Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2014, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2014, Síða 18
Vikublað 21.–23. október 201418 Fréttir Erlent n Áströlsk stjórnvöld reka harðan áróður n Flytja þá til Kambódíu Y fir þúsund Kambódíumenn mótmæltu fyrir helgi nýju samkomulagi á milli Ástral- íu og Kambódíu um að hæl- isleitendur sem reyna að komast til Ástralíu verði þess í stað sendir til Kambódíu. Á meðal mót- mælenda í höfuðborginni Phnom Penh voru munkar, nemar og tals- menn mannréttindasamtaka sem hafa fordæmt samninginn harðlega. Mao Pises, skipuleggjandi mótmæl- anna, sagði samninginn afar slæman fyrir hælisleitendurna sjálfa í samtali við fréttavefinn SBS. Líf í hættu „Við mismunum ekki hælisleitend- um sem koma til Kambódíu en ég er hræddur um að þeir geti ekki lifað hér með reisn vegna þess að Kambódía er eitt fátækasta ríki heims; Aðstæðurn- ar gætu verið verri en í þeirra heima- löndum,“ sagði Pises og spurði hvern- ig ríkisstjórn Kambódíu gæti séð fyrir flóttamönnum þegar hún ætti fullt í fangi með sína eigin borgara? Flótta- mannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur lýst yfir áhyggjum vegna þess fordæmis sem verið er að setja með samningnum. Þá gagnrýna áströlsk og alþjóðleg mannréttindasamtök samninginn harðlega og segja hann stefna lífi hælisleitenda í hættu. Hörð stefna Ástralska ríkisstjórnin hefur ver- ið gagnrýnd fyrir harða stefnu í mál- efnum hælisleitenda. Ríkið hefur gert samninga við eyríkið Nárú í Suður- Kyrrahafi og Papúa Nýju-Gíneu um að halda uppi flóttamannabúðum og er talað um „Kyrrahafslausnina“ í þessu samhengi. Hið yfirlýsta mark- mið er að hælisleitendur fái ekki að stíga á ástralska jörð. Kambódíska ríkið mun fá 40 milljónir ástralskra dollara, eða 4,2 milljarða króna, á fjögurra ára tímabili fyrir að taka við hælisleitendunum – meðal annars þeim sem hafa verið í flóttamanna- búðum á Nárú. Enga hælisleitendur Scott Morrison, ráðherra innflytj- endamála í Ástralíu, var skýr og skor- inorður þegar hann sagði í september að samningurinn gerði stjórnvöld- um kleift að fylgja stefnu sinni sem fælist í því að enginn hælisleitandi yrði fluttur til Ástralíu. Morrison þessi hefur sagt að til að byrja með verði einungis hælisleitendur úr flótta- mannabúðum á Nárú fluttir til Kam- bódíu en flutningarnir muni hefjast síðar á árinu. Þá hefur hann talað um að það verði einungis „alvöru flótta- menn“ sem verði fluttir með þessum hætti. „Ekki möguleiki“ Ástralska ríkisstjórnin hefur síðustu mánuði kynnt umdeilda stefnu sína í málefnum hælisleitenda, sem felst að mestu leyti í því að halda hæl- isleitendum sem koma með bátum frá Indónesíu fjarri. „Ekki möguleiki – Þú munt ekki gera Ástralíu að heim- ili þínu,“ er eitt af slagorðunum sem hefur verið beitt í myndrænni áróð- ursherferð áströlsku stjórnarinn- ar gegn hælisleitendum og meðal annars birt á vefsíðu útlendingastofn- unar þar í landi. Á vefsíðunni seg- ir einnig: „Ekki eyða peningunum þínum – fólkssmyglarar eru að ljúga. Ástralska ríkis stjórnin hefur fyrirskip- að varnarliði Ástralíu að snúa bátun- um við þegar það er óhætt.