegn réttum aðila en hann höfðaði
málið gegn Hjördísi en ekki móður
hennar og föður en stúlkurnar
dvelja nú hjá þeim. Þegar Hæsti-
réttur kvað upp dóm sinn var Hjör-
dís Svan í fangelsi í Danmörku og
dætur hennar voru hjá ömmu sinni
og afa.
Kim Gram hefur ekki höfðað
annað afhendingarmál til að reyna
að fá dætur sínar til sín eftir þetta.
Í samtali við DV segir lögmaður
Kims Grams á Íslandi, Lára Júlíus-
dóttir, að hún viti ekki til þess að
hann ætli sér að höfða annað mál
til að fá stúlkurnar til sín en hon-
um hafði verið dæmt fullt forræði
yfir þeim í fyrra. „Mér er ekki kunn-
ugt um hvað hann sé að gera,“ segir
Lára í samtali við DV.
Ráðuneytið hefur styrkt
Hjördísi um 2,3 milljónir
Innanríkisráðuneytið hefur á síð-
ustu tveimur árum styrkt Hjördísi
Svan Aðalheiðardóttur um sam-
tals tæplega 2,3 milljónir króna
vegna forsjárdeilunnar við Kim
Gram Laursen. Þetta kemur fram í
svarinu frá innanríkisráðuneytinu
við fyrirspurn DV um fjárveitingar
til Hjördísar Svan á síðustu árum.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Flóttinn styrktur úr ríkissjóði
Fjármunir frá íslenska ríkinu – 500
þúsund krónur – voru notaðir til greiða
fyrir leigu á einkaflugvél sem flutti
Hjördísi Svan Aðalheiðardóttur og
dætur hennar þrjár til Íslands í fyrra.
Ráðuneytið taldi styrkinn vera fyrir
lögfræðikostnaði. MyNd HeIðA HelgAdóttIR
Af ráðstöfunarfé
ráðherra Styrkir Hönnu
Birnu til Hjördísar Svan
hafa verið af ráðstöfunar-
fé ráðherra sem nemur
2,5 milljónum króna á
ári. Samtals hefur Hanna
Birna styrkt Hjördísi Svan
um rúmlega 1,3 milljónir
króna.