“ n „Aðstæðurnar gætu verið verri en í þeirra heimalöndum. Jón Bjarki Magnússon jonbjarki@dv.is Ástralía lokar á hælisleitendur Áróður gegn hælisleitendum Ríkisstjórn Ástralíu rekur nú harðan áróður gegn því að hælisleitendur komi til landsins eins og sjá má á þessari mynd. Varar við múgæsingi vegna ebólu Barack Obama, forseti Banda- ríkjanna, hvatti landsmenn um helgina til þess að taka ekki þátt í múgæsingi í tengslum við út- breiðslu ebólu. Þrjú ebólusmit hafa verið staðfest í Bandaríkj- unum en fylgst er náið með tugum manns vegna mögulegs smits. Skömmu fyrir þetta ávarp Obama hafði rútu- og lestarstöð í Dallas í Texas verið lokað vegna konu sem var slöpp. Í fyrstu var talið að konan væri á lista yfir fólk sem væri hugsanlega smit- að. Síðar kom í ljós að hún var ekki á þessum lista og aðgerðirn- ar því óþarfar. Lögreglan og glæpasamtök á bak við hvarfið n Nemendur hurfu fyrir þremur vikum n Höfuðpaur glæpasamtakanna handtekinn um helgina M exíkósk yfirvöld tilkynntu um helgina að þau væru búin að handtaka höfuð- paur glæpasamtaka, sem grunuð eru, ásamt mexíkósku lög- reglunni, um aðild að hvarfi 43 nemenda í fylkinu Guerrero þar í landi. Sidronio Casarrubias Sal- gado er sagður vera höfuðpaur- inn í samtökunum, sem kallast Guerreros Unidos, eða Sameinaðir stríðsmenn. Nemendurnir voru allir í kennaraháskóla nálægt Iguala í vesturhluta Geuerrero. Síðast sást til þeirra hinn 26. september síð- astliðinn þegar þeim var gert að fara upp í lögreglubíla. Á svipuð- um slóðum áttu sér stað mótmæli þar sem mótmælendur lentu upp á kant við lögregluna, og nokkrir voru drepnir. Glæpasamtökin og spillt lögreglan eru grunuð um að hafa staðið saman að morðunum og mannráninu. Jesus Murillo Karam, dóms- málaráðherra landsins, sagði að handtaka höfuðpaursins myndi gefa nýjar vísbendingar um það hvað hafi orðið um nemendurna. Að hans sögn hafa 36 lögreglu- þjónar og 27 meðlimir Guerreros Unidos nú þegar verið handtekn- ir vegna málsins. Þá eru Jose Luis Abarca, borgarstjóri Iguala, og lög- reglustjóri borgarinnar sakaðir um að vera tengdir skipulögðum glæpasamtökum, en borgarstjór- inn hefur verið kærður fyrir vald- níðslu. Síðastliðinn föstudag komu mörg þúsund mótmælendur saman í borginni Acapulco í Guerrero til þess að sýna fjölskyld- um hinna týndu stuðning í verki og kröfðust þeir þess að nemendun- um yrði sleppt heilum á húfi. „Þið rænduð þeim lifandi, við viljum fá þau aftur lifandi,“ hrópuðu mót- mælendur. Þá kröfðust þeir þess einnig að ríkisstjóri Guerrero, Ang- el Aguirre, segði af sér vegna þess hvernig hann hefur tekið á málinu. Meira en 1.200 lögregluþjónar leita nemendanna í og í kringum Iguala. n erlak@dv.is Þeir eru týndir Mótmæl- endur báru myndir af týndu nemendunum við mótmælin í Acapulco. MyNd REutERs Stjúpfaðir myrti stúlkubarn Tvítugur karlmaður frá New York hefur verið handtekinn vegna gruns um að hann hafi myrt þriggja ára stjúpdóttur sína í hrottalegri árás. Maðurinn brást ókvæða við eftir að stúlk- unni varð brátt í brók á laugar- dag og barði hana og fimm ára bróður hennar, sem talinn er hafa reynt að koma henni til varnar. Hann mun hafa hringt í neyðar- línuna og þóst vera nágranni í íbúðarblokk fyrir heimilislausa í Brooklyn áður en hann flúði af vettvangi og skildi börnin eftir í blóði sínu. Stúlkan lést af völd- um áverkanna en drengurinn er enn á sjúkrahúsi. Maðurinn gætti barnanna iðulega meðan móðir þeirra var í vinnunni. Þegar lög- reglan hafði upp á honum reyndi hann að svipta sig lífi með því að skera sig á púls. Var það móðir hans sem tilkynnti voðaverk hans til lögreglu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